Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 34

Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 34
skilið tungumál hans og gamli maðurinn gat ekki skilið Oóhannes. Oóhannes var að hugsa hvað hann gæti gert. Sólin var byrja að síga til viðar. Oóhannes var þreyttur og svangur. Fæ ég að borða hjá þeim, hugsaði hann. Og ef þeir gera það, hvað fæ ég þá? Hvar mun ég sofa í kvöld? Hvaða lykt er þetta? Ó, ekki koma nær. Ekki snerta mig! Þið eruð svo óhrein. Allir í hópnum töluðu samtímis. Oóhannes var að velta fyrir sér hvað þeir væru að tala um. En að minnsta kosti voru þau enn að brosa. Hann var að vona að það merkti að þau væru vinsamleg. Gamli, tannlausi maðurinn tók í höndina á Oóhannesi og leiddi hann að kofanum. Sá litli fór upp, sneri sér við öðru hvoru og benti Oóhannesi að koma á eftir sér upp tréstigann. Maðurinn masaði í sífellu. "Hvað skyldi hann vera að segja," sagði Oóhannes með sjálfum sér. "En óþefurinn. Skyldi þetta fólk aldrei þvo sér? Ég er viss um að ég gæti skafið 3 sentímetra þykkt lag af skít af þessum manni." Fljótlega var borinn matur fyrir Oóhannes. Hann var ánægður með hann þangað til hann sá að það var svína- kjöt. Af hverju gat það ekki verið kjúklingur eða fiskur eins og hann var vanur að borða? Oóhannes velti fyrir sér hvað gera skyldi og meðan hann var að því, datt hann út af og sofnaði. Þegar Oóhannes vaknaði, var komið myrkur. Hann heyrði hrotur. Og lyktin, maður minn! Hann óskaði sér að maðurinn færði sig örlítið til en hann lá áfram aLveg upp við hann . Þegar Oóhannes velti sér við á bambusgólfinu, sneri sá litli sér við líka. Hér var hann, 18 ára nemendatr úboði, og var að velta fyrir sér hvers vegna hann hefði lagt út í þetta. Mundi hann í rauninni nokkuð geta kennt þeim? Á hverju ætti hann að byrja? Oóhannes hafði aldrei verið jafn aumur. Hann bað þess, að birti fljótt. Auðvitað kom að því að birti. Allt virtist svo miiu betra í dagsbirtunni. Oóhannes fór smám saman að Læra mái trjáfóiksins. Hann fór að kenna þorpsbúum hreiniæti - fara í bað, þvo fötin sín og bara almennt hreinlæti. Þegar hann var búinn að læra nógu mikið í máli þeirra, fór hann að segja þeim sögur af Oesú Kristi. Hann kenndi þeim líka söngva um Oesú. Þegar árið var á enda, varð Oóhannes að fara aftur í skólann en aðrir nemendatrúboðar tóku við af honum. Ár eftir ár héldu þeir áfram að segja trjáfólkinu frá kærleika Oesú. Loks rann upp sá dagur þegar trjá- fólkið flutti margt hvert kofa sína niður úr trjánum. Það óttaðist ekki lengur illa anda af því að Heilagur andi var kominn inn í líf þess. Þeir urðu kristnir og tóku að ganga með öesú. Þegar við göngum með Oesú höfum við líka Heilagan anda með okkur. Andi Guðs hjálpar okkur að vera góð og gera gott. Þá langar okkur að segja öðrum hvað við erum hamingjusöm yfir að þekkja 3esú. * Miövikudagur, 11. nóvember HREVGURENN ER ENDALAUS "Stefán, viltu koma með okkur í kirkju í dag?" spurði Villi frændi. "Þú færð að hlýða á skemmtilegar sögur og læra fallega söngva." Stefán dvaldi hjá ömmu sinni, sem bjó hjá syni sínum, Vilhjálmi - frænda Stefáns. Villi frændi var sjöunda dags aðventisti. Hann var ólíkur foreldrum Stefáns, sem sóttu kirkju á sunnudög- um. "Allt í lagi, ég fer með þér, Villi frændi," svaraði Stefán. En Stefáni fannst nú samt skrýtið að fara í kirkju á laugardegi. Vinir hans mundu stríða honum. Kannski ætti ég ekki að fara, hugsaði hann. Ég vil ekki að vinir mínir hlæi að mér. En Stefán vildi fara að sjá aðvent- kirkjuna. Því fór hann að klæða sig og gekk með Villa frænda og fjölskyldu hans í kirkju. Þegar hann gekk gegnum þorpið, störðu vinir hans á hann og fóru svo að hlæja og þá leið honum mjög illa. En Villi frændi uppörvaði hann. 34

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.