Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Side 36
36 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Dúett Nats King Cole og Natalie dóttur hans vakti athygli þegar hann var gefinn út eftir andlát Nats
Það voru ekki allir
hrifnir þegar Nat
King Cole
syngja dæg;
SVIKA
■ 114
Þann 15. febrúar næstkomandi eru liðin íjörutíu ár frá því að bandaríski tón-
listarmaðurinn Nat King Cole lést af völdum lungnakrabbameins. Tónlist
hans nýtur samt enn mikilla vinsælda og er gott dæmi um sígilda dægurtón-
list. Trausti Júlíusson rifjar upp feril þessa merka listamanns sem átti m.a.
fyrstu toppplötu Billboard-listans og var fyrstur þeldökkra Bandaríkja-
manna til að sjá um sinn eigin sjónvarpsþátt.
Nat King Cole er í dag þekktastur
fyrir söng sinn, en hann byrjaði
ferilinn sem djasspíanisti og náði
miklum árangri sem slíkur með Nat
King Cole-tríóinu áður en hann fór
út í dægurlagapoppið. Ekki voru
allir ánægðir þegar hann færði sig
yflr í poppið snemma á sjötta ára-
tugnum. Margir af heitustu aðdá-
endum Nats og tríósins litu á þetta
sem svik. Hann var m.a. sakaður
um að selja sál sína og fóma list-
rænum heilindum fyrir vinsældir og
peninga. Viðbrögðunum hefur í
seinni tíð verið líkt við viðbrögðin
sem Bob Dylan fékk ffá þjóðlaga-
áhangendum þegar hann fór að
nota rafmagnshljóðfæri og færa sig
yfir í rokkið upp úr miðjum sjöunda
áratugnum.
Sem djasspíanisti var Nat King
Cole undir áhrifum frá Earl „Fatha"
Hines sem hann fylgdist, með á
gagnfræðaskólaárunum í Chicago.
Sjálfur hafði Nat líka áhrif á píanó-
leikara sem á eftir honum komu, t.d.
Oscar Peterson, Red Garland og
Tommy Flanagan.
Margir litu þó á þetta skref Nats
King Cole yfir í dægurtónlistina sem
sjálfsagt mál fyrir listamann sem
vildi prófa nýja hluti. Jay Cocks skrif-
aði m.a. í Time fyrir nokkrum árum:
„Poppið spiliti honum ekki. Hann
notaði djassinn til þess að auðga
það og endurnýja og hann skildi
eftir sig arf sem lifir að eilífu. Alveg
eins og sannur konungur."
w':.
Rödd sem lifir aö eilífu
Rödd Nats King Cole er
ein af þessum röddum í
poppsögunni sem allir
þekkja. Hún er í senn auð-
þekkjanleg og efdrminni-
leg. Nat lést af völdum
lungnakrabba 15. febrúar
1965, en lögin sem hann
gerði vinsæl hljóma enn og
þótt það séu 40 ár síðan
hann kvaddi þennan heim
þá seljast plötur hans enn í
yfir milljón eintökum á
hverju ári.
Fullnuma á píanóið 12
ára
|l Nathaniel Adams Coles
fæddist í Montgomery í Ala-
bama 17. mars 1919. Faðir hans
var baptista-prestur og móðir
hans stjómaði kirkjukómum.
Fjölskyldan, sem bjó við mikla
fátækt, flutti til Chicago þegar Nat var
fjögurra ára gamall. Hann fékk ungur
mikinn áhuga á tónlist. Hann lærði á
píanó með aðstoð móður sinnar frá
íjögurra ára aldri. Nat var farinn að
spila á píanó í kirkjunni hjá föður
sínum þegar hann var 11 ára og var
orðinn fullnuma píanisti ári síðar.
