Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Page 49
DV Sport
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 49
Lampard
bestur
Frank Lampard, miðjumaður
og fyrirliði Chelsea, var í gær út-
nefndur besti knattspyrnumaður
ársins 2004 á heimasíðu enska
knattspymusambandsins.
Lampard hlaut yfirburðakosn-
ingu og fékk um 40% atkvæða.
Næsmr kom imgstimið Wayne
Rooney með 16% atkvæða, þriðji
var Steven Gerrard hjá Liverpool,
fjórði Ashley Cole hjá Arsenal og
Shaun Wright-Philips leikmaður
Manchester City var fimmti.
Athygli vakti að hvorki fyrirliði
Englands, David Beckham, né fé-
lagi hans hjá Real Madrid, Mich-
ael Owen, náðu topp fimm í kjör-
inu. „Þessi verðlaun em mikilvæg
fyrir mig og það kom mér á óvart
að heyra að ég fengi fleiri atkvæði
en maður eins og Wayne Rooney.
Það er gaman til þess að vita að
maður á dygga stuðningsmenn
um allt land“, sagði Lampard,
sem fór mikinn á síðasta ári bæði
með hði Chelsea og sem fasta-
maður í enska landslið-
íslenska handboltalandsliðinu var svo sannarlega refsaö fyrir mistökin á
stórmótum síðasta árs. Dæmi um það má sjá í hraðaupphlaupsmörkum
mótherjanna á EM í Slóveníu og ólympíuleikunum í Aþenu.
Odyp mörk mótherjanna dýrkevpt
Islenska landsliðið í handbolta var eitt af þeim fyrstu sem nýtti
sér nýja reglubreytingu um hraða miðju og á Evrópumótinu í
Svfþjóð og á heimsmeistarakeppninnni í Portúgal ári síðar
skoraði íslenska liðið 99 fleiri hraðaupphlaupsmörk en
andstæðingamir. Ein af ástæðum lélegs gengis íslenska liðsins á
síðasta ári kristallaðist örugglega í sömu tölfræði sem nú var
okkur óhagstæð enda fengum við á okkur 2 fleiri
hraðaupphlaupsmörk en við skoruðum sjálfir á stórmótum
síðasta árs - EM í Slóveníu og ólympíuleikunum í Aþenu.
Guðmundur Guðmundsson gjör-
breytti hraðaupphlaupum íslenska
liðsins, Ólafur Stefánsson og
Patrekur Jóhannesson báru upp
boltann á víxl og það var frábært að
fylgjast með íslenska liðinu skora 9,8
hraðaupphlaupsmörk að meðaltali
á EM í Svíþjóð 2002 og HM í
Portúgal 2003. Árangurinn stóð ekki
á sér, liðið endaði í 4. sæti á EM og í
7. sæti á HM ári síðar.
Farnir að lesa íslenska liðið
Mótherjarnir gerðu sér vel grein
fyrir þessum hættulegu hraðaupp-
hlaupum íslenska liðsins og á
síðasta ári virtist sem hinar
þjóðimar væru búnar að finna leiðir
til þess að hægja á íslenska liðinu.
Á síðasta ári tók íslenska lands-
liðið þátt í tveimur stórmótum og
þar fengu strákarnir okkar að
kynnast hinni hliðinni á hraða-
upphlaupunum - að vera refsað
hvað eftír annað fyrir mistök sín
með ódýrum mörkum mótheijanna.
íslenska liðið útfærði áfram vel
hraðar sóknir sínar á síðasta ári og
skoraði 39 af 81 hraðaupphlaups-
mörkum sínum í svokallaðri
annarri bylgju - hröðum sóknum
áður en mótherjarnir ná að stilla
upp í vörn.
En það var í hraðaupphlaupum
skomðum í fyrstu bylgju þar sem
mótherjarnir refsuðu strákunum
fyrir mistökin, enda fékk íslenska
liðið á sig 58 hraðaupphlaupsmörk
á stórmótum síðasta árs þar sem
leikmaður andstæðinganna slapp
einn í gegn. Oft var það á
úrslitastundu í leikjunum þar sem
sóknarleikur íslenska liðsins var í
molum og nokkur hraðaupphlaups-
mörk mótherjanna gerðu út um
leikinn. íslenska liðið sem hafði
unnið 10 af 17 leikjum sínum á EM
2002 og HM 2003 vann aðeins 2 af 9
leikjum á stórmótum síðasta ári.
Viggó Sigurðsson hefur tekið við
íslenska liðinu og nú verður
fróðlegt að sjá hvernig íslenska Uðið
• Alltof algeng sjón Guðmundur Hrafn-
\ kelsson kemur hér engum vörnum við þegar
ts Kóreumenn skora eitt afmörgum hraða-
~ upphlaupsmörkum sínum ú Ólympíuleik-
- unum f Aþenu í fyrra. DV-mynd Teitur
kemur til með að útfæra
hraðaupphlaupin sín
undir hans stjórn.
Róbert Gunnarsson
hefur raðað mörkum
undir stjórn Viggós og er
einn af mörgum ungum
og fótfráum leikmönn-
um liðsins sem ættu að
geta stungið andstæð-
inganna af á sprettinum.
Eitt er víst - hraða-
upphlaupin eru nauð-
synlegt vopn fyrir þjóðir
sem ætla sér að vera í
fremstu röð.
ooj@dv.is
Skeifunni 19 Póstkröfusími 581 4488 ljosogorka@ljos.is