Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Iðnaðarmenn sem voru við vinnu í íbúð við Vitastíg 9 í Reykjavík ráku upp stór augu þegar þeir fundu
flöskuskeyti falið í gólfinu sem þeir voru að rífa. Skeytið var skrifað árið 1975 af þeim sem þá lögðu gólfið.
AFRAM
Fundvísir iönaðarmenn
Hallgrímur og Stlgur voru
hissa þegar þeir fundu 30 ára
gamalt flöskuskeyti líbúð við
Vitastíg sem verið var að taka I
gegn. Þeir héldu I fyrstu að um
rusl væri að ræða.
30 m flöi
„Við vorum að rífa gólffjalimar
þegar við rákumst á maltflösku í
klæðningunni. Fyrst héldum við að
um eitthvað msl væri að ræða en svo
sáum við að flaskan var með tálguð-
um tappa og þegar betur var að gáð
þá leyndist bréf í flöskunni," segir
Stígur Hannesson sem fann skeytið
ásamt Hailgrfmi bróður sfnum.
Flöskuskeytið er undirritað af
Tómasi Jónssyni og Kristjáni Sveins-
syni en sá fyrmefndi bjó, ásamt konu
og tveimur bömum, í íbúðinni þegar
skeytið var skrifað fyrir 30 árum síðan.
í skeytinu stendur að þeir Tómas og
Kristján hafi sett nýtt gólf á íbúðina
vegna þess að eldur kom upp í húsinu
vorið 1975. f skeytinu biðja þeir for-
sjónina að varveita gólfið og húsið allt
að eilífu frá slíkum vágesti. Einnig
koma fram hjúskapahagir þeirra
Kristjáns og Tómasar en sá síðar-
nefndi segist vera giftur systur Krist-
jáns, Þórunni Sveinsdóttur búninga-
hönnuði.
Gaman að finna gamalt dót
Iðnaðarmennimir sem fundu
skeytið segjast aldrei hafa fundið neitt
þessu líkt áður en aftur á móti hafi
þeir oft fundið gömul dagblöð og
annað drasl í veggjum og gólfum.
„Stundum skrifa iðnaðarmenn eitt-
hvað á plöturnar sem þeir em að
vinna með en það eryfirleitt bara eitt-
hvað bull eða teikningar af næsta
vegg. Ég held að það sé ekkik algengt
að iðnaðarmenn finni né komi
heilum flöskuskeytum fyrir í húsun-
um sem þeir em að vinna í,“ segir
Stígur.
Hann bætir við að vissulega sé
gaman að rekast á smáhluti ff á liðinni
Skeyti í maltflösku Skeyt-
inu var haganlega fyrirkom-
ið i maltflösku og lokað fyrir
með tálguðum tappa.
tíð inni í veggjum og gólfum húsa sem
verið er að taka í gegn, ekki síst gömul
dagblöð með fréttum úr fortíðinni.
Sjálfur hefur hann einu sinni fundið
flöskuskeyti áður en það var í fjörunni
við Rauðasand þegar hann var
krakki.
Skeytið í
maltflösku
Skeytið sem
bræðumir
fundu í íbúðinni
við Vitastíg er
hið heillegasta
þótt það hafi
legið í gólfinu á
þessu þriggja
íbúðahúsií30ára
enda vel varðveitt
í maltflösku, en
samkvæmt skeyti-
nu var mikið
drukkið af maltöli
við smíðamar. „Við bræð-
umir drekkum hins vegar
mest af kaffi þegar við
erum að vinna,“upplýsir Stígur og
hlær þegar hann er spurður að því
hvort þeim bræðrum hafi þá ekki
dottið í hug að skella kaffibrúsa í gólf-
ið með orðsendingu til þeirra sem
einhvem tíma rífa upp eikargólfið
sem þeir vom að leggja á íbúðina.
„Það var sett ný orðsending í malt-
flöskuna að ósk húseigandans sem
tók ekki annað í mál en að viðhalda
hefðinni. Flöskunni var svo hagan-
lega komið fyrir undir hinu nýja
eikargólfi sem verið er að leggja á
íbúðina. Það verður ömgglega upplit
á smiðunum sem hugsanlega finna
hana eftir 30 ár.“
Fyrstur kemurfyrsturfcer!
Opið:
Mánud. -fimmtud. 10-18
Föstudaga 10-19
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 11-16
Sérstakt fluguhnýtingahorn
með yfir 2000 einingum á
100 kr. hver pakkning.
www.utivistogveidi.is
S i ð umúIa 11 • 108 Reykjavik • S: 588 -6500
Höfundar flöskuskeytisins, Kristján Sveinsson og Tómas
Jónsson, voru hissa á því að skeytið hefði fundist svo fljótt
Minjagripur um
skemmtilegt sumar
■ 30 arum síðar Tómas og Kristján
Mmeð skeytið góða sem þeir skildu
w\eftir',búð við Vitastíg fyrir30 árum
tUÞeim fannst að sjálfsögðu gaman
■ að sið Það aftur og vakti fundurinn
Muppgamlar og góðar minningar.
„Ég held það hafi verið ég sem
átti hugmyndina að skeytinu en
ekki gmnaði mig að þetta skeyti
myndi nokkurn tímann finnast,"
segir Tómas. Hvorki hann né
Kristján gátu munað hvað þeir
höfðu skrifað í sjálft skeytið en
mundu þó vel eftir því að þeir
hefðu komið því fyrir f íbúðinni.
„Við hjónin keyptum íbúðina
árið 1972 og áttum hana til 1979.
Sumrinu 1975 eyddum ég og mág-
ur minn Kristján, sem er smiður, í
það að endurbæta íbúðina þar sem
það hafði orðið bmni út frá eldhús-
ljósi. Við bjuggum sjálf í Bretlandi
þegar þetta gerðist en íbúðin var á
meðan í útleigu," rifjarTómas upp.
Bruninn olli töluverðum skemmd-
um á íbúðinni þannig að allt
sumarið fór í að standsetja hana
upp á nýtt.
„Þetta var mjög skemmtilegt
sumar hjá okkur Kristjáni viö smíð-
arnar og mér fannst það spennandi
hugdetta að smeygja einhverjum
minjagrip um þetta sumar undir
gólffjalirnar áður en gólfinu var
iokað. Skeytið var einnig hugsað
sem eins konar verndartákn þar
sem við biðjum forsjónina um að
vernda húsið frá öðm eins tjóni."
Kristján minnist þessa sumars
einnig með ánægju og bendir á að
húsið, Vitastígur 9, sé um margt
merkilegt. Þar hafi t.d. fyrsti félags-
fundur pípara verið haldinn. Félag-
ið hafi verið stofnað í stigagang-
inum þar sem ekkert betra
húsnæði fannst til fundarhaldanna
og því kontu menn sér fyrir í tröpp-
unum á stigahúsinu. Sjálfur segist
hann ekki hafa endurtekið leikinn
með flöskuskeytið þrátt fyrir að
hann vinni við það alla daga að
loka veggjum og gólfum.
„Ég starfa sem smiður á Vellin-
um og þar höfum við stundum gert
okkur það að leik að skrifa nöfnin
okkar á veggplötur og það er alltaf
gaman að finna eitthvað slíkt þegar
verið er að endurnýja."