Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 6
sem til er, og vertu aðnjótandi þeirrar
ánægju að leiða einhvern til frelsandi
þekkingar á 3esú.
SPURNINGAR TIL UHRÆÐU
1 . Eftir að hafa sinnt okkar eigin
andlegu þörfum, hvert eigum við þá að
líta?
2. Hvað vildi 3esú að við gerðum við
fullsprottna akrana?
3. Hvar koma heimili okkar og
fjölskyldur inn í myndina af
sálnavinnandi starfi?
4. Hví stofnaði 3esú kirkjuna?
5. Hvernig snertir trú okkar það sem
við snæðum, klæðumst og gerum okkur
til upplyftingar?
Neal C. Wilson er
f o r s e t i
Heimssambands
sjöunda dags
aðventista. *
Sunnudagur, 8. nóvember
UPPSKEBA
Nancy Vyhmeister er
prófessor í
Biblíulegum fræðum
guðfræðiháskóla
aðventista á
Filippseyjum.
AÐ I NDIRBÚA
JARÐVEGENN
Akurirm er heimuriiin
"Akurinn er heimurinn." - Matt. 13,38.
Þar sem enginn vetur er til að hindra
vaxtarskeiðið, getur gróðursetning og
uppskera farið fram hvenær sem er allan
ársins hring umhverfis heimili okkar á
Filippseyjum. Ég horfi hrifin á
umsvifin.
Persóna sem er í miklu uppáhaldi hjá
mér er blíður, lítill maður, sem ber
hroðalegt sax í belti. Við plæginguna
notar hann vatnabuffal og skipar fyrir
með einsatkvæðisorðum, sem einungis
vatnabuffall getur skilið. í dag fann
ég hann uppi á hólnum við að plægja
þar sem nýlega var verið að lesa af
baunir og agúrkur.
Til að bæta jörðina, sem úrfellið var
búið að þvo, hafði lyktsterku moði úr
hlöðunni verið dreift yfir jarðveginn,
sem verið var að bylta við. Vinur
minn, bóndinn, með barðastóran hatt
til verndar gegn sólinni, nam staðar
til að brosa til mín og heilsa mér,
áður en hann hélt áfram við verk sitt.
Hvað skyldi vera sett niður næst?
Vegna þess að ég skil lítið í tagalog-
máli fæ ég ekki að vita það, en þegar
litlu plönturnar fara að teygja sig
upp úr jarðveginum, sé ég það á lögun
þeirra, hvað verið er að rækta.
Á3ur en litli maðurinn og buffallinn
hans komu upp á hólinn, voru þeir tvær
vikur neðar í garðinum. Eftir að hann
var búinn að plægja allt svæðið, tók
hann til við að mynda stalla með góðri
brún að framan til að koma í veg fyrir
að vatnið læki niður hlíðina. Hann
NANCYVYHMEISTER
6