Bræðrabandið - 01.11.1987, Blaðsíða 18
Helgiathöfn
Við gerum okkur betur grein fyrir
viðbúnaði fyrir skírn, þegar við
skiljum merkingu þessarar helgi-
athafnar. í því felst að skírnþeginn
skynjar dauða og upprisu Drottins vors
3esú Krists með því að krossfesta gamla
lífið. Hann lætur algerlega laugast af
syndum sínum (Post. 22,16) og byrjar
alveg nýtt líf (Róm. 6,3-6). Skírn er
opinber yfirlýsing um það, að maðurinn
hafi hætt þjónustu við Satan og sé nú
orðinn meðlimur hinnar konunglegu
fjölskyldu, barn himnakonungsins.
Með tilliti til, hve þessi athöfn er
heilög, ætti að bera "mælistiku um
lærisveinshollustu" vandlega að
hverjum skírnþega til að skera úr um,
"hvort þeir sem segjast vera endur-
fæddir eru bara að taka sér nafnið
sjöunda dags aðventistar eða hvort
þeir eru að taka stefnu með Drottni,
koma út úr heiminum, aðskilja sig og
snerta ekki neitt óhreint (2. Kor.
6,17)" (TM128). Á hinn bóginn ætti að
gæta þess vandlega að dæma ekki um
hvatir þær sem að baki liggja, þegar
óskað er eftir skírn. í starfsskipun
sinni, lagði Kristur áherslu á þörfina
að kenna öðrum "að halda allt það sem
ég hef boðið yður" (Matt. 28,20). Við
erum kölluð til að láta í té rækilega
fræðslu í "hinum frelsandi sannindum
fagnaðarerindisins" (6T11) sem koma
fram í boðskap englanna þriggja í 14.
kafla Opinberunarbókar.
Sé boðskapur englanna þriggja boðaður
trúlega sprettur fram gæðauppskera, sem
einkennist þannig: "Þeir sem varðveita
boð Guðs og trúna á Oesú" (Op. 14,12).
Þeir eru ekki aðeins tilbúnir fyrir
skírn, heldur viðbúnir að mæta Drottni
þegar hann kemur. Endanleg uppfylling
textans um að hirða uppskeruna mun
verða við endurkomu Krists. Á þeim
ægilega degi mun Kristur sjálfur bregða
sigðinni og hirða uppskeru jarðarinnar
(Op. 14,14-16). Þá mun hann leiða
fylgjendur sína inn í dýrðarríki sitt.
Ég vil bjóða hverjum sem les að taka
kærleiksríku boði Krists um að gerast
samverkamaður hans í því að ná til
hinna óendurfæddu. En hvað það er
dýrlegt hlutverk sem við erum kölluð
til! Að búa fólk undir að standast á
degi dómsins við endurkomu Krists!
Hugleiðið hvað Kristur úthellti
yfirmáta miklum kærleika, þegar hann
kom til okkar. Sjáið hann deyja á
krossinum í mikilli kvöl til að greiða
fyrir okkur gjaldið fyrir syndir okkar
svo að við getum notið gjafar eilífs
lífs í dag og um aldur.
Getum við staðið í gegn slíkum
kærleika? Vilt þú taka við þessari
miklu gjöf einmitt núna með því að
helga þig sem samstarfsmann Guðs hinu
gleðilega verkefni að ljúka verki
hans?
Spurningar til umræðu
1. Hví er skírn ein af fagnaðarríkustu
stundum safnaðarins?
2. Hvað ber að gera til að búa fólk
undir skírn?
3. Hvernig getum við vitað hvenær fólk
er tilbúið fyrir skírn?
4. Lýsið þýðingu skírnar.
5. Fyrir hvaða uppskeru ættum við að
búa skírnþega? *
18