Bræðrabandið - 01.08.1978, Blaðsíða 14
Þær skemmtanir eru góðar sem eru
samfara gleði og þær slæmar sem fyrir-
byggja gleði.
Er fögnuður það sama og hamingja?
Svo kann að vera. En fögnuð'má líka
telja meiri en hamingju. Hamingju
má skýrgreina sem hugarástand sem
varir lengri eða styttri tíma og er
háð mörgum skilyrðum - bæði ytri og
innri. Séu þessi skilyrði fjarlægð
verður persónan vansæl. Fögnuður er
ekki háður umhverfi.
Kristileg\ir fögnuður er hugsanlegur
bæði í gleði og sorg, í sælu og van-
sælu. Þar sem er fögnuður þar er fyll-
ing og þar sem er fylling þar er fögn-
uður.
Er hægt að fagna í ofsókn? Augljós-
lega er það hægt. Jesús sagði: "Sælir
eruð þér, þá er menn atyrða yður og
ofsækja og tala Ijúgandi allt illt um
yðiir mín vegna. Verið glaðir og
fagnið, því að laun yðar eru mikil í
himnunum; því að þannig ofsóttu þeir
spámennina, sem voru á undan yður"
Matt.5,11.12.).
Getum við fagnað þegar voði ber að
dyrum? Habakúk talaði um skelfilegan
voða en hlýðið samt á vitnisburð hans:
"ÞÓtt fíkjutréð blómgist ekki og vín-
trén beri engan ávöxt, þótt gróði
olíutrésins bregðist og akurlöndin
gefi enga fæðu, þótt sauðfé hverfi úr
réttinni og enginn naut verði eftir í
nautahúsunum - þá skal ég þó gleðjast
í Drottni fagna yfir Guði hjálpræðis
míns" (Habakúk 3,17.18).
Já fögnuður er hugsanlegur fyrir
hinn kristna mann þó að voðinn berji
að dyrum.
Það er óþarfi að geta þess að við
þurfum ekki að bíða eftir ókominni
tíð til þess að eignast þennan fögnuð.
Ég minnist sálmaversins:
I
"Eilíf gleði,eign mín dýrst á engin
bönd.
Allt er bjart í hjarta mér.
Syngja mun ég sönginn þann á sólarst
strönd,
syngur gleði'í hjarta mér."
* ■¥■
Það er morgunn, það er gleði'í hjarta
mér.
Því að Jesús allar mína byrðar ber.
Syng ég gleðisönginn minn:
Sjá þú Jesúm, konung minn. -
Það er morgunn, það er gleði'í hjarta
* II
mer.
Já það verður fögnuður,mikill fögn-