Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 16

Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 16
Miövikudagur, 11 nóvember UPPSKERfl P.G. Darmsteegt kennir við kirkjusögudeild Andrews háskólans í Berrien Springs í Michigan. AÐ HIRÐA UPPSKER UNA Skím er hápunktur í lífi safnaðar Guðs "En þá er ávöxturinn er fullþroska, lætur hann þegar bera út sigðina, því að uppskeran er komin." - Mark. 4,29. Það var mildur nóvember hvíldardagur í Kóreu. Lítið fjallavatn var baðað í síðdegissólinni. í dreifðum trjám á bakkanum komu fram dýrleg litbrigði í grænu, brúnu, gulu og rauðu. Þeir voru skærir við djúpbláan himin. Blíðlegt hvísl vindsins skapaði fullkominn hugblæ fyrir hundruð trúaðra, sem voru saman söfnuð til að vera vitni að því að 100 nýir læri- sveinar gerðu sáttmála við Guð í skírn við lokin á opinberri samkomuröð. A svölum hvíldardegi fyrir mörgum árum voru í Hollandi fjórir einstak- lingar skírðir, þar með talinn höfundur þessa lestrar, í innisundlaug með auglýsingum allt um kring. Um 40 vinir og safnaðarmeðlimir söfnuðust saman á laugarbörmunum. Lítill kór sá um sönginn. Þetta var látlaus stund, samt fundum við vitnisburð Heilags anda jafn kröftuglega þá eins og við mannmörgu skírnina í Kóreu. Við bæði tækifærin sýndi Andi Guðs mátt blóðs hins krossfesta og upprisna frelsara og gerði báða atburði hrífandi og minnisstæða. Að hirða uppskeruna með skírn Þegar uppskeran er hirt með skírn er það hápunktur í lífi safnaðar Guðs. Þegar hinn nýkristni staðfestir andlegan hjúskap við Drottin í skírn, erum við vitni að lyktum langs og átakamikils ferlis, þar sem mannlegar verur sem samverkamenn Guðs, hafa á óeigingjarnan hátt unnið sigur yfir óvininum. Þegar uppskeran er hirt, fögnum við og hrópum: "Það var sannar- lega þess virði að leggja þetta á sig!" Hversu sæl erum við að vera uppi, þegar við getum tekið þátt í að boða síðasta náðarboðskap þeim sem við elskum og öðrum, sem engan hafa sem lætur sér nógu annt um þá til að segja þeim frá Oesú. Aldrei hafa tækifærin til að vinna aðra fyrir Krist verið jafn hagstæð. Guð er að úthella Anda sínum á mörgum stöðum í heiminum. Æ fleiri eru skírðir enda sjáum við gífurlega aukningu nýrra meðlima, svo að að- ventsöfnuðurinn er orðinn sú kirkju- deild heimsins sem hraðast vex. Við getum sannarlega hrópað upp yfir okkur: "Lofið Drottin fyrir ríkulegar náðargjafir hans!" öðru hverju erum við þó illilega vakin upp af sæluvímunni, þegar við P. G. DAMSTEEGT 16

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.