Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Blaðsíða 12
12 LAUCARDAGUR 22. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
STYRKIR ÚR
HÚSVERNDARSJÚÐI
REYKJAVÍKUR
Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um
styrki til viðgerða og endurgerðar á byggingum í Reykjavík,
sem hafa sérstakt varðveislugildi af sögulegum og
byggingarsögulegum ástæðum. Bent skal á að endurgerðir
á ytra byrði húsa til upprunalegs stíls og viðhald húshluta
sem taldir eru hafa mikið gildi til varðveislu vegna
heildarsvips svæða s.s. klæðningar, steyptar þakrennur og
garðveggir njóta forgangs.
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum:
1 .Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
2. Tímaáætlun.
3. Kostnaðaráætlun um fyrirhugaðar framkvæmdir.
4. Nýjar Ijósmynd af húsi og eldri, ef til eru.
Umsóknir skulu berast á Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, fyrir 11. febrúar
2005.
Eyðublöð liggja frammi á Árbæjarsafni, Skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkur, Borgartúni 3 og á heimasíðu
Skipulags- og byggingarsviðs, skipbygg.is.
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219
Tómas M. Tómasson bassaleikari
Stuömanna hefur víða komið við á
ferli sínum og marga fjöruna sopið.
Hann hefur unnið fyrir sér sem tón-
listarmaður í yfir þrjá áratugi og
kann fullt af skemmtilegum sögum
um samferðamenn sína í tónlistinni
á þessu tímabili. Tómas er stálminn-
ingur og rifjar hér upp nokkrar sögur
frá yngri árum sínum. í náinni fram-
tíð er ætlunin að birta eina eða tvær
af sögum Tómasar í helgarblaði DV.
Einn mætti á fyrsta ballið
„Fyrsta hljómsveitin sem ég var
meðlfrnur í ásamt vini mínum Ás-
geiri Óskarssyni var Mods er ég var
15 ára gamall. Skömmu eftir að Ás-
geir hætti í Mods fengum við fyrsta
ballið okkar. Þetta var á Akranesi og
mér fannst það mjög spennandi því
við áttum að gista á staðnum yfir
nóttina, á Hótel Akranesi. Vertinn
hafði samið við okkur um að við
fengum aðgangseyrinn en myndum
borga gistingu og uppihald. Til að
gera langa sögu stutta mætti einn
gestur á ballið þetta laugardagskvöld
og vertinn ákvað að endurgreiða
honum aðgangsmiðann. Er við
vöknuðum daginn eftir kom í ljós að
enginn okkar var með krónu í vasan-
um og því góð ráð dýr. Þar sem Akra-
borgin átti ekki að fara fyrr en hálf
fimm um daginn stakk vertinn upp á
að við héldum unglingaball milli
hálf þrjú og hálf fimm. Vertinn fékk
okkur svo tússpenna og pappír og
sagði okkur að gera plaköt sem hann
keyrði svo um bæinn og hengdi upp
í sjoppunum. Það komu 35 ungling-
ar á ballið og reddaði það reikningi
okkar. Þar að auki vom foreldrar
tveggja af gestunum svo elskulegir
að keyra græjumar okkar um borð í
Akraborgina."
„Meðan við hjálpuð-
um gömlu konunni við
eldamennskuna missti
Roof tops rændi gestunum
„Eftir að Mods dó drottni sínum
stofnuðum við Ásgeir, ásamt Þórði
Árnasyni og Gylfa Kristinssyni,
hljómsveitina Rifsberja og skráðum
okkur á umboðsskrifstofu Péturs
rakara á Skólavörðustígnum. Fljót-
lega reddaði hann okkur balli á Bol-
rótarínn sveindóminn í
næsta herbergi."
ungarvík með öllu, það er flugi, gist-
ingu og upphaldi auk smávegis
tryggingar. Þetta var stórt og mikið
félagsheimili. Lengi vel kom enginn
gestur á ballið enda fréttum við að
ein þekktasta hljómsveit landsins,
Roof Tops, væri með ball sama kvöld
í Hnífsdal. Svo gerist það kraftaverk
að tíu manna hópur mætir á ballið
og semur við staðarhaldarann um
að fá að koma inn til reynslu. Var
ætlunin að hópurinn greiddi að-
gangseyrir ef þeim likaði tónlistin en
Rifsberja var í þyngri kantinum m.a.
með lög eftir Jimi Hendrix á
prógramminu. Hópurinn hafði
hins vegar ekki verið lengi í salnum
þegar rútubflstjóri Roof Tops kom
við og bauð hópnum upp á ókeypis
ferð á Hnífsdal sem þeir og þáðu.
