Bræðrabandið - 01.10.1978, Blaðsíða 2
Boðskapur frá starfsmönnum
heimssambandsins
Sennilega hefur engifm annar hópur Sjöunda dags aðventista betri tœkifœri til að sjá
þarfir alheims safnaðarins en starfsmenn heimssambandssins. Aðalstöðvar heimssam-
bandsins eru í stöðugu sambandi við alla hluta heimsinsþar sem fólk Guðs lifir og starfar.
Á hverjum vinnudegi streyma hundruð bréfa, skýrslna, símskeyta og telexboða inn og út
frá höfuðstöðvunum. Alltaf eru fulltrúar heimssambandsins í heimssókn á einhverju svœði
heimsins. Fá trúfélög hafa jafn mikið samband við sína dreifðu meðlimi og Sjöunda dags
aðventistar.
Hvað sjá stjórnarmenn í aðalstöðvunum sem mestuþörf safnaðar Guðs á þessum sérstaka
tima í heimssögunni?
Ánþess að hika getum við svarað: Andlega endurnýjun fyrir hvern einstakan meðlim. Með
því að segja þetta ýtum við samt ekki til hliðar öðrum knýjandi þörfum sem við horfumst i
augu við svo sem: fleira starfsfólk, meiri peninga, frelsi, bókmenntir, stofnanir, tœki.
Listinn er endalaus. En fyrst og fremst er það þörfin fyrir andlega vakningu, persónulega
helgun til Jesú Krists, daglegt samfélag við hinn lifandi Guð, helgun gagnvart starfi
safnaðarins.
Bœnavikan er tœkifœri fyrir hvert okkar og okkur í heild að helgast Guði og öðlast
andlega endurnýjun.
í fyrsta lagi má geta þess að fyrirheit Guðs eru skýr. Jakob skrifar: „Kröftug bœn réttláts
manns megnar mikið."(5,16)
Mikill kraftur stendur okkur til boða fyrir bœn. Ellen White segir: „Bœnin er andardrátt-
ur sálarinnar. Hún er lykillinn að andlegum mœtti. Engin önnur náðarmeðul geta komið í
stað hennar ef á að varðveita heilsu sálarinnar“ GW 245, 255. Hún bendir á að „hersveitir
Satans skjálfi við hljóminn af ákafri bœn.“— ÍT bls. 336.
I öðru lagi vitum við af eigin reynslu hvaó bœnin getur gert. Við minnumst þess þegar við
lítum til baka á veru okkar í aðventskólum og hugsum umþað sem bænavikan þar gerði fyrir
okkur. Þar fundu sum okkar frelsarann í fyrsta sinn. Við tókum ákvörðun okkar. Við hófum
náið samfélag við Krist á ákveðinni bœnaviku. Guð er ekki öðruvísi núna. Fjársjóðir hans
eru enn til reiðu. Hann hefur aldrei verið fúsari en nú að veita mönnum það besta sem
himinninn hefur upp á að bjóða.
Kœrleikurinn er efnið í bœnalestrum fyrir árið 1978. Reyndir starfsmenn víðs vegar að
hafa ritað þessi efni sem œttu að ná til allra manna. Við trúum því að höfundar lestranna
hafi lagt sig alla fram til að veita af tifsreynslu sinni og hafi gert sitt besta við samningu
þessara lestra.
Við bjóðumþér innilega að taka virkanþátt í bœnaviku 1978. Mikill máttur stendur okkur
til boða tilþess að uppfyllaþarfir tiðandi stundar. Það er gott fyrir okkur að minnastþess að
„það er hluti af áformi Guðs að veita okkur svar við bœnum, sem sprottnar eru af trú, og
veita okkur þannig það, sem hann mundi ekki láta okkur í té, ef við bœðum þess ekki. “
Deilan mikla bls. 543.
2