Bræðrabandið - 01.08.1978, Blaðsíða 15
uður en ekki aðeins fögnuour í fram-
tíðinni heldur fögnuður nú. Það eru
forréttindi kristinna manna að vera
glaðir í daglegu lífi og sýna þann
fögnuð á ásjónum sínum.
Hvernig getum við öðlast slíka
reynslu?
í sæluboðununum gaf Jesús forskrift
fyrir fögnuði í hinu kristna lífi.
Sælx±ioðanirnar má telja sem kjarna
kenninga Krists. Þær setja fram guð-
lega formúlu fyrir hamingjusömu og
fagnaðarriku lífi.
Gríska orðið makarios sem notað er
í sæluboðununum er ýmist þýtt í Biblíu-
þýðingum "blessaðir" eða "sælir".
Auk þess má geta þess að þar
sem engar sagnir eru í fyrstu línu
hverrar sæluboðunar má skoða hverja
setningu sem upphrópxin fremur en yfir-
lýsingu. Þá mætti þýða hverja grein
þannig: "Ó, sú hamingja," eða "ó,
sú sæla".
í sæluboðununum kemur frarn þrefaldur
fögnuður. í þeim segir Jesús að (1)
fögnuður veitist hverjum manni í mestu
neyð hans og þegar hann finnur hvar
hægt er að uppfylla þá neyð - í Jesú
Kristi og réttlæti hans. (2) Fögnuður
veitist í því að lifa hinu kristna
lífi - vera auðmjúkur, kærleiksríkur,
hjartahreinn og friðflytjandi. (3)
Fögnuður fæst fyrir það að hlýða Jesú
jafnvel þótt það kosti þjáningar og
ofsóknir.
Sá kristni maður sem lifir eftir
meginreglum fjallræðunnar og sérstak-
lega sæluboðananna getur verið viss
um að eiga gleði og hamingju í lífinu
og verið stöðugur vitnisburður um upp-
fyllingu loforða Jesú.
□