Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 10
Delbert W. Baker,
prestur og útbreið-
sluprédikari, er
sem stendur
ritstjóri tíma-
ritsins Message.
AÐ SA TIL
UPPSKERU
Mónudagur, 9. nóvember UPPSKERA
Að fylgja aðferðum sem Kristur beitti
"Uppskeran er mikil en verkamenn fáir.
Biðjið því herra uppskerunnar að senda
verkamenn til uppskeru sinnar."-
Matt. 9,37.38.
Þegar Desús prédikaði, segir Biblían,
að hann hafi litið á mannfjöldann og
fundið til með þeim vegna hinna
skelfilegu aðstæðna þeirra. Trúarlega
séð voru þau í vanda og bjuggu við
kvíða og örvilnan. Trúarleiðtogar, sem
hefðu átt að vera að fræða þau um
réttan veg, höfðu íþyngt þeim með
byrðum, sem áttu sér enga stoð í
fagnaðarerindinu.
Okkur er sagt að "Kristur hafi séð
veikindi, sorg, skort og niðurlægingu
mannfjöldans, sem þyrptist um hann"
(6T254). En það sem hann sá og með-
aumkun hans náði einnig til okkar
daga. "Hann fékk að sjá þarfir og böl
mannkynsins um víða veröld. A meðal
hárra jafnt sem lágra, þeirra, sem
mestan heiður höfði hlotið jafnt sem
hinna siðspilltustu, sá hann sálir sem
þráðu einmitt þær blessanir sem hann
hafði komið til að veita, sálir sem
þörfnuðust aðeins þekkingar á náð hans
til að verða þegnar ríkis hans" (sama
bók). í sömu grein kemur Ellen White
með sterka fullyrðingu: "í dag er sama
þörfin til staðar."
Oesús notaði tvö falleg dæmi til að
sýna fram á trúarlega þörf fólksins. í
fyrsta lagi voru þau "eins og sauðir
sem engan hirði hafa" - sundruð, hrjáð
og á flótta undan villidýrum (Matt.
9,36). Sumir voru særðir, yfirgefnir
og ráðvilltir og vissu ekki hvað gera
skyldi.
Hann líkti einnig fólkinu, sem kom
til að hlýða á hann, við ríkulega
uppskeru. Þau voru tilbúin til upp-
skeru. En umfang uppskerunnar var í
sterkri andstöðu við fæð verkamanna.
Athugasemd hans var skýr! Á þeim tíma
bjuggu íbúar Galíleu í meira en 200
borgum og þorpum. í samanburði við það
voru verkamennirnir fáir.
í sömu svipan benti Kristur á leið
til að verða við þörfinni. Biðjið
"herra uppskerunnar að senda verkamenn
til uppskerunnar," sagði hann (38.
vers).
í dag meira en nokkru sinni fyrr
Hin mikla þörf og nauðsynin á lausn
Krists eru til staðar í dag. Milljónir
manna eru að gera örvæntingarfulla
tilraun til að finna sér lífsstíl, sem
fullnægir þeim. Kynþáttahatur blossar
upp og ógnar um víða veröld. Hugsjóna-
fræðiíegar andstæður magnast dag frá
degi. Stjórnmálamenn og fjármálamenn
10
DELBERT BAKER