Bræðrabandið - 01.11.1987, Síða 15
Brœðrabandid 11. 1987
styrk, þrátt fyrir ofsóknir. Pétur og
hinir lærisveinarnir fóru um og
vitnuóu, þrátt fyrir skipun leiðtoga
Gyðinga um að hafa hljótt um sig.
Fyrirheitið um kraft og boð hins
upprisna frelsara um að fara til
þjóðanna var þeim stöðugt fyrir
hugskotssjónum.
Vissulega vökvaði Heilagur andi menn
eins og Oohn Wycliffe, 3ohn Huss,
Martein Lúter, 3ohn Kalvín og Ulrich
Zwingli. Menn þessir voru óþreytandi
við að vitna fyrir 3esú, sumir jafnvel
með dauða sínum. Vegna starfs þeirra
hefur sannleikur Guðs varðveist fyrir
okkur. Og við ættum ekki að gleyma
göfugum hópi vonsvikinna frumherja í
aðventhreyfingunni. Andinn vökvaði þá
einnig!
Endurfæddir
3esús var maður Andans. "Hann hlaut
daglega nýja skírn Heilags Anda" (COL
139). Fyrir hvítasunnuregn Andans,
gróðursetti hann söfnuðinn. Allar
götur síðan hafa "regnskúrir" haldið
lífinu í söfnuðinum. Haustregnið, sem
hann gaf fyrirheit um, mun fullþroska
lokauppskeru heimsins. Rétt eins og
maðurinn endurfæðist af "vatni og
anda", þannig mun vatn Andans gera
lokauppskeru jarðar tilbúna.
Oesús, herra uppskerunnar, segir við
hvern, sem er tilbúinn að samstarfa með
honum: "Hve miklu fremur mun þá
faðirinn himneski gefa þeim heilagan
anda, sem biðja hann" (Lúk. 11,13).
•Ellen White segir með festu: "Það sem
við þörfnumst er skírn Heilags anda. An
þess erum við ekki frekar hæf til að
ganga út til heimsins en lærisveinarnir
eftir krossfestingu Drottins" (1SM411).
Þegar Oesús ræddi við nafnlausu
konuna í Samaríu við Oakobsbrunn,
lagði hann áherslu á þörfina fyrir
lífsins vatn. Ef við erum hlýðin mun
hann fyrir Anda sinn gefa okkur þetta
dýrmæta vatn fyrir uppskeruna. "Ó,
hvað við þurfum á guðlegri návist að
halda! Sérhver starfsmaður ætti að
senda bæn upp til Guðs um skírn
Heilags anda. Hópar safnaðarfólks ættu
að koma saman til að kalla á Guð um
sérstaka hjálp, um himneska visku, til
að fólk Guðs fái að vita hvernig áform
skuli leggja fyrir verkið og hvernig
skuli framkvæma það" (TM170). Sem
heimssöfnuður þurfum við að skoða
allan heiminn sem trúboðsakur. Samt
byrjar okkar heimur hvar sem við erum
stödd.
Tími endurnýjunar er runninn upp!
Vanrækjum ekki núverandi skyldur og
tækifæri.
Ellen White segir: "í dag átt þú að
hreinsa ker þitt, svo að það geti
verið tilbúið að taka á móti himnesku
dögginni, tilbúið fyrir skúrir haust-
regnsins, því að haustregnið mun koma
og blessun Guðs mun fylla hverja sál
sem hefur hlotið hreinsun af allri
saurgun. Það er hlutverk okkar núna að
beygja sálir okkar fyrir Kristi, svo
að við getum verið hæf fyrir tíma
endurnýjunar frá Drottni - hæf fyrir
skírn Heilags anda" (Ev702).
Biðjum í einlægni um vökvunina sem
þörf er á fyrir uppskeruna.
Spurningar til umræðu
1. Hví er hjálpræðinu líkt við vatn?
2. Til hvers vísar vorregnið og
haustregnið í safnaðarsögunni?
3. Nefnið önnur skeið himneskrar
daggar á tímabili kristninnar.
4. Hvernig svalaði 3esú andlegum
þorsta hinna ýmsu einstaklinga?
3. Hvað táknar vatn í Biblíunni? *
*
15