Var því ekki um annað að ræða fyrir
okkur en aflýsa ballinu."
Velly funny í Kanton
„Stuðmenn voru ein allra fyrsta
vestræna hljómsveitin sem hleypt
var inn í Kína er ráðamenn þar fóru
aðeins að opna landið. Við fórum í
viðamikla tórfleikaför þangað árið
1986. Skipulagning var þannig að
tónleikar voru haldnir snemma
kvölds eða um sjöleytið og síðan var
okkur boðið í viðamiklar veislur á
eftir með ýmsum menningar- og
flokkstoppum með borgarstjóra við-
komandi borgar í fararbroddi. Fyrsta
borgin sem við lékum í var Kanton
og að loknum tónleikunum var hin
hefðbundna veisla. Undir veislunni
voru hinir og þessir af gestgjöfum
okkar stóðugt að slá í glös sín, standa
svo upp og halda smáræðu. Lauk
þessu með að borgarstjórinn hélt
lokaræðuna. Hann var varla sestur í
sæti sitt er Júlíus Agnarsson hljóð-
maður okkur sló einnig í sitt glas og
stóð upp. Hann sagði svo á ensku að
hann ætlaði að halda örstutta ræðu
sem var einfaldlega: „Hvar er fjand-
ans klósettið á þessum stað?" Ándlit
þeirra Kfnverja sem skildu ensku
urðu stjörf í fyrstu en síðan fóru þeirr
allir að brosa og skríkja á bjagaðri
ensku sinni: „Velly funny, velly
funny."
Rótarinn reynslunni ríkari
Stuðmenn fóru eina ferð með
Eddu, farþegaskipi og bflferju sem
átti að verða nýr Gullfoss íslands
fyrir tæpum tveimur áratugum. Um
tíma var rætt um að sjálfur Halldór
Laxness yrði heiðursfarþegi um
borð. Siglt var til Newcastle og
Bermerhaven og skemmst er frá því
að segja að ferðin öll var hrein
hörmung eins og mikið var skrifað
um á sínum tíma, maturinn vondur
um borð og mjög slæmt sjóveður
allan túrinn. Um borð voru hins
vegar tveir menn, Gulli og Langi,
sem voru á eilífðarmiða hjá Stuð-
mönnum. Er við komum til Bremer-
haven höfðu þeir félagar upp-
gvötvað að ungur rótari okkar, nú
þekktur athafnamaður hér í borg,
væri enn hreinn sveinn. Ákváðu
Gulli og Langi að eitthvað þyrfti að
gera í málinu. Tóku þeir rótarann
með sér í melluhverfið í borginni og
ég fylgdi með. Vandamálið var að
klukkan var níu um morguninn og
lítið í gangi í hverfinu en Eddan átti
að leggja af stað heim aftur um há-
degið. Loks komum við að einum
„glugganum" sem á stóð að hægt
væri að hringja bjöllunni við hliðina
ef þjónustu væri óskað. Stúlka ein
kom til dyra. Sagði hún okkur að
mamma sín væri komin í heimsókn
úr sveitinni og því gæti hún lítið lið-
sinnt þeim. Gtflli og Langi útskýrðu
málið fyrir stúlkunni og að þeir
væru á „deadline" með allt dæmið.
Var okkur þá hleypt inn í eldhús þar
sem móðirin og sonur stúlkunnar
voru að útbúa sunnudagsmatinn.
Meðan við hjálpuðum gömlu kon-
unni við eldamennskuna missti rót-
arinn sveindóminn í næsta
herbergi."