Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Side 61

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Side 61
r*V Fréttir LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 61 Sendiherra hættir Bjöm Dagbjarts- son, sendiherra í Maputo í Mósam- bík, hefur látið af störfum að eigin ósk. Björn varð fyrsti sendiherra ís- lands í Afríku árið 2001, en sú ákvörðun að koma á sendiráði í Mósambík var nokkuð umdeild. Bjöm var áður framkvæmdastjóri Þróun- arsamvinnustoftiunar ís- lands, alþingismaður og forstjóri Rannsóknarstofn- unar sjávarútvegsins. Vélsleðamenn brjóta lög Lögreglan í Kópavogi vill koma því á framfæri að vélsleðaakstur er með öllu bannaður í Bláfjöllum. Nokkuð hefur verið um að vélsleðamenn fari um svæðið og keyri jafnvel nið- ur skíðabrekkur - innan um fólk á skíðum. Lögregla og forráðamenn í Bláfjöllum segja vélsleðamennina valda slysahættu en það mun hins vegar heiglum hent að hafa hendur í hári þeirra og svo virðist sem þeir skilji ekki bannskiltin sem blasa við þeim. Mildi þykir að ekki hafi enn orðið árekstur skíðamanns og vélsleða. (9) ' Gaukur ekki í píkuráni Wilhelm Norðfjörð, eig- andi Gauks á Stöng, vill taka það fram að Bogi Bjamason tónleikahaldari er ekki á vegum staðarins. Björn gerði á dögunum til- raun til að fá hljómsveitina Alabama Thundurpussys til að leika á Gauki á Stöng í byrjun apríl frekar en á Grand rokk eins og staðið hafði til og enn er á dag- skrá. „Bjarni sóttíst eingöngu eftir því að leigja Gaukinn eins og öllum er velkomið að gera. Hann er ekki á okkar vegum," segir Wilhelm. Frumlegt sjálfsmorð Maður að nafni Wolfgang Persieck komst heldur betur í fréttirnar á laug- ardaginn þegar hann framdi heldur óvanalegt sjálfsmorð. Þessi fimmtugi Banda- rikjamaður tók líf sitt með því að binda reipi utan um hálsinn á sér og hinn endann í ljósa- staur, setjast inn í bíl og gefa bensínið í botn. Inni í bílnum fannst fjöldinn allur af sjálfsmorðsbréfum. Það voru tveir unghngar sem komu að manninum. Þá lá höfuð hans í aftursæti bfls- Páll Þórðarson vill fá að umgangast börnin sín en fær það ekki út af nálgunar- banni barnsmóður sinnar og sambýlismanns hennar, Helga Áss Grétarssonar. Páll segist hafa umgengist barnsmóður sína með hennar leyfi á þeim tíma sem hann er sakaður um að hafa rofið nálgunarbann og því hafi hann setið saklaus í fangelsi. Fékk aö gista hjá baras- máðar á meðan hann var i nalgunarbanni Maður sem er ákærður fyrir að rjúfa nálgunarbann, segist hafa fengið að gista á heimili barnsmóður sinnar á þeim tíma sem nálgunarbann stóð yfir. Hann vill fá að umgangast börnin sín. „Ég svafheima hjá henni, það var ekkert samlíf eða slíkt en hún leyfði mér að vera hjá sér.‘ Páll Þórðarson, sem hefúr verið ákærður fyrir að rjúfa nálgun- arbann gagnvart barnsmóður sinni, Ólöfu Völu Ingvars- dóttur, og sam- býlismanni hennar, skákmeist- aranum Helga Áss Grétars- syni, seg- ist hafa setið sak- laus í fangelsi. Páll seg- ir að hann hafi fengið að sofa á heimili barns- móður sinnar með hennar leyfi á þeim tíma sem nálg- unarbannið var í gildi. „Ég svaf heima hjá henni, það var ekkert samlíf eða slíkt en hún leyfði mér að vera hjá sér. Þetta var 10. febrúar 2004, daginn sem ég varð fertugur," segir hann. Páll nefnir einnig dæmi um það hvernig hann hafi umgengist barnsmóður sína á meðan hún gekk með yngsta barn sitt sem hún á með Helga Áss. Hann var settur í gæsluvarðhald vegna hótana í garð barnsmóður sinnar og HelgaÁss og rof á nálgunarbanni. Vill umgangast börn sín Páll finnur að því að hann fái ekki að umgangast börnin sín þrjú sem hann á með Ólöfu Völu. Hann telur sig eiga fullan rétt á því. Lög- maður hans, Jón Magnússon, hefur skrifað bréf um það fyrir hans hönd til lögreglustjórans í Reykjavík. „Hann vildi fá að vita hvernig hann eigi að haga sér ef börn hans hlypu til hans ef þau yrðu á vegi hans,“ segir Jón. Páll heldur því fram að þau skipti sem hann er sakaður um að hafa rofið nálgunarbann, hafi hann einfaldlega rekist á fólkið á förnum vegi, skammt frá heimili sínu og er reiðubúinn til að tjá sig nánar um þau mál síðar. Dæmdur fyrir ofsóknir og ofbeldi DV hefur fjallað um mál Páls og Páll Þórðarson Segist hafa sofið f húsi barnsmóður sinnar. átökin sem hafa staðið um sam- skipti hans við barnsmóður sína og Helga Áss. Hann var dæmdur í fyrrasumar fyrir ofsóknir á hendur Helga og fjölskyldu hans og sat inni í hálft ár. Fyrir dómi lýsti Ólöf Vala því hvernig sambúðin hafi verið með Páli á meðan hann var í óreglu. Einnig var því lýst hvernig hann beitti Helga Áss ofbeldi. Páll var leystur úr gæsluvarðhaldi fýrir viku vegna þess sem Egill Stephensen, saksóknari hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík, kallaði mistök í samtali við Fréttablaðið. Fer huldu höfði Núna gætír Páll sín hins vegar á að koma hvergi nærri heimili bams- móður sinnar fyrrverandi og vaktar gömr og strætisvagna. Páll fer huldu' höfði þessa dagana og vill ekki að lögreglan finni hann þar sem honum hefur verið stefnt fýrir dóm vegna ákæru lögreglunnar um rof á nálg- unarbanni. I tvígang hefur lögreglan reynt að fá Pál til að mæta fyrir dóm til að hægt sé að þingfesta málið en það hefur ekki tekist. Hvorki Helgi Áss né Ólöf Vala hafa viljað tjá sig um málið. Sakarkostnaöur fellur á fátækling Lögreglustjóri gerir aðför að öryrkja Ragnar Aðalsteinsson hefur stefnt lögreglustjóraembættinu í Reykjavík fyrir héraðsdóm. Ragnar segist ætla að láta á það reyna hvort ákvæði um ókeypis réttaraðstoð í sakamáli, sam- kvæmt 6. grein mannréttindarsátt- mála Evrópu, gildi hér á landi. Skjólstæðingur Ragnars í málinu er kona, öryrki og öreigi, sem var fyrir tveimur árum dæmd fyrir ölvun- araksturs. Vegna kostnaðarsamrar efnafræðirannsóknar varð sakar- kostnaðurinn afar hár, eða nokkur hundruð þúsund krónur. Konan gat ekki borgað og hafa innheimtuað- gerðir staðið yfir. Meðal annars hefúr árangurslaust fjárnám verið gert að kröfu lögreglustjórans í Reykjavík þrátt fyrir að varnir hafi verið hafðar uppi við fjámámsaðgerðina. Ragnar segir að konan eigi rétt til Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur „Þeir sem eru fátækir eiga rétt á ókeypis vörn." ókeypis vamar vegna örbirgðar. „Þeir sem em fátækir eiga rétt á ókeypis vöm ef málið mælir með því. Þama er sakarkostnaður látínn falla á konu sem er öryrki og öreigi," segir Ragnar sem telur að skýra löggjöf vantí um þessi mál hér á landi. Því sé þetta mál fordæmisgefandi. Nýju talmálsútvarpsstöðina vantar nafn Þjóðin fær að finna nafnið „Við höfum brotið heilann lengi og mörg álitleg nöfn hafa komið upp en ekkert hefur slegið svo í gegn að það hafi orðið ofan á. Því leitum við til þjóðarinn- ar og vonumst til þess að hún lumi á skemmtileg- um uppástungum,“ segir Illugi Jökulsson útvarpsstjóri. Nýja talmálsútvarpsstöðin, sem hefur hingað til gengið undir vinnuheitinu Gufan, á að fá alvöru nafn og skulu hugmyndir að nafni koma frá þjóðinni. Hægt er að leggja inn tillögur á visir.is og Illugi segist vonast til að viðbrögðin verði góð „Það verður allt tekið til greina sem kemur inn,“ segir Illugi. Vegleg verðlaun eru í boði lyrir bestu uppástunguna; utanlandsferð fyrir tvo til Ítalíu. Illugi segist reikna með að útvarpið fari í loftið föstudaginn 11. febrúar en þá eigi allt að vera tilbú- ið. Starfsmenn stöðvarinnar hafi unnið nótt og dag við að skipu- leggja og setja upp dagskrá sem hann vonast til að sem flestir muni hafa áhuga á. „Þetta verður^ skemmtilegt og áhugvert efni, eitthvað fyrir alla,“ segir hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.