Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 24
safnaðarf61 ks : Hafið umhyggjusama
safnaðarstarfsmenn í anddyrinu til að
bjóða fólk velkomið. Bjóðið fólk
velkomið á guðsþjónustu. Kynnið nýja
meðlimi fyrir safnaðarfólkinu. Heim-
sækið þá. Finnið starf handa þeim.
Hafið þáttinn "Fjölskylda vikunnar" í
dagskránni hvern hvíldardag. Prentið
fréttabréf fyrir söfnuðinn. En enginn
starfar vel án kærleika.
2-Fórnið ykkur sjálfum til að hjálpa
þeim
3esús heldur áfram: "Enginn á meiri
kærleik en þann að leggja líf sitt í
sölurnar fyrir vini sína" (13. vers).
Kristur biður okkur sjaldan að deyja
fyrir aðra, en hann biður okkur að
lifa fyrir þá. Kærleikur okkar mælist
ekki svo mjög með því sem við segjum,
heldur með því hve miklu við fórnum.
Það kann að virðast skrýtið, en því
nánari bönd sem binda safnaðarfólkið
hvert við annað, því erfiðara er fyrir
nýjan meðlim að finna sig eiga heima í
hópnum. Bönd myndast með því að eiga
sameiginlega reynslu. Gömlu safnaðar-
meðlimirnir hafa deilt svo miklu saman.
Þeir hafa byggt kirkjuna saman. Um
árabil hafa þeir tilbeðið saman. Fyrir
söfnuðinn er skírn eins og brúðkaup.
Við báðar athafnir verðum við meðlimir
nýrrar fjölskyldu. Við hvorugt tækifæri
skapar athöfnin bönd samstundis. Hún
markar aðeins upphafið.
Nýir safnaðarmeðlimir munu sennilega
aldrei mynda náin bönd við nýju
safnaðarfjö 1 skylduna nema eldri
meðlimir séu fúsir að færa þá fórn að
fá þá til að taka þátt í mörgum
sameiginlegum reynslum. Skipuleggið
ferð út í náttúruna þar sem hafður er
með heilsusamlegur matur. Látið nýju
meðlimina koma með salatið eða drykk-
inn, en reynda aðventkokka koma með
uppáhaldsjurtaréttina sína, ásamt
uppskriftum og sýnishorn af heilsu-
matnum sem notaður er í uppskrift-
irnar. Með því eruð þið ekki bara að
deila með þeim félagslegri reynslu
heldur lífsstíl.
Fórnið til þess að sjá um að þau fái
áskrift að ADVENTIST REVIEW (safnaðar-
blaðinu). Fórnið til að sjá um að börn
þeirra sæki safnaðarskóla. Börn þeirra
mun ávallt finnast þau vera svolítið
utanveltu í hvíldardagsskóla hafi þau
ekki átt þá sameiginlegu reynslu að
sækja safnaðarskóla daglega. Bjóðið
þeim heim í mat. Verið andlegir
verndarar þeirra. Bjóðið þeim að koma
með ykkur á bænasamkomuna, sumarmót,
bókaforlagið eða að aðstoða ykkur við
sálnavinnandi verkefni. Bönd myndast
með því að eiga sameiginlega reynslu.
3-Vingist við þau
Oesús heldur áfram: "Ég kalla yður
ekki framar þjóna ... En ég kalla yður
vini" (15. vers). Flest erum við
vingjarnleg við nýja meðlimi, en 3esús
sagði að við ættum að vera vinir.
Munurinn er sá að vingjarnlegur maður
brosir þegar hann gengur framhjá manni
sem hefur dottið. Vinur tekur sér tíma
til að reisa hann á fætur.
Hví kallaði 3esús lærisveina sína
vini fremur en þjóna? Hann var að gefa
okkur fordæmi um að líta ekki niður á
neinn. Sé kristindómur sjöunda dags
aðventista tekinn alvarlega leiðir
hann til þess að maðurinn bæti sig.
Latur maður fer að taka til hendinni,
óagaður fer að aga sig og ómenntaður
fer í skóla. Svo að þeim vegnar vel og
færast upp þjóðfélagsstigann.
Þessi uppsveifla kann að vekja þá
kennd hjá næstu kynslóð að hún sé yfir
þess konar fólk sett, sem fjölskylda
hennar var þegar hún sameinaðist
söfnuðinum. Eg var nýlega við til-
beiðslustundir í fallegri kirkju og
naut hins kunnáttusamlegasta hvíldar-
dagsskóla og guðsþjónustu sem hugsast
getur. Ég spurði prestinn hvernig
boðunin gengi. Hann var glaður yfir því
að í söfnuði hans var svo margt
hæfileikaríkt sérmenntað fólk. En það
virtist svo erfitt fyrir þá sem minna
áttu, sem minni menntun höfðu hlotið að
finna sig velkomna og eiga þarna heima.
Þetta átti við flesta sem snerust til
trúar en fæstir héldu sig lengi við
söfnuðinn.
AÐ SKÍRA FÓLK ÁN ÞESS AÐ GERA ÞAÐ AÐ
LÆRISVEINUM VIRKAR EKKI
24