Bræðrabandið - 01.10.1978, Page 18
vandamálum og leitt til þess að þeir hafa unnið sigur í
reynslum sínum? Það er kærleikur Guðs! Kærleikur-
inn varir við jafnvel þegar erfitt er að skilja kringum-
stæðurnar. Þegar við þurfum á að halda algjörri trú
og engu öðru heldur kærleikurinn það út. Það er ekki
alltaf auðveldur vegur. Það er vegur algjörrar trúar á
Guð og kærleika til hans.
Hvernig geturn viö kynnst kœrleika sem varir?
Helsta dæmið um kærleika sem varir er sá kærleik-
ur sem birtist hjá Jesú Kristi. Ein ástæða fyrir því að
Jesús kom var að sýna okkur að Guð er kærleikur og
að þjáningar, sjúkdómar, eymd og dauði eru afleiðing-
ar af verki Satans. í Getsemanegarðinum, þegar Jesús
horfðist í augu við kvalir krossins og syndabyrðin
hvíldi á honum, hrópaði hann til Guðs: „Ef mögulegt
er þá víki þessi bikar frá mér“ (Matt. 26, 39). Jesús
þurfti ekki að deyja. Það var engin synd hjá honum.
Hann þurfti ekki að líða kvöld og hneisu krossfesting-
arinnar. Það var mögulegt fyrir hann að láta bikarinn
fara framhjá. Hann hefði með einu orði getað slegið
ákærendur sína.
En Jesús kom til þess að sanna í eitt skipti fyrir öll
að kærleikurinn heldur það út og jafnvel þó að
maðurinn hafi reikað frá Guði svo að mynd Guðs
hafði verið næstum því þurrkuð út var kærleikur hans
til mannsins aldrei á þrotum. Allt frá því að maðurinn
syndgaði og á öllum flótta mannsins frá Guði og í
djúpum spillingar hans sagði Guð við hann: „Ég elska
þig enn.“ Og Jesús Kristur kom til þess að sanna það!
Svo að Jesús fór á Golgata kraminn og kvalinn með
þyrnikórónu á höfðinu. Grimmir menn ráku nagla í
gegnum hold hans. Lýðurinn við krossinn hrópaði á
blóð hans. Þeir gerðu gys að honum, hlógu að því að
hann segðist vera Messías. Á því augnabliki sem
grimmd mannsins náði hátindi sínum hrópaði Jesús:
„Faðir fyrirgef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra“
(Lúk. 23, 34). Hví bað hann slíkrar bænar undir
slíkum kringumstæðum? Vegna þess að kærleikur
hans til okkar varaði við.
Það er þetta dæmi um óviðjafnanlegan kærleika
Guðs sem fær þig og mig til þess að treysta Guði. Við
trúum því að ef við treystum honum fyrir öllu mun
hann sjá um að allt endi vel. Það var þetta fordæmi
Jesú Krists sem fékk fyrstu lærisveinana til þess að
standast alls konar erfiðleika. Það var hægt að varpa
þeim fyrir Ijón, brenna þá við píslarstaurinn, drekkja
þeim í ám og láta þá þola alls konar hrylling af því að
þeir elskuðu Drottin og kærleikur þeirra varaði við!
Ekki missa kjarkinn þegar þú horfist í augu við
vandamál dagsins í dag. Þetta er höfuðvopn óvinarins
sem hann notar með svo góðum árangri gegn fólki
Guðs. Hann hvíslar í eyru okkar að Guð elski okkur
ekki meira því við verðum fyrir vandræðum og
reynslu. Ekki missa kjarkinn eða draga kærleika Guðs
í efa þó að framhjá þér sé gengið við stöðuhækkun eða
þú náir ekki kjöri í ákveðna stöðu eða þó að safnaðar-
fólkið hafi ekki nefnt nafn þitt í sambandi við
velgengni ákveðinnar áætlunar sem þú áttir hlut í.
Kærleikur hans heldur það út.
Vonbrigði er það svefnlyf sem óvinurinn dælir inn í
æðar þínar rétt áður en hann fjarlægir hjartað úr þér.
18
Óvinurinn er yfirunninn óvinur. Jesús hitti hann í
Getsemanegarðinum og sigraði hann þar og síðan fór
hann til krossins og dó sigrihrósandi. Hróp Jesú: „Það
er fullkomnað“ var í raun og veru sigurhróp (Sjá
Desire of Ages bls. 758). Það óp hljómaði sem líkbjalla
óvinarins. Á hinum dýrðlega upprisumorgni hrópaði
Jesús og sagði: „Ég er hinn fyrsti og hinn síðasti og
hinn lifandi. Og ég var dauður, en sjá lifandi er ég um
aldir alda og ég hefi lykla dauðans og heljar.“ (Op. 1,
18).
Hver sá sem treystir Jesúm mun sigra. Dragðu það
aldrei í efa. Gefstu aldrei upp. Trúðu aldrei lygum
óvinarins heldur teygðu þig fram og treystu Guði.
Taktu hann á orðinu og einn dýrlegan daginn munu
það vera forréttindi þín að líta upp og segja: „Sjá þessi
er vor Guð, vér vonuðum á hann að hann mundi frelsa
oss, þetta er Drottinn, fögnum og gleðjumst yfir
hjálpræði hans“ (Jes. 25, 9). Það verður sigurstund. Þá
mun trú okkar víkja fyrir því sem við sjáum. Þjáning
okkar og sorg mun víkja fyrir hamingju og fögnuði því
að kærleikurinn mun þá hafa sigrað allt.
Spurningar til umrœðu:
1) Gerði ástríkur Guð slæman óvin? Hvers vegna
eyddi Guð ekki Lúsifer á því augnabliki sem
hann syndgaði.
2) Hvers vegna verður gott fólk sem Guð elskar að
þjást? Eru þjáningar merki um það að Guði
mislíkar við okkur?
3) Hvaða lexíu getum við lært af reynslu Jobs?
4) Hvað er sambandið milli freistingar og syndar?
5) Hví er kærleikur svo mikið grundvallaratriði í
því að horfast í augu við vandamál lífsins?
6) Ræðið setninguna: „Ef þið viljið vita hvernig
Guð er þá skulið þið líta til Krists.“
7) Hvernig er sambandið á milli þess að vera trúr
Guði og þess að sýna kærleika og þolgæði?
8) Hvernig túlkar þú Rómverjabréfið 8, 28?
9) Hvernig mega kristnir menn vera bjartsýnir
þrátt fýrir reynslur og vonbrigði?