Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 20
Stundum verður andlát í fjölskyld-
unni til þess að koma söfnuðinum í
snertingu við fyrrverandi meðlim.
Henry, aðventisti, kom í kirkju hjá
okkur í marga mánuði. Þegar ég heim-
sótti hann dvaldi hann hjá systur
sinni, Peggy, fyrrverandi safnaðar-
meðlim, sem ég hitti ásamt vinkonu
hennar, sem einnig var fyrrverandi
meðlimur. Mörgum mánuðum síðar heim-
sótti ég Peggy aftur og hitti mann
hennar, sem tilheyrði öðrum söfnuði.
Fáeinum vikum síðar hringdi maður
Peggy í mig og bað um hjálp. Dóttir
þeirra, 19 ára gömul, hafði látist í
bílslysi. Ég aðstoðaði þau við að
finna útfararstjóra og annaðist
jarðarförina. Söfnuður okkar sá um mat
handa hinum fjölmörgu ættingjum og
vinum sem voru við útförina.
Peggy og vinkona hennar hófu að sækja
kirkju næsta hvíldardag og voru þær
endurskírðar innan tveggja mánaða. Þær
hafa verið trúir meðlimir allt til
þessa dags.
Oft þegar við erum að endurheimta
fyrrverandi safnaðarmeðlimi höfum við
tækifæri til að ná til annarra-
eiginmanns eða eiginkonu og barna.
Margt ungt fólk sem giftist utan-
safnaðar einstaklingi ákveður, þegar
börnin koma í heiminn, að fara með þau
í hvíldardagsskóla.
Næst þegar þú ert við aðventbrúðkaup
eða útför, skólaslit eða fund nemenda-
félags, muntu hitta marga fyrrverandi
safnaðarmeðlimi. Þeir kunna að láta
sem þeim standi alveg á sama en innst
inni langar marga til að koma aftur
til safnaðar æskuáranna. Biðjið fyrir
þeim daglega. Látið þau vita að þið
elskið þau. Heilagur andi getur gert
undursamlega hluti fyrir þau.
í fimmtánda kafla Lúkasar finnum við
dæmisöguna um týnda sauðinn, týnda
peninginn og týnda drenginn. í Lúkas
19,10 segir Oesús: "Mannssonurinn er
kominn til að leita að hinu týnda og
frelsa það." Þetta er hlutverk safn-
aðarins varðandi hina óvirku og
fyrrverandi meðlimi hans.
Allt of oft líkist afstaða okkar til
fyrrverandi safnaðarmeðlima afstöðu
eldri bróður glataða sonarins (Lúk.
15,25-32). Við skiljum ekki mörg hver,
hvers vegna nokkur skuli yfirgefa
söfnuðinn, en slík afstaða gerir
erfitt um vik að ná til hinna óvirku
og fráhorfnu.
Það er gleði á himnum yfir einum
syndara sem iðrast. Það ætti að vera
gleði í söfnuðinum hvert sinn sem
óvirkur eða fyrrverandi safnaðar-
meðlimur snýr aftur til fjölskyldu
Guðs. Það vekur mér undrun að sjá
hversu skjótt fyrrverandi meðlimir
geta snúið aftur til safnaðarins þegar
þeir endurfæðast og snúa sér til Oesú.
Þeir vilja bæta upp fyrir týndu árin.
Við ættum að tengja þau söfnuðinum
vandlega svo að þau bugist ekki og
missi ekki kjarkinn.
Sagan um AI
A1 gekk í aðventsöfnuð þar sem
meðlimirnir vildu ekki taka að sér
leitogastörf hvorki í hvíldardags-
skólanum né í söfnuðinum. Hann gerðist
brátt formaður hvíldardagsskólans, þar
sem hann var hæfileikaríkur maður, sem
gat ekki sagt nei. En sumir meðlimir
gagnrýndu starfsaðferðir hans, jafnvel
þótt þeir væru ófúsir að taka á sig
sinn skerf af starfinu. Hann missti
kjarkinn, svo að hann tók upp fyrri
háttu, fór að drekka og hætti fljót-
lega að sækja kirkju. Hann flutti á
annan stað og hélt sig frá söfnuðinum
árum saman.
Eitt sinn kom boðseðill í póstinum.
A1 sótti samkomurnar ásamt eiginkonu
og dóttur. Þegar Heilagur andi veitti
sannfæringu, ákvað fjölskyldan að taka
afstöðu með Kristi og boðskap englanna
þriggja. Nýi söfnuðurinn hans gætti
þess vel að leggja ekki of miklar
byrðar á hann. Hann hefur ásamt konu
sinni verið trúr safnaðarmeðlimur í
mörg ár.
Sumir safnaðarmeðlimir ættu erfitt
með að taka við Páli postula, Maríu
Magðalenu, Pétri postula, Sakkeusi og
fleirum inn í samfélag safnaðarins
sökum fyrra lífernis.
Oane, ung kona hátt á þrítugsaldri,
hafði fallega söngrödd og var öðru
hvoru beðin að syngja. Þegar ég
heimsótti hana komst ég að því að hún
var ekki lengur safnaðarmeðlimur, en
þráði að snúa aftur til Krists og
safnaðarins. Hún var fljótt endurskírð
og var fagnandi í hinni nýju reynslu
sinni.
Tveim árum síðar barst mér bréf frá
20