Bræðrabandið - 01.11.1987, Blaðsíða 25

Bræðrabandið - 01.11.1987, Blaðsíða 25
Brœbrabandið 11. 1987 Slíkur söfnuður kann að skilja eitthvað varðandi safnaðarskipulag, safnaðarfjármál og safnaðartónlist en hann veit ekki mikið um kristindóm. Oesús vissi hvernig átti að vingast við allar manngerðir og söfnuður hans er því aðeins Kristi líkur, takist honum að gera hið sama. Dsmisaga um slökkvilið Leyfist mér að ljúka með dálítilli dæmisögu. Ég ætla ekki að draga neinn siðgæð islærdóm af henni eða segja ykkur hvað þið getið lært af henni. Ég ætla bara að biðja þess að Heilagur andi túlki hana til að uppfylla einhverja sérstaka þörf í lífi ykkar. Eldur braust út í litlum bæ við útmörk byggðar. Maður risi að vexti olnbogaði sig áfram gegnum mannþröng- ina og bað menn að gefa sig fram til að handlanga vatnsfötur. Hann tók sér stöðu við brunninn og hóf að rétta næsta manni fötur fullar af vatni sem hella átti á eldinn. Ég hafði kynnst manninum áður og bar mikið traust til hans. Gæti einhver slökkt þennan eld, þá væri hann fær um það. Ég vildi vera eins nálægt honum og kostur var og tók mér stöðu í röðinni næst honum. Meðan hann var að fást við þetta var hann stöðugt að biðja aðra að hjálpa til við að handlanga fötur. Einn smávaxinn náungi tók við sér og kom í röðina næst mér. Þegar mér var litið á renglulega vaxinn manninn, dró ég í efa dómgreind stóra mannsins fyrir það að hann skyldi bjóða honum líkum að vera með. Tilgangslaust að handlanga fötu til hans, hann mundi auðvitað glopra henni niður. En sá litli byrjaði samt af meiri ákafa en ég. í fyrstu skvamp- aðist dálítið vatn út úr fötunum, þegar hann rétti þær áfram en því lengur sem við unnum, því skilvirkari varð hann. Við vorum góðir saman, við þrír. Ég fékk vatnið frá stóra manninum mér á vinstri hönd og rétti hana til litla mannsins mér á hægri hönd. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að maður reyndi aldrei að rétta neitt manninum til hægri fyrr en maður hafði fengið það frá þeim til vinstri. Við hljótum að hafa rétt mörg hundruð vatnsfötur og ég var orðinn allþreyttur. Eldurinn skíðlogaði enn og ég var kófsveittur. Þá datt mér snjallræði í hug. Næstu fötu sem kom lyfti ég bara upp og hellti úr henni yfir höfuðið og rétti svo tóma fötu. Sá litli mér til hægri handar hafði ekki séð mig gera þetta, svo að þegar hann fékk tómu fötuna, dró hann þá ályktun að stóri maðurinn við brunninn væri orðinn vatnslaus. Nýliðinn yppti því öxlum, fór út úr röðinni og hvarf inn í mannfjöldann. Spurningar til uniræðu 1. Hví er starfi safnaðarins eftir skírn ekki sinnt? 2. Hvaða samband er milli boðunar og fráfalls? 3. Hvers vegna kynni fráfall að vera meira vandamál í aðventsöfnuðum en öðrum? 4. Hvað geta einstaklingar og söfnuð- urinn gert til að halda nýjum meðlim- um? 5. Greinið frá því hvaða merkingu dæmisagan síðast í lestrinum hefur fyrir ykkur. * 25

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.