Á unglingsárunum stofnaði Nat
, tvær hljómsveitir. Önnur þeirra
% var 14 manna sveit sem hann
kallaði Rouges of Rhythm, en
hin var fimm manna sveit sem
* hann kalaði Nat Coles and his
•, Royal Dukes. Báðar
'f f sveitimar spiluðu djass. Þeg-
- ar Nat var 17 ára gekk hann
■ < til liðs við hljómsveitina
Solid Swingers sem bróðir
i hans, bassaleikarinn
k Eddie, stóð fyrir. Nat
kynntist fyrri eigin-
• konu sinni, Nadine
1 i'y Robinson, á tón-
m \ leikaferð með
m bróður sínum.
m Mj w Þau fluttu til
Æ • LosAngeles
** *\ ffik °g giftu
sig
Nat King Cole tríóið
Árið 1937 var Nat beðinn um að
setja saman lida hljómsveit fyrir næt-
urklúbb í LA sem hét Sewanee Inn.
Hann gerði það og sveitin fékk fljót-
lega nafnið The Nat King Cole Trio og
í framhaldi af því fór Nathaniel Coles
að kalla sig Nat King Cole. I tríóinu
vom auk Nats, sem spilaði á píanó og
söng í nokkmm lögum, gítarleikarinn
Oscar Moore og bassaleikarinn
Wesley Prince. Upphaflega var
trommuleikari líka, en þegar hann
mætti ekki eitt kvöldið ákváðu þeir að
vera bara þrír, enda var það mikill
rytmi í píanóleik Nats að sveitin
þurfti ekki trommara.
Þetta var á tfrnum stóm danshljóm-
sveitanna, en Nat King Coletríóið náði
þó strax töluverðum vinsældum. Árið
1943 gerði sveitin samning við hið ný-
stofhaða fyrirtæki Capitol og fyrsta lag-
ið sem sveim gaf út hjá Capitol,
Straighten Up and Fly Right, sló í gegn
árið 1944 og virtist höfða jafrit til
svartra og hvítra. Fleiri lög náðu mikl-
um vinsældum; (Get Your Kicks On)
Route 66 fór í 11. sæti popplistans og (I
Love You) For Sentimental Reasons og
Nature Boy fóm á toppinn. Þegar Bill-
board-fyrirtækið birti í fyrsta sinn lista
yfir mest seldu stóm plötumar 24.
mars 1944 var platan The Nat King
Cole Trio í toppsætinu. Hún hélt því í
heflar 12 vikur.
Úr djassi yfir í popp
Á sjötta áramgnum þróaðist tónlist
Nats King Cole frá djassi og yfir í popp.
Lagið Mona Lisa, sem var tekið upp
með strengjum, fór beint á toppinn
árið 1950 og seldist í 3 milljónum ein-
taka. Skömmu seinna var ákeðið að
breyta nafninu úr Nat King Cole Trio
yfir f Nat King Cole. Nat var farinn að
snúa sér í auknum mæli að söngnum
og tónlistin var dægurtónlist, en ekki
djass.
Seinni eiginkona Nats, Maria Ell-
ington, er talin hafa hvatt hann til þess-
ara breytinga sem margir vom lítt
hrifhir af, m.a. meðspilarar hans.
Maria var söngkona sem Nat hafði
kynnst árið 1946 og gifst tveimur árum
síðar. Það munaði að vfsu litíu að gift-
ingunni væri aflýst þar sem Nat
skemmti sér svo rækilega í steggja-
partíinu að hann missti af giftingaræf-
ingurtni og Maria trylltist.
Nat sjálfur hafði annars eiginlega
aldrei litið á sig sem söngvara. Hann
lýsi röddinni svona í viðtaii við Down
Beat árið 1954: „Röddin mín er ekkert
til að stæra sig af. Hún nær yfir svona
tvær áttundir. Ætli það sé ekki þetta
ráma öndunarhljóð sem sumir em
hrifhiraf."
Þrír pakkar á dag
Velgengni Nats King Cole hélt
áfram allt þar til hann dó. Árið 1956
stjómaði hann fyrstur þeldökkra
Bandaríkjamanna sínum eigin sjó-
varpsþætti, en þrátt fyrir mikið áhorf
fékkst ekki styrktaraðili og eftir eitt ár í
loftinu var hann tekinn af dagskrá.
