Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Qupperneq 11
I3V Helgarblað
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 11
Georg í Orkuverinu er mikill orkubolti og
hann og aðrir starfsmenn munu leggja siq
fram við að hjálpa þessum ungmennum úr
viðjum offitunnar. Einkaþjálfarar og nær-
mgarráðgjafar ætla að hjálpa þeim að snúa
Jiterni sinu til heilbrigðari lífsmáta
" -----------------------
hefur gert margt til að reyna að létta
sig en ekkert gengið nema í skamm-
an tíma í senn.
Kók og snickers í skólanum
Offitan hefur fylgt Valgéiri alla tíð
og hann hefur miklar áhyggjur af
ungu fólki sem stendur í sömu spor-
um og hann og Dagný. „Þetta er
mjög mikið vandamál á íslandi. Mér
skilst að þetta sé annað stærsta
heilbrigðisvandamál á fslandi í dag á
eftir reykingum. Unga fólkið er í
mjög mikilli hættu og stendur illa f
offitubaráttunni, unga kynslóðin er
hreinlega að springa úr offitu. Ég
notaði mína dagpeninga alla í
sælgæti. Pabbi og mamma létu mig
fá peninga fyrir hollu nesti í skólann
og ég keypti mér bara snickers og
kók. Maður lifði á þessu og hlóð
þannig á sig kílóum."
Herbalife virkaði ekki á Valgeir
Þvert á móti reynslu Dagnýjar af
Herbalife ber hann kúrnum ekki
góða söguna því hann þyngdist um
heil 30 kíló þegar hann reyndi þessa
frægu megrunaraðferð. Hann hefur
ekki bara reynt Herbalife heldur
allar aðrar aðferðir sem eru til. Hann
hefur meira að segja lagst undir
hnífinn. „Aðgerðin gengur út á það
að maginn er minnkaður um 90% og
þarmarnir styttir. Eftir að maginn
hefur verið minnkaður er hann
einungis hæfur til þess að taka við
því magni fæðu sem nauðsynleg er
til næringar. Þó er hætt við því að
fíknin verði þess valdandi að við-
komandi lendi í síáti.‘‘ Þetta sagði
Valgeir rúmu ári eftir aðgerðina en
því miður var hann einn af þeim
sem lentu í þessu svokallaða síáti.
krb@dv.is
Tíðar sjálfsmorðstilraunir
Dagný hefur áður komið fram í
blaðinu og sagt lesendum frá hversu
djúpt hún hefur sokkið. „Ég er með
mjög alvarlegt þunglyndi og hef ítrek-
að reynt að fremja sjálfsmorð. Ég veit
ekki einu sinni hversu oft ég hef reynt
að drepa mig. Oftast hefur það verið
með því að taka stóra skammta af
svefnlyfjum. Ég hef líka skorið mig og
reynt að láta mér blæða út. Auðvitað
eru sumar af þessum sjálfsmorðtil-
raunum bara einhvers konar ósk um
athygli eða hjálp, en það voru alveg
nokkur skipti í mínu tiÍfelU þar sem ég
ætlaði að drepa mig.‘‘ Sem betur fer
hafa þessar tilraunir hennar ekki
tekist því núna blasir framtíðin við
henni, björt og brosandi.
Ekki nógu stór sæti í bíó
Hömlumar sem Dagný þarf að lifa
við em gríðarlegar, hún getur varla
farið í bíó eða keypt sér föt án vand-
kvæða og það er skiljanlega ekki auð-
velt fyrir offitusjúkling að ferðast
milli landa. „Það er engin leið að Ufa
eðlilegu h'fi þegar maður er svona
stór, ég get til dæmis bara farið í tvö
kvikmyndahús þar sem em nægilega
stórir stólar fyrir mig og svo er nátt-
úrulega mjög erfitt að fá föt þegar
maður er svona stór. Ég ferðast nú
ffekar lítið, hef ekki farið til útlanda í
fjögur ár.“ Takmarkanimar em
greinilega miklar hjá fólki sem á við
offituvandamál að stríða, miklu
meira en maður gerir sér grein fyrir í
fyrstu.
Ánetjaðist svefnlyfjum
Það er ekki nóg með að Dagný sé
matarfíkiU heldur hefur hún líka
verið háð svefnlyfjum sem hún fékk í
kjölfar þunglyndisins. „Ég bjó í
Reykjavík í fyrra en flutti aftur vestur
þegar ég var algerlega búin að missa
tök á lífi mfnu. Þá var ég orðin mjög
þunglynd og farinn að misnota
svefnlyfin sem vom farin að virka
sem eins konar vímugjafi. Svo drakk
ég ofan í lyfin þegar ég fór út að
skemmta mér. Á endanum fór ég og
hitti ráðgjafa hjá SÁÁ og náði þannig
að vinna bug á lyfjafíkninni," sagði
Dagný og hefur sem betur fer náð að
halda fíkninni í skefjum. Líf Dagnýjar
hefur því svo sannarlega ekki verið
dans á rósum en hún er staðráðin í
að rífa sig upp úr volæðinu og hefja
nýtt líf. Jákvæðnin skín af þessari
ungu ákveðnu konu sem ætlar að
taka þessa áskorun með trompi.
Hefur farið upp í 200 kíló
Valgeir var kátur þegar við hitt-
umst í Orkuverinu og ræddum mál-
in. Loksins virðist hann ætla að taka
þetta af fullri alvöru því þyngdin er
farin að há honum alvarlega. Við
fyrstu mælingu var Valgeir 150 kíló
en hann hefur farið alveg upp í 200
kíló. Hann hafði orð á því þegar við
gengum niður stiga að hnén væm
hreinlega að gefa eftir, þyngdin er
orðin svo rosalega mikil. Valgeir
reynir nú að létta sig enn og aftur en
MIRALE
15% afsláttur
af ALESSI
áður kr. 2~T5.000
nú kr 233.000
50% afsláttur
Glös
Bollar
Kertastjakar
r Á *,
• !—ir
áður kr. 345.000
nu
kr 279.000
HH
v J
áður kr. 86.000
kr 73.800
Vasar
30% afsláttur
nu
MIRALE er eini umboðsaöili
Cassina á íslandi
MIRALE
Opið: Grensásvegi 8
mán. - föstud. 11-18 108 Reykjavík
laugard. 11-15 sími: 517 1020
áður kr. 243.000
kr 199.000
nu
Cassina
ALESSI
LSA driade