Bræðrabandið - 01.10.1978, Blaðsíða 5
sannkristinn maður mun þróa í lífi sínu einkenni
þessa guðlega kærleika. Hann mun sýna í lífi sínu
anda umburðarlyndis, velvilja og lausn frá öfund og
afbrýðisemi. Sé þetta lunderni þroskað og látið koma
fram í orðum og athöfnum mun það ekki vera kalt,
það mun ekki styggja og það mun ekki vera áhuga-
laust um málefni annarra. Sú persóna sem ræktar
með sér hina dýrmætu jurt kærleikans mun sýna
sjálfsfórn í anda og mun hafa stjórn á sjálfri sér þrátt
fyrir móðganir og árásir. Sú persóna mun ekki ætla
öðrum illt en mun finna sárt til yfir syndum annarra,
einkum þegar þær koma fram hjá lærisveinum Krists.
Kærleikurinn hreykir sér ekki upp. Hann er auð-
mjúkur. Hann ýtir aldrei undir stolt eða stærilæti og
hefur sig ekki upp. Kærleikur til Guðs og til samferða-
mannanna mun ekki birtast í hrjúfri framkomu eða
leiða okkur til gagnrýni eða einræðiskenndar. Kær-
leikurinn hreykir sér ekki upp. Hjarta þar sem
kærleikurinn ríkir mun leiðast til þess að vera blítt,
kurteist og samúðarfullt í hegðun sinni gagnvart
öðrum hvort sem þeir eru eftir okkar vilja eða ekki,
hvort sem þeir virða okkur eða koma illa fram við
okkur. Kærleikurinn er virk meginregla. Hann hefur
stöðugt fyrir hugskotssjónum það sem er öðrum til
góðs og heldur þannig aftur af okkur þegar vill skorta
á hugsunarsemi hjá okkur svo við verðum ekki til þess
að fæla sál í burtu frá Kristi.14
Umrœðuefni okkar á himnum
Hinn dásamlegi tilgangur náðarinnar, leyndardóm-
ur endurleysandi kærleika er það efni sem „englarnir
þrá að líta í“ og það mun vera rannsóknarefni þeirra
um endalausar tíðir. Bæði hinir endurleystu og ófalln-
ir englar munu finna í krossi Krists vísindi sín og söng.
Það mun koma í ljós að sú dýrð sem skín af ásjónu
Jesú er sú dýrð sem skín af sjálfsfórnandi kærleika. I
því ljósi sem skín frá Golgata mun það birtast að
lögmál sjálfsfórnandi kærleika er lögmál lífsins fyrir
himin og jörð, að sá kærleikur sem „leitar ekki síns
eigirí* á uppsprettu sína í hjarta Guðs. Og að hjá
Kristi sem var auðmjúkur og lítillátur birtist lunderni
hans sem býr í því ljósi sem enginn maður getur
komist til.15
Og er eilífðarárin líða fram munu þau færa mönn-
unum enn dýrlegri opinberanir um Guð og um Krist.
Eins og þekkingin er framsækin, þá mun kærleikur,
virðing og hamingja vaxa. Því meira sem menn læra
um Guð, þeim mun meiri verður aðdáunin á eðli han.
Þegar Jesús opinberar þeim auðæfi endurlausnarinne
og hið dásamlega verk hans í hinni miklu deilu vi
Satan, þá munu hjörtu hinna endurleystu fagna í enn
heitari hrifningu og frá sér numdir munu þeir slá
gullhörpurnar og tíu þúsund sinnum tíu þúsundir og
þúsundir þúsunda radda munu fylla loftið máttugum
lofsöngvum.
„Og sérhverja skepnu, sem er á himni og á jörðu og
undir jörðinni og á hafinu, og allt sem í þeim er, heyrði
ég segja: Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu sé
lofgjörðin og heiðurinn og dýrðin og krafturinn um
aldir alda“ Op. 5,13.
Hin mikla deila er til lykta leidd. Synd og syndarar
eru ekki lengur til. Gjörvallur alheimurinn er hreinn
orðinn. Eitt hjarta samlyndis og fagnaðar slær um
óravíddir sköpunarverksins. Frá honum, sem skóp
allt, flæðir líf og ljós og fögnuður um öll svið hins
endalausa geims. Frá hinni smæstu öreind til hinnar
stærstu veraldar, kunngjöra allir hlutir, lifandi og
dauðir, í skuggalausri fegurð sinni og fullkomna
fögnuði, að Guð sé kærleikur.16
Spurningar til umrœði:
1) Hvaða lögmál er undirstaða ríkis Guðs? Hvernig
er það lögmál sett fram á einfaldastan hátt? Sjá
Matt. 22, 36—39. Hvernig eru þessi tvö boð sett
fram á ítarlegri hátt fyrir syndara? Sjá 2. Mós.
20,3—17; Róm. 13,8—10.
2) Hvers vegna var Jesús sá eini sem gat opinberað
kærleika Guðs til fallins mannkyns?
3) Hvaða blessanir hijótast af dauða Krists á kross-
inum?
4) Hversu mikið elskar Guð okkur? Getum við
borið sama kærleika til annarra eins og Guð
hefur til okkar? Ef svo er, hvernig? Ef ekki, hví
ekki?
5) Hversu nauðsynlegt er það fyrir mig að vera
kærleiksríkur kristinn maður? Gagnvart hverj-
um?
6) Gefið lýsingu á þeim kristna manni sem í sann-
leika endurspeglar kærleika Krists.
7) Hvað mun verða rannsóknarefni manna og engla
um endalausar tíðir eilífðarinnar?
Tllvitnanlr:
1. Patriarchs and Prophets, bls. 33—35
2. Vegurinn b'l Krists bls. 22
3. Sama bók bls. 15
4. The Desire of Ages bls. 22
5. Sama bók bls. 57
6. Vitnisburöirnir 5. bindi bls. 739, 740
7. Fundamentals of Christian Education bls. 179
8. The Desire of Ages bls. 578
9. Sons and Daughters of God, bls. 52
10. Sama
11. The Desire of Ages bls. 503, 504
12. Vitnisburðirnir 2. bindi bls. 132,133
13. Christ's Object Lessons, bls. 384, 385
14. VitnisburöirnirS. bindi bls. 123,124
15. The Desire of Ages bls. 19, 20
16. Deilan mikla bls. 708
5