Talið er að auglýsendur hafi ekki viljað
setja pening í þátt sem þeir töldu höfða
aðallega til blökkumanna.
Nat King Cole fékk að sjálfsögðu að
finna fyrir því að hann væri þeldökkur
á ferlinum. Hann neitaði að spila á
stöðum sem ekki vom opnir fyrir alla
kynþætti og hann var duglegur að fara
í mál við hótel sem neituðu honum um
gistingu. Þegar Nat og Maria fluttu árið
1949 í hús í Hancock Park-hverfinu f
LA, sem fram að því hafði eignöngu
verið fyrir hvíta, varð allt vitlaust og
íbúamir stofnuðu samtök til þess að
bola þeim í burtu. Á tónleikum í Ala-
bama var líka einu sinni ráðist á hann á
sviði. Nat kynntist John F. Kennedy
árið 1956 og studdi hann dyggilega í
kosningabaráttunni árið 1960 og spil-
aði við innsetningarathöfn hans 20.
janúar 1961.
Nat King Cole var þekktur fyrir að
reykja mikið. Hann reykti þrjá pakka á
dag svo árum og áratugum skipti. Eftir
að hann var skorinn upp við magasári
árið 1953 var honunm ráðlagt að
hætta, en hann hunsaði það. I desem-
ber 1964 greindist hann með lungna-
krabbamein og tveimur mánuðum
síðar var hann allur.
Ný mynd og plata
I tilefni þess að 40 ár em liðin frá
andláti Nats King Cole kemur út ný
safnplata sem spannar allan ferilinn,
The World of Nat King Cole, og DVD-
diskur með nýrri heimildarmynd
ásamt ýmsu aukaefni. Platan kemur út
eftir helgina. Á henni em 28 lög, allt frá
fyrsta laginu sem hann gerði fyrir
Capitol árið 1944, Straighten Up & Fly
Right, til dúettsins Unforgettable með
Nataliefrá 1991.
DVD-diskurinn kemur út 28. febrú-
ar. Á honum er heimildarmynd þar
sem sagan er rakin og m.a. talað við BB
King, Natalie Cole, Isaac Hayes, Out-
Kast, Stevie Wonder, Snoop Dogg,
Díönu Krall, Quincy Jones, Arethu
Franklin og Ibrahim Ferrer. Látum
Stevie klára þessa samantekt: „Svo
lengi sem fólk fær að heyra þessa rödd
verða til tónlistarmenn sem em undir
áhrifúm frá henni."
Samstarf yfir landamæri lífs og dauða
Dóttir Nats King Cole, Natalie,
hefur fetað í fótspor föður síns
með góðum árangri. Hún var hans
fyrsta barn; dóttir hans og Mariu
Ellington, seinni eiginkonu hans.
Natalie fæddist 6. febrúar 1950,
tveimur mánuðum áður en Nat
sendi frá sér lagið Mona Lisa,
en það lag gerði hann að
stórstjörnu.
Natalie sendi frá sér
sína fyrstu plötu árið
1975. Hún byrjaði í
soul-tónlist og sendi frá sér margar
plötur sem fengu ágætar viðtökur á
áttunda og níunda áratugnum.
Hún sló hins vegar í gegn á heims-
vísu með plötunni Unforgettable
With Love sem kom út árið 1991.
Hún var tileinkuð Nat King Cole og
inniheldur m.a. dúettinn Unfor-
gettable með þeim feðginum sem
var þannig unninn að söngur
Natalie var settur inn á upptöku af
föður hennar að syngja lagið. Lagið
vakti mikla athygli og vann til
Grammy-verðlauna og platan náði
í kjölfarið margfaldri platínusölu.
Dúettar af þessu tagi hafa síðan
verið algengir. Natalie hefur í
seinni tíð fært sig í síauknum mæli
yfir í djassinn.