Bræðrabandið - 01.11.1987, Síða 29
Brœðrabandið 11. 1987
SÚRDEIG SANNLEIKANS Á AÐ HAFA ÁHRIF Á
DAGLEGT LÍF
andi um eigin galla.
Þeir þurfa að læra þá lexíu að
Drottinn hefur ekki gefið þeim hæfi-
leika í þeim tilgangi að þeir kryfji
lunderni annarra. Þeir hafa allir
persónuna "ég", sem þeir eiga að hafa
umsjón með. Þeir eiga að gæta sín svo
að súrdeig öfundar, afbrýði og að-
finnslusemi grafi ekki um sig í
sálinni og verki á alla mannveruna.
Við alla sem hafa helgað líf sitt
slíku, hvort sem þeir eru prestar eða
almenningur, eiga orðin, sem Kristur
sagði við Nikódemus: "Yður ber að
endurfæðast."...
Mikilvægi hins smáa
Sannleikurinn verður að hafa áhrif á
hið raunverulega líf. Stórir og smáir
hlutir eru alltaf tengdir saman. Sú
staðreynd að hið smáa er ekki séð í
sambandi við eða tengt hinum meiri
háttar eða æðri málum er orsök mistaka
hjá mörgum safnaðarmeðlimum. Það eru
miklir gallar í lífi þeirra sem
segjast vera kristnir. Líf þeirra
hefur ekki orðið fyrir súrdeigsáhrifum
sannleikans. Skapgerð margra er nú
vegin á metaskálum helgidómsins og er
lýst yfir að þeir séu "léttvægir
fundnir" , af því þeir iðka ekki
•sannleikann.
Súrdeig sannleikans er lifandi
meginregla sem á að iðka í hinu smáa
og hafa áhrif á daglegt líf. En margir
koma fram eins og orð Guðs sé ekki
til. Sama sjálf selskan, sama eigin-
gjarna eftirlátssemin, sami geðofsinn
og hranalega orðbragðið sést í lífi
þeirra og í lífi heimshyggjumannsins.
Hið sama viðkvæma stolt, sami undan-
slátturinn gagnvart náttúrlegum
hneigðum, sama spillta lundernið sést
eins og sannleikur inn væri þeim
algerlega ókunnugur. Þeir hafa lokað
gluggum sálarinnar og dregið glugga-
tjöldin fyrir og útilokað réttlætissól
Krists og kvarta svo yfir að þeir eigi
ekki sælan fögnuð, enga fullvissu og
hamingju yfir því að trúa sannleik-
anum. En syndin liggur við þeirra
eigin dyr. Þeir hafa ekki fólgið
súrdeig sannleikans í hjartanu. Þegar
lífsvatnið flæðir í hreinum, sælum
straumum yfir skrælnaðan jarðveg
hjartans, mun þroskast ávöxtur Guði
til dýrðar. Þá mun sannleikurinn ekki
verða fyrir ámæli vegna hins spillta
lundernis og hinna slæmu erfðu og
áunnu hneigða sem nú birtast í orði
og athöfn.
0, að allt fólk okkar vildi skilja
þann skaða sem það veldur með smávegis
ósamkvæmni. Það eru sumir sem hafa
þungar áhyggjur af sálarheill vina
sinna. Þeir reyna að flytja þeim
sannleikann til að mýkja hjörtu
þeirra, en það er ósamkvæmni í þeirra
eigin orðum og anda og áhrif þeirra
rífa niður það sem þá langar í rauninni
að byggja upp. Það kann að vera að
beiskja birtist í röddinni, að harka
komi í ljós í dæmandi orðum. Minnist
þess að hátternið er hið ótalaða mál
tilfinninganna og allt þetta verkar
gegn Kristi og vitnar daglega gegn þér
og herðir hjörtu þau sem þið viljið
bjarga.
Ætti ekki íhugun á þessum efnum að
vekja þann alvarlega ásetning hjá
hverjum kristnum manni að vera
trúrri?....
Erum við sem menn og konur sem
segjumst vera guðrækin, að hlýða orði
Guðs? Er súrdeig sannleikans fólgið í
hjartanu til að verka á lundernið og
ummynda alla mannveruna til vilja
Guðs? Söfnuðir okkar þarfnast endur-
fæðandi máttar Guðs. Súrdeig hins illa,
sem vinnur að óhiýðni og afneitun á
sannleikanum, verður að uppræta og
súrdeig orðs Guðs verður að setja í
hjartað. Það mun verka með sínum
mikilvægu eiginieikum að því að
endurreisa giataða mynd Guðs í mann-
inum.
Og þegar ummyndunin hefur átt sér
stað fyrir súrdeig sannieikans, þá
bíður okkar verk að vinna. Kristur
hefur sagt við okkur: "Alit vaid er
mér gefið á himni og jörðu. Farið því
og gjörið allar þjóðir að lærisveinum,
29