Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2005, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2005
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Útgefandi:
GunnarSmári Egilsson
Ritstjóri:
Mikael Torfason
Fréttastjóri:
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550
5090 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is
Auglýsingan auglysingar@dv.is.
Setning og umbrot:
365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
Dreiflng: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og úr
gagnabönkum án endurgjalds.
Karen Kjartansdóttir heima og að heiman
Persónuleg
í?e^s"?liefur að viðskiptavini
10-11 reki nú í rogastans í
verslunarleiðöngrum
sfnum. Astaeðan er ^
sú að það virðist
vera orðið að
regiu þar á bæ
að spyrja vin-
gjarnlega
hvort kaupa-
nauturinn hafi
fundið það sem
hann sóttist eftir að
finna f verslunarleiðangrinum.
Vissulega eru þeir margir sem
gleðjast yfir svo elskulegri
spurningu en þeir eru fleiri
sem segjast hvorki vita upp né
niður og hvað þá í hvorn fót-
inn þeir eiga aö stfga við að fá
svona persónulega þjónustu.
Drengir fara halígka
I dag er að vanda spennanai fyr-
irlestur upp f Háskóla á vegum
Rannsóknarstofu [ kvenna- og
kynjafræðum og ber hann yflr-
skriftina Drengir f skólum.
Goðsagnir og veruleiki. Er þessi
fyrirlestur sagður
sprottinn af
háværri um-
ræöu um að
drengir hafi
faríð hall-
oka f skóla
en auk þess
og margs ann-
ars verður rætt um
það hve rfkjandi hugmyndir um
karimennsku innan samfélags-
ins hafa haft skaðleg áhrif á
mótun drengja. Þykir mörgum
ráðstefna sem þessi þarfaþing
þar sem nú virðist hvert kari-
kyns ofurstimið á fætur öðru
fara fyrir dóm vegna nauðgana
og áreitis, ber þar fyrst að nefria
Michael Jackson, Bill Cosby og
rapparann Snoop Dogg.
Tilgangslausar
IðSfSÍRMEknMkHi.
skóla (slands eru að hefjast elna
ferðina enn. Að venju og sem
von er ganga nú flestir fram-
bjóðendanna um ganga skólans
bfspenrtiryfir þvf mikla og mikil-
væga
hlutverki
sem þeir
sækjast eftir
aöfáaö
gegna. Þeir
eruþó
færri sem
telja þessar kosn-
ingar einhverju
máli skipta enda
segja margir aö aðalbaráttumál
fylkinganna sé að ata störf
hinna aur og óhroða. Enn ffem-
ur þykir mörgum súrt f broti að
þetta fólk sem oft er taliö efni f
framtfðarráðamenn þjóðarinnar
einbeiti sér svo mikiö að þess-
um málum, það lofi alls ekki
góðu og vekji takmarkaðar
væntingar.
Friðriks
i Ólafssonar-
þeirri keppni upp.
Leiðari
Mikael Torfason
Hœlekanir áfasteignamarlcaði eru svo örar aðfóllc er ektci fyrr btíið að slcrifa undir
bindandi kauptilboð og bíður þess að skrifa undir sjálfan kaupsamninginn þegar
íbúðin hcektcar svo mitcið að seljandinn vill bara liœtta við allt sanian.
Fasteignasprengjan í skugga fasteignasvika
Hækkanir á fasteignamarkaði
eru svo örar að fólk er ekki fyrr
búið að skrifa undir bindandi
kauptilboð og bíður þess að skrifa
undir sjálfan kaupsamninginn þegar
íbiíðin hækkar svo mikið að seljand-
inn vill bara hætta við allt saman og
selja íbúðina aftur með stórgróða. Við
höfum sagt frá svona viðskiptaháttum
hér í DV. Þetta er staðreynd og fómar-
lömbin em fjölmörg.
Lagalegur réttur fólks sem lