Bræðrabandið - 01.11.1987, Síða 26

Bræðrabandið - 01.11.1987, Síða 26
Hvíldardagur, 14. nóvember UPPSKERfl AÐ HREINSA UPPSKERUNA Trúin verkar eins og súrdeig í því hjarla sem "Líkt er himnaríki súrdeigi, er kona tók og fól í þrem mælum mjöls, uns það sýrðist allt." -Matt. 13,33. Með þessari dæmisögu skýrir Oesús mannshjartað. Súrdeig sannleikans, sem verkar hið innra, mun birtast í lífinu. Hjartað verður að hreinsast af öllum óhreinleika, maðurinn þarf að öðlast þá skapgerðareiginleika sem munu gera honum kleift að inna af hendi þjónustu fyrir Guð á hvaða sviði sem er. Það ferli er ósýnilegt, þar sem súrdeigið breytir mjölmassanum, sem það hefur verið sett í, en það verkar þar til mjölið hefur breyst í brauð. '\ sama hátt verður Andi Guðs að gjöra gagngerar breytingar. Nýir eiginleikar eru ekki veittir, heldur verður gagnger breyting á, hvernig eiginleik- arnir eru notaðir. Náttúrlegar hneigðir eru agaðar til og þeim stjórnað. Vaktar eru nýjar hugsanir, nýjar tilfinningar, nýjar hvatir. En þó að hver hæfileiki sé endurnýjaður, glatar maðurinn ekki persónueinkennum sínum... tekur við Kristi Trúin verkar eins og súrdeig Mjölið sem súrdeigið hefur verið sett í táknar hjartað sem trúir og tekur við Oesú. Kristur þróar þær meginreglur sem hann einn getur starfað eftir. Heimur- inn lítur á þennan hóp eins og leyndar- dóm, sem hann getur ekki leyst. Hinn eigingjarni, peningasjúki maður lifir til þess að eta og drekka og njóta sinna veraldlegu gæða. En hann hefur ekki eilífðina í huga. Eilífðin er ekki með í útreikningi hans. En þeir sem trúa sannleikanum og taka á móti honum eiga þá trú sem starfar í kærleika og hreinsar sálina af öllu holdlegu. Heimurinn getur ekki þekkt þá því að þeir hafa eilífan veruleika fyrir hugskotssjónum. Hreyfiafl verkar hið innra með þeim til að ummynda skapgerðina. Ráðandi afl frá himnum verkar eins og súrdeigið falið í mjölinu. Kærleikur Oesú hefur komið inn í hjartað með endurleysandi mátt sinn til að ná tökum á allri mannverunni, sál, líkama og anda. Þegar gagnáhrif verka til að stríða gegn náð Krists, sem veitir hjálpræði, sigrar kærleikur 26 ELLENG.WHITE

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.