Bræðrabandið - 01.05.1978, Blaðsíða 12
„ÞAU SÖGÐU
MÉR
ALDREI
FRÁ ÞVÍ”
AÐ GEFA MÖNNUM AÐ BORÐA OG EKKI AÐ
ELSKA ÞÁ ER AÐ KOMA FRAM VIÐ ÞÁ
EINS OG ÞEIR VÆRU NAUTGRIPIR.
EFTIR STEVE CINZIO
Þegar ég kom inn í skólastofuna
virtust allir nemendur mínir vera önnum
kafnir við lærdóminn. Georgina renndi
augunum til mín augnablik en hélt svo
áfram við vinnu sína.
Ég fór krókaleið að borðinu hennar
svo lítið bar á. HÚn leit upp, brosti
og sagði hálfhvíslandi: "halló." Ég
endurgalt kveðjuna og spurði:"Viltu
gjöra svo vel að leyfa mér að sjá
verkefnið þitt?"
"já, kennari," svaraði hún og
fletti síðumam til baka að fremstu síðu.
Þegar hún fletti síðunum tók ég
eftir orðunum "elska". Skærlitað
hjarta náði í kringum orðið. Og síðan
- ég á erfitt með að lýsa hvernig mér
var innanbrjósts - komu þessi orð úr
innstu fylgsnum Georginu, orðin sem
töluðu af síðum bókarinnar. Orðin
hrópuðu boðskap sinn svo sterkt og
átakanlega en sjálf sagði hún: "ég
býst við að foreldrar mínir elski
mig. En þeir hafa aldrei sagt mér
það."
í skyndi reikuðu hugsanir mínar
aftur heim til mín þar sem ég hafði
verið um morguninn, hugur minn reyndi
að finna frið, reyndi að finna jákvætt
Steve Cinzio er kehnari við Alaqa barna-
skólann í Alawa i Norður hluta Ástralíu.
Grein úr Review 12.jan 1978
svar við spxiringunni sem endurómaði
í huga mér: "Sagði ég ástvinum mínum
í dag að ég elskaði þá?"
Stafirnir á síðunni urðu ógreini-
legir og ég gat ekki lesið meira.
Ég þakkaði unga nemandanum kiirteis-
lega og fór út úr skólastofunni. Ég
gekk um í hópi hamingjusamra og hlægj-
andi barna.
Getur þú munað eftir því hvenær
þú sagðir síðast þeim sem eru þér
nánastir að þú elskir þá? Það sorglega
við núverandi kynslóð að það eru
milljónir af Georgínum sem ekki eru
elskaðar.
Á þessari vélaöld er svo auðvelt að
renna skeið lífsins án þess að stansa
og hvísla orðin: "ÞÚ ert mér svo mikils
virði.
Hann var bara óþekktarormur úr
fátækrahverfi eftir því sem sagan segir.
Hann þáði með semingi boð um það að
dvelja um tíma á sveitabýli við kyrr-
látt stöðuvatn.
Nokkur barnanna fóru að byggja
fleka úr gömlxim viðardrumbum. Enginn
bað hann um að hjálpa til. Hann bara
starði á drengina sem voru önnum kafn-
FRAMHALD A BLS. 6
12