Bræðrabandið - 01.11.1987, Síða 32
á Uppskeru 90 stendur er það takmark
okkar að leiða 2 milljónir nýrra
meðlima inn í söfnuð sjöunda dags
aðventista og að tvöfalda tölu þeirra
meðlima sem eru virkir við að vinna
sálir. Það þýðir að við þurfum að fá
fleiri safnaðarmeðlimi til að segja
öðrum frá Oesú Kristi.
Þessi "uppskera" byrjar á því að sá
"sæði" með því að ná sambandi við
fólkið í kringum okkur - í skólanum, í
nágrenninu eða hvar sem við erum.
Allir geta gert þetta. Það skiptir
ekki máli hvort þú ert ungur eða
gamall. Við getum hlúð að þessum sæðum
- eins og þegar við vökvum plöntur-
til að hjálpa þeim til að vaxa þar til
þau eru fullsprottnar jurtir og hægt er
að uppskera þær fyrir ríki Guðs.
Ég vil vera með í þeirri uppskeru.
Hvað með þig? *
Sunnudagur, 8. nóvember
AÐ TALA EEVS
OG
VITSKERTUR
MAÐUR
Einu sinni var vitskertur maður. Satan
stjórnaði lífi hans og hann var mjög
trylltur og hættulegur. Sumir höfðu
reynt að binda hann með keðjum en sá
vitskerti sleit þær í sundur. Það var
enginn vegur til að hann gæti lynt við
heimilisfólkið og ekki heldur fólkið í
þorpinu.
Þess vegna fór maðurinn að heiman og
fór að búa daga og nætur uppi í fjöllum
við vatnið. Þeir sem áttu leið þar um
gátu heyrt hann öskra og æpa og gefa
frá sér alls konar undarleg hljóð. Hann
gerði sér líka stundum skinnsprettur
með steinvölum. Satan var að gera út af
við mann þennan.
Dag einn kom 3esú á staðinn, þar sem
vitskerti maðurinn bjó. Þegar maðurinn
sá 3esú koma, kom hann hlaupandi til að
tilbiðja hann. Oesús skipaði illu
öndunum að fara út af manninum en þeir
vildu hvergi fara og voru með hávær
mótmæli.
Þar kom að illu andarnir spurðu Oesú,
hvort þeir gætu fengið að fara í svína-
hjörð sem þarna var. Oesús játti því.
Illu andarnir fóru þá í svínin. Þau
tóku strax á rás út á vatnið og
drukknuðu.
Þetta skelfdi fólkið sem gætti
svínanna. Það hljóp heim í borgina og
sagði frá, hvað orðið hefði um svínin
og kom frásögn þeirra borgarbúum í
uppnám. Borgarbúar komu fokvondir til
3esú og báðu hann og lærisveina hans að
hafa sig á brott. Það gerðu þeir.
En maðurinn sem áður hafði verið
vitskertur, var eftir. Hann fór að
segja borgarbúum um það sem 3esús hafði
gert fyrir sig, hvernig hann hafði
læknað hann. Maðurinn var svo hrifinn
að hann sagði öllum frá því hvernig
3esús hafði gefið honum heilsu. Margir
borgarbúar tóku trú á 3esú fyrir orð
mannsins.
Fáeinum mánuðum síðar kom 3esús
aftur í þessa borg ásamt lærisveinum
sínum. Þegar þeir höfðu komið x fyrra
sinnið, var fólkið lítt hrifið af að
sjá þá. En af því að vitskerti maðurinn
hafði verið góður vottur, vildi fólkið
nú að 3esús væri um kyrrt og kenndi því
meira um elsku föðurins og fræddi það
um fagnaðarerindið.
Veistu hvað fagnaðarerindið er? Hér
er einföld leið til að skilja og muna
höfuðsannindi fagnaðarerindisins.
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann
gaf son sinn eingetinn til þess að hver
sem á hann trúir glatist ekki heldur
hafi eilíft líf.
Fagnaðarerindið er gleðitíðindi. Það
er merking orðsins. Hvernig ættir þú að
bregðast við þessum góðu tíðindum?
í fyrsta lagi þarft þú að þekkja
3esú Krist. í öðru lagi segir þú, eins
og vitskerti maðurinn, vinum þírium og
þeim sem þú hittir frá kærleika 3esú,
segir þeim frá því sem hann hefur gert
fyrir þig og því sem hann getur gert
fyrir þá. Þú getur veitt öðrum hlut-
deild í þessum kærleika ekki aðeins með
því að tala um hann, heldur líka með
32