Bræðrabandið - 01.11.1987, Blaðsíða 13
Brœbrabandib 11. 1987
Þriöjudagur, 10. nóvember
UPPSKEBA
H.V.A. Kuma er
kennari við
guð fræðid ei1d
Háskóla aðvent-
ista í V-Afríku í
Nígeríu.
AÐ VÖKVA FYRIR
UPPSKERUNA
Núna er tími endumýjunar
"Sjáið akuryrkjumanninn, hann bíður
eftir hinum dýrmæta ávexti ... og
þreyir eftir honum, þangað til hann
hefur fengið haustregn og vorregn."-
3ak. 5,7.
Þegar við ræðum um vatn og uppskeru,
tölum við um kunnugleg hugtök, um
hagnýta hluti. í vissum skilningi er
vatn svipaðrar merkingar og líf. Okkur
öllum finnst bolli af köldu vatni
góður á heitum sumardegi. Við notum
vatn til að þvo, hreinsa, matreiða og
kæla. Skrælnuð jörðin opnar munninn
með gleði til að bergja langþráð regn
eftir ryk- og þurrkatíð. Kvíðafullir
bændur bjóða velkomnar regnskúrirnar,
því að þær eru örugg vísbending um að
lífið muni halda áfram, að fæða verði
á borðum okkar á morgun.
Þegar iðjusamur bóndinn horfir fram
til metuppskeru, neytir hann orku til
að tryggja góða uppskeru, eins mikla
orku eins og hann lagði í sáningu.
Er við snúum okkur að orði Guðs og
andlegum sviðum, finnum við að þessi
blátt áfram og hversdagslegu orð vatn
og uppskera eru þrungin merkingu. Slík
orð, sem Bibl íuhöfundar nota af
kunnáttu, hjálpa okkur að skilja
boðskap Guðs.
"Vilji fylgjandi Krists vaxa upp og
"verða fullþroska og ná vaxtartakmarki
Krists fyllingar" (Éfes. 4,13), verður
hann að eta af brauði lífsins og
bergja á vatni hjálpræðisins"
(AA284,285).
Eins og samverska konan erum við öll
í brýnni þörf fyrir andlegt vatn.
Úrkomu er þörf
Við vitum að úrkoma er nauðsynleg
til að framleiða fæðu. Samkvæmt því
sem 3akob postuli segir, "bíður
akuryrkjumaðurinn eftir hinum dýrmæta
ávexti jarðarinnar og þreyir eftir
honum, þar til hann hefur fengið
haustregn og vorregn" (3ak. 5,7).
Hér er um náttúrufyrirbæri að ræða
sem hefur að geyma mikinn andlegan
boðskap. Ellen White gefur okkur
innsýn í þessa líkingu um regnið: "Með
táknmyndinni um haustregnið og vor-
regnið, sem í Austurlöndum fellur við
sáningu og uppskeru, sögðu hebresku
spámennirnir fyrir um að kirkju Guðs
yrði veitt andleg náð í ríkum mæli.
Úthelling Andans á dögum postulanna var
upphaf vorregnsins og dýrlegar voru
afleiðingar þess .... en þegar kemur að
endalokum uppskeru jarðarinnar, er
fyrirheit um að veitt verði andleg náð
H.V.A. KUMA
13