Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 22

Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 22
Föstudagur, 13. nóvember UPPSKERfl Floyd Bresee er ritari presta- deildar Heims- sambandsins. AÐ VARÐVEITA UPPSKERIJNA Það er þýðmgarmlkiU þáttur í boðun að uppfóstra nýja safnaðarmeðlimi "Hann ... mun ... safna hveiti sínu í hlöðu." - Matt. 3,12. Við sáningu vinnur bóndinn hörðum höndum við að erja akur sinn og sá og planta í hann. Um sumarið liggur hann andvaka um nætur og veltir því fyrir sér, hvort hann fái uppskeru. Hvað gerist ef rignir nú ekki nóg eða úrkoma verður of mikil? Hvað ef stormasamt verður eða snjóar? Loks kemur uppskerutíðin. Hann slær síðasta skárann á síðasta akurlendinu. Síðasta hlassið af gullnu korni fer inn í hlöðu. Hann kastar húfu sinni upp í loftið. Starfið og áhyggjurnar eru að baki. Kominn tími til að halda hátíð, tími til að slaka á. Eða er það? Hvað ef kornið skemmist af því það hefur farið of blautt í byrðuna eða leki er á þakinu? Hvað ef rottur eða skordýr komast í hlöðuna? Hver góður bóndi veit að það þarf ekki aðeins að safna uppskerunni inn, heldur verður líka að varðveita hana. Söfnuðurinn ætti að vera jafn skynsamur og bóndinn. Við vinnum jarðveg mannlegra hjartna og sáum sæði fagnaðarerindisins og biðjum um ríkulega uppskeru. Við uppskerum sálir í skírn og höldum upp á inngöngu þeirra í söfnuðinn. En þá gerist það of oft að prédikarinn flyst í burtu, presturinn er fluttur til og söfnuðurinn gleymir sér. Við gleymum því sem hver bóndi verður að muna ef hann á að haldast í starfinu - það þarf ekki bara að koma korninu í byrðuna, heldur vaka vel yfir því þegar það er komið þangað. Við verðum að varðveita uppskeruna. Athuganir á safnaðarvexti sýna, að hinn dæmigerði skírnþegi segir: "Ég ætla að prófa þetta. Eg vona að þetta komi vel út fyrir mig. Ég vil gjarnan taka þátt í þessu." Yfirleitt gefur hann safnaðarfólkinu um það bil tveggja ára reynslutíma. Finnist honum hann þá ekki vera elskaður, eignist hann ekki "góða vini" meðal safnaðar- fólksins, finni hann ekki þörfum sínum fullnægt, mun hann einhvern tíma, áður en þetta tveggja ára tímabil er á enda, fara að hverfa. Oesús sagði: "Ég hef útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt, sem varir" (Oóh. 15,16). Oesús vill, að söfnuður sinn sé mikilvirkur, bæði hvað snertir að bera 22 FLOYDBRESEE

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.