Bræðrabandið - 01.11.1987, Side 14

Bræðrabandið - 01.11.1987, Side 14
til afl búa söfnuðinn undir komu Mannssonarins. Þessari úthelling Andans er líkt við haustregnið og eiga kristnir menn að biðja herra uppsker- unnar um þennan aukakraft" (sama bók bls. 54,55). Uppskeran markar endalok annatíma bóndans og er tími aðskilnaðar. Korninu er safnað í hlöðu, en hisminu er varpað á eld. Enn einu sinni er lærdómurinn skýr: "Uppskeran er endir veraldar" (Matt. 13,39). 3esús áminnti lærisveinana um að líta á akrana, "því að þeir eru hvítir til uppskeru" (3óh. 4,35). I Opinberunarbókinni gefur Oóhannes sláandi lýsingu á Mannssyninum, sem kemur sitjandi á hvítu skýi. Hann hefur gullkórónu og heldur á hvassri sigð. Engill kemur út úr musterinu og kallar til Mannssonarins: "Ber þú út sigð þína og sker upp, því að komin er stundin til að uppskera, sáðland jarðarinnar er fullþroskað" (Op. 14,15). Sláandi tákn Hvaða frekari sannana er okkur þörf til að skilja að endalokin eru mjög nærri? Þegar við lítum í kringum okkur, benda sláandi tákn til þeirrar staðreyndar. Auknir glæpir, furður vísindanna, geimferðir, ólga meðal þjóðanna, meiri áhugi en nokkru sinni fyrr á trúboði um heim allan - allt þetta bendir á eitt og aðeins eitt: Oesús kemur brátt. Vissulega er uppskera jarðarinnar fullsprottin, en nema því aðeins að fólk Guðs í dag hafi lifandi samfélag við uppsprettu alls andlegs máttar, munu þau ekki verða tilbúin fyrir u|jpskeruna. Ábyrgð okkar felst í því að vitna fyrir Krist. Guð væntir þess að hver sem hefur meðtekið fagnaðarerindið sinni persónulegu starfi við frelsun sálna. Oesús gaf okkur undursamlegt fordæmi með því að starfa á hverjum degi fyrir fólk. Hann varði miklum tíma í einka- samræður við einstaklinga. Hann ræddi við Nikódemus að næturlagi. Hann svalaði andlegum þorsta samversku konunnar. Hann þráði sál ríka ung- mennisins. Með því að starfa fyrir þessa aðila, sýndi hann að hver sál er Guði dýrmæt. Þú verður að spyrja þig, býr Heilagur andi í mér, svo að ég láti vel að stjórn hans og leiðsögn í lífi mínu? Skírðir af Andanum Áður en Oesús hóf hið mikla starf sitt við að búa menn undir ríki Guðs, var hann smurður af Heilögum anda. í samkunduhúsinu í heimabæ sínum, Nasaret, gat hann öruggur lesið úr spádómsbók Oesaja: "Andi Drottins er yfir mér, því að hann hefur smurt mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap" (sjá Lúk. 4,18;0es. 61,1). Er Oóhannes skírari spáði um komu Messíasar, benti hann á að hann mundi "skíra .. með heilögum anda og eldi" (Matt. 3,11). Það var þessi fyrirheitna skírn Andans sem gerði postulunum kleift að vitna með krafti. Pétur prédikaði með krafti í mætti Heilags anda og 3000 manns unnust á einum degi! Undir leiðsögn Andans vann Filippus Samaríu fyrir Guð. Fyrir hið undursamlega verk helgunarinnar, höldum við áfram að vaxa æ meir í Andanum. Er við höldum áfram að lifa í Kristi, "ummyndumst við til hinnar sömu myndar, frá dýrð til dýrðar. Þetta gjörir andi Drottins" (2. Kor. 3,18). Vissulega mun "vorregnið", sem svo ríkulega vökvaði frumsöfnuðinn, einnig vökva okkur. Sú volduga hvítasunnu- reynsla mun birtast í hinum sanna söfnuði Guðs. Oá, núna! Þegar við leggjum áform um útbreiðslustarf, skulum við vera viss um hinn undursam- lega kraft Heilags anda. Aður en Heilagur andi kom með krafti, var fólkið allt með einum huga, vænti hans og var fyllt bænar- anda. Allri misklíð var ýtt til hliðar. Þau voru tilbúin að taka móti Andanum. Og hann kom! Hvítasunnudagurinn var eftirminni- legur fyrir frumsöfnuðinn af því að hann markaði upphaf nýrrar tíðar, tíðar Andans. Hún kom samkvæmt hjálpræðis- áformi Guðs og til uppfyllingar á spádómi Oóels: "En síðar meir mun ég úthella anda mínum yfir allt hold. Synir yðar og dætur munu spá, gamal- menni yðar munu drauma dreyma, ungmenni yðar munu sjá sjónir" (Oóel 3,1). Máttur Heilags anda veitti söfnuðinum

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.