Bræðrabandið - 01.11.1987, Side 19
Brœörabandiö 11. 1987
Fimmtudagur, 12. nóvember
UPPSKEBfl
Oohn W. McGraw er
prestur safn-
aðarins í Hyatt-
sville í Maryland
í Bandaríkjunum.
AÐ ENDURHEIMTA
DREIFÐA
UPPSKERU
Að þjóna fyrrverandi meðlimum
"Því að Mannssonurinn er kominn til að
leita að hinu týnda og frelsa það."-
Lúk. 19,10.
Sjöunda dags aðventistar gleðjast
þegar menn, konur og ungmenni endur-
fæðast og sameinast söfnuðinum. A hinn
bóginn erum við mjög leið, þegar
meðlimir velja að hverfa frá okkur og
við verðum að segja þá úr söfnuðinum.
Þessir fyrrverandi meðlimir eru
heimssöfnuðinum áskorun. Við ættum að
leggja allt kapp á að endurheimta eins
marga og mögulegt er.
Stór hundraðshluti þessa fólks
áformar að snúa til safnaðarins
einhvern tíma. En því lengur sem þau
eru í burtu, því erfiðara er að snúa
aftur.
Sem prestur hef ég yfir árin heimsótt
hundruð fyrrverandi meðlima. Þeir færa
fram margar ástæður fyrir að hafa
yfirgefið söfnuðinn. Stór hluti hefur
ekki meðtekið hjálpræðið. Þeir hafa
lært kenningarnar en þekkja ekki
uppsprettu kenninganna, Oesú. Þegar
þeir endurfæðast, koma þeir aftur til
safnaðarins fagnandi.
Annar hópur hefur ekki lært grund-
vallarkenningar Biblíunnar. Erfitt
reynist að ná til þessa hóps og ætti
það að fá okkur til að hafa fulla gát
á, þegar við leiðum nýja meðlimi inn í
söfnuðinn. Það er ekki sanngjarnt
gagnvart þeim að leiða þá inn of
snemma og ekki heldur sanngjarnt
gagnvart söfnuðinum sem er að reyna að
fóstra þá.
Aðrir yfirgefa söfnuðinn af því þeim
finnst safnaðarfólkið ekki hafa tekið
vel á móti sér. Meðlimir særa tilfinn-
ingar sumra. Sumir missa kjarkinn þegar
þeir reyna að lifa samkvæmt hinum nýja
lífsstíl sem þeir hafa valið. Vandamál
varðandi vinnu á hvíldardögum draga
kjark úr enn öðrum og það gera líka
fjölskylduvandamál, vöntun á kærleika
og samneyti við annað fólk. Við ættum
að leggja alveg eins mikið á okkur til
að halda meðlimum í söfnuðinum eins og
við gerum til að fá þá til að sameinast
söfnuðinum.
Andlát í fjölskyldunni
JOHNW.MCGRAW
19