Bræðrabandið - 01.11.1987, Page 7

Bræðrabandið - 01.11.1987, Page 7
Brœðrabandið 11. 1987 hleypti vatni á hvern stallinn eftir annan þar til allir fimm voru yfir- fullir og plægði síðan saman vatn og mold þar til jarðvegurinn var orðinn á þykkt við óhrært skyr. Ég hugsaði með mér að auðvitað hlyti þetta að verða hrísgrjónaakur, því að ég hafði horft nógu lengi á hrísgrjónabændur til að þekkja það tímafreka verk að búa jarðveginn undir að hægt væri að planta hrísgrjónaplöntum í ökladjúpa leðju. Annars konar umönnun í gær sá ég að plönturnar, sem nýkomnar voru upp, hafa hjartalaga blöð. Þetta eru kangkong plöntur. Ungir sprotar og lauf af þeim eru notuð sem grænmeti með hrísgrjónum. Hvers vegna að leggja svo mikið í undirbúning jarðvegsins? "Kangkong vill helst vaxa í vatni," er mér sagt. Hinum megin á hólnum, þar sem nú er verið að plægja, er plantað kassava, tryggilega við gamlan trjábol og vökvaði hana tvisvar á dag. Hún hefur tekið við sér og fjöldi rótargreina umvafið bolinn og loks spratt fram blómstöngull. Með því að líta í kringum mig er mér að lærast, að hver jurt þarfnast sérstakrar umönnunar - jafnvel áður en sáð er eða plantað út. Undirbúningur jarðvegsins er engu síður þýðingar- mikill fyrir uppskeruna en fræið, sem sáð er í jörðina. Og ég veit að undirbúningur jarðvegsins kostar erfiði og tekur tíma. Oafnvel við að planta kassava þarf að gera holu til að planta rótinni í. Að útbúa stalla fyrir kangkong plöntur er meiri háttar fyrirtæki. Oesús notaði oftsinnis ferlið sáning - vöxtur - uppskera í dæmisögum, þar sem hann ræddi vöxt guðsríkis meðal mannanna (Matt. 13,3-9.24-32,36-43; Mark. 4,26-32; 3óh. 4,35-38). Hann benti á, hvernig jarðargróðurinn vex: UNDIRBÚNINGUR JARÐVEGSINS ER RÉTT EINS ÞÝÐINGARMIKILL FYRIR UPPSKERUNA EINS OG FRÆIÐ SEM SÁÐ ER í JÖRÐINA mjölvamiklu grænmeti, sem er notað í mörgum filippeyskum réttum. Á Vestur- löndum er það betur þekkt sem tapíóka- mjöl, en það er unnið úr kassavarót. •Kassava vex næstum hvar sem er og þarf lítið að undirbúa jarðveginn. Stöngul- hlutum er bara stungið niður í jörðina. Það hentar vel í bröttum hlíðum, þar sem nær ógerlegt er að plægja eða rækta jörðina. Upp af rótunum vaxa laufblöð eins og regnhlífar í laginu, sem óðara eru orðin að renglulegum trjám. Eftir nógu langan tíma, þegar plönturnar eru vaxnar manni upp fyrir höfuð, hefjast strákarnir handa með hlújárnin og fylla strigapoka af rótarhnýðunum. Eftir að ég kom til Filippseyja hefur vaknað áhugi hjá mér á orkídeum. Vanda orkídeur eru í uppáhaldi hjá mér en það þarf lítið um þær að hugsa og blómstra þær árið um kring. Nýlega plantaði ég einni í framgarðinum hjá mér. Það er, ég batt vanda plöntu fyrst er fræinu sáð, því næst kemur blað í ljós. Síðar sprettur axið og kornið þroskast svo að það verður tilbúið til uppskeru (Mark. 4,26-29). En Kristur ræddi aldrei um undirbúning jarðvegsins, hann bara sýndi hvernig það var gert. Aðferð Krists var sérstök eftir þörfum hvers áheyranda, rétt eins bóndinn notaði sérstaka aðferð við undirbúning jarðvegsins fyrir hverja jurt. Þegar samverska konan við brunninn var annars vegar, hóf Kristur samtalið með því að ræða um vatn- vökvann, sem hún varð að sækja daglega til að lifa af (3óh. 4,7-15). Við konuna sem staðin var að hórdómi sagði CJesús, sem var sá eini sem tók henni vel og skildi hana: "Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú." Þá fyrst gat hann bætt við andlegu f yrirmælunum, sem hún þurfti að heyra: "Syndga ekki framar" (3óh. 8,11). 7

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.