Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Page 44
44 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR
HelgarblaO DV
Lesbía
kveikir í
fyrrverandi
maka
Nú stenduryfír mál í Bretlandi þar sem
kona aö nafni Sarah Metcalfe er
ákærö fýrir að hafa kveikt í fyrrverandi
maka slnum, hinni 26 ára gömlu Katie
Wringglesworth og nýrri ástkonu
hennar, hinni 32 ára gömlu Emmu
Shakesheff. Málið er rakið til þess að
Sarah, sem er 46 ára gömul, kom að
Katie uppi í rúmi með Emmu þessari.
Þar lágu þær naktar og virtust
skemmta sér vel. Sarah, sem hafði deilt
hjólhýsi með Katie til skamms tima,
tók þessu ekki vel og fór og náöi I
benslnbrúsa. Hún skvetti bensíninu svo
yfirallt gólf hjólhýsisins og yfír stúlk-
urnar tvær. Næst hótaði Sarah að
kveikja I þeim en þá mun Katie hafa
efast um orð hennar og sagt upp á
enska vísu:„You don't have the balls".
Við þetta trylltist Sarah og kveikti I öllu
saman. Katie og Emma lifðu raunirnar
afen líkamar þeirra beggja urðu fyrir
annars og þriðja stigs bruna. Ekki
hefur enn verið dæmt I málinu.
Danska lög-
reglan leitar
tvofalds
morðingja
Lögreglan I
Haderslevl
Danmörku lýsti
I síðustu viku
eftir22ára
gömlum karl-
manni vegna
tveggja
manna sem
myrtir voru
fyrirhelgi.Maðurinn varsíöar
handtekinn afyfírvöldum I Þýskalandi
á þríðjudag þar sem hann var á fíótta.
Fórnarlömbin voru bæði af arablskum
uppruna og voru 16og24 ára. Menn-
irnir voru báðir skotnir og létust þeir af
völdum sára sinna eftir að á spítala
- varkomið.Morðinginn var handtekinn
fyrirhreina tilviljun I Þýskalandi en
aðra bílnúmeraplötuna vantaði á bíl
hans. Lögreglan stöðvaði manninn
sem sýndi danskt ökuskírteini og þá
kom strax I Ijós að maðurinn var eftir-
lýstur vegna morðs. Hann var því
handtekinn og síöan fluttur til Dan-
merkurþarsem lögregla hefuryfír-
heyrt hann vegna málsins.
Tvöfaldur
morðingi
kveður
Munda Pálín En-
oksdóttir lést I
vikunni eftir
tveggja ára bar-
áttu við krabba-
mein. Munda
varáslnum
tíma dæmd fyrir
að verða tveim-
urmönnumað
bana og dvald-
ist hún á Réttar-
geðdeildinni á Sogni slðustu árævi
sinnar. Fyrra morðið framdi Munda
áriö 1974þegarhúnskarJóhannes
Þorvaldsson á háls en síðar stakk hún
Óskar Þorvaldsson, þáverandi eigin-
mann sinn, með flökunarhnlfmeð
þeim afleiðingum að hann dó. „Hún
hefur átt stórmerkilegt líf, en líka llf
sem er fullt afofbeldi og hörmungum.
Ýmislegt bendir til þess að samfélagið
eigi stóran þátt íþvl hvernig komið er
fyrir henni og hefði líklega mátt koma
I veg fyrirýmiss konar ógæfu efvið
hefðum staðið okkur betur," var haft
eftir Jóni Ársæli Þórðarsyni I fjölmiðl-
„ um, en hann gerði þátt um Mundu I
fyrra sem vakti mikla athygli.
Reglulega berast fréttir þess efnis að ný sönnunargögn eða tækni hafi sýnt fram á
að sakfelldur einstaklingur sé í raun saklaus. Þá hafa einstaklingarnir oft setið
áratugum saman í fangelsi fyrir glæp sem einhver annar framdi og í verstu tilfell-
unum hefur fólk þegar verið tekið af lífi. Hér eru sögur nokkurra einstaklinga sem
hafðir voru fyrir rangri sök og þurftu að dúsa í fangelsi
Sakleysingjan sem
sátu inni
„Þetta er í raun þjóðarmorð, þeir koma öllum
hæfileikaríku blökkumönnunum í fangelsi svo þeir
geti ekki fjölgað sér. Það voru nánast allir svartir
sem voru með mér í fangelsi og þeir voru allir
dæmdir ungir og margir þeirra voru saklausir."
í desember 1991 fannst kona lát-
in á klósetti bars í Phoenix í Banda-
ríkjunum. Konan var nakin þegar
hún fannst, henni hafði verið
nauðgað og á henni voru nokkur
bitsár fyrir utan stungusár sem
Sakamál
drógu hana til dauða. Engin
fingraför fundust en munnvatnið í
sárum hennar sýndi fram á að
ofbeldismaðurinn væri í algengasta
blóðflokknum. Böndin beindust
strax að Roy nokkrum Krone sem
var fastagestur á barnum. Hann var
handtekinn og lögregla sagði að
bitförin á líkama konunnar væru
hans og nægði það til að sakfella
hann þótt hann gæti sannað að
hann hafi verið sofandi heima hjá
sér þegar morðið átti sér stað. Hann
var dæmdur til dauða en fjórum
árum síðar var refsingin milduð í
lífstíðarfangelsi. Málið var síðan
tekið upp að nýju árið 2002 og þá
var hægt að nota DNA-tækni til að
sjá hvort munnvatnið í sárum kon-
unnar væri í raun Rorys. Svo reynd-
ist ekki vera heldur sáu menn að
þetta var munnvatn Kevins Phillips
sem þegar sat á bak við lás og slá
vegna nauðgunar. Roy var því
sleppt eftir að hafa setið í fangelsi í
10 ár fyrir glæp sem hann framdi
ekki. Hann var hundraðasti ein-
staklingurinn í Bandaríkjunum sem
fékk dauðadóm en var síðan
sýknaður.
Fremja þjóðarmorð
í október árið 1980 réðust tveir
menn inn á heimili í Indiana í
Bandaríkjunum vopnaðir byssum
og numu konu sem þar var á brott
með sér. Þeir börðu hana illa,
nauðguðu og skildu svo eftir. Fórn-
arlambið gaf lýsingu á öðrum
manninum og var Larry Mayes
handtekinn skömmu síðar.
Fingraför hans fundust hvergi en
lögreglan þjarmaði að honum og
var sannfærð um að hann væri sá
seki. Á endanum var hann fundinn
sekur og dæmdur £ 80 ára fangelsi.
Larry barðist lengi fyrir upptöku
málsins eftir að DNA-tæknin kom
til sögunnar en gögnin voru sögð
glötuð. Því trúði Larry ekki og á
endanum fundust þau hjá lögreglu.
Málið var tekið upp og þá sást strax
að Larry var saklaus. Hann hafði þá
setið inni í 18 ár. „Af hverju ég? Af
því að ég var ungur, svartur og
hæfileikaríkur. Þannig hefur það
alltaf verið. Þetta er í raun þjóðar-
morð, þeir koma öilum hæfileika-
ríku blökkumönnunum í fangelsi
svo þeir geti ekki fjölgað sér. Það
voru nánast alhr svartir sem voru
með mér í fangelsi og þeir voru allir
dæmdir ungir og margir þeirra voru
saklausir. En svona á þetta alltaf
eftir að vera,“ sagði Larry Mayes
þegar honum var sleppt eftir 18 ár.
Vitnisburður vitleysinga
Lítilli stúku var rænt á leiðinni í
skólann árið 1982 í Idaho í Banda-
ríkjunum. Lík hennar fannst
nokkrum dögum síðar í skurði.
Sttilkunni hafði verið misþyrmt og
á henni fundust hár sem voru ekki
hennar eigin. Litur þeirra kom hins
vegar heim og saman við litinn á
hári Charles Irvin Fain og var hann
dæmdur sekur eftir að tveir fangar í
fangelsinu þar sem hann sat í
gæsluvarðahaldi sögðu fýrir dómi
að hann hefði játað fyrir þeim.
Þetta dugði kviðdómnum sem
dæmdi Charles til dauða á meðan
dómur „vitnanna" var styttur.
Charles hélt alltaf fram sakleysi
sínu og 18 árum eftir dóminn kom
hið sanna í ljós. DNA-sýni sýndi að
hárið á líkama stúlkunnar var ekki
hans.
Heilaskaðað vitni mikilvæg-
ara en sannanir
Kevin Green var árið 1980 fund-
inn sekur um að hafa ráðist á
ófríska konu sína, nauðgað henni
og barið til óbóta. Kona hans missti
fóstrið og hlaut miklar heila-
skemmdir. Hún hélt því fram ári
eftir atburðinn að eiginmaður
hennar hefði staðið á bak við árás-
ina og var hann fundinn sekur.
Sönnunargögnin vantaði, fólk gat
staðfest að Green var annars staðar
þegar árásin var framin en vitnis-
burður konu hans var talinn nóg til
að sakfella hann, jafnvel þótt hún
hefði hlotið mikinn heilaskaða.
„Þegar ég var í réttarsalnum trúði
ég ekki öðru en að mér yrði sleppt.
Það eina sem hún gat sagt var að ég
hefði gert þetta og það var það eina
sem benti til þess. Allt annað benti
til sakleysis míns,“ saði Green sem
var að lokum sleppt eftir að gagna-
banki lögreglunnar sýndi fram á að
DNA-sýni sem fundust hefðu á
staðnum væri f raun úr manni að
nafni Gerald Parker. Sá játaði á sig
morðið og fimm önnur og var
Green þá sleppt eftir 16 ár í fang-
elsi.
Þessi dæmi hér að ofan eru
aðeins örfá dæmi um það þegar ný
tækni sýnir fram á sakleysi einstak-
linga sem hafa verið fangelsaðir fyr-
ir rangar sakir. Það má því fullyrða
að flöldi fólks sitji enn inni fyrir
rangar sakir og að margir af þeim
sem teknir hafa verið af lífi í gegn-
um árin hafi í raun verið saklausir.
Raf magnsstóllinn Fjölmargir einstaklingar hafa reynst saklausir afglæpum sem þeir hafa
hlotið dóm fyrir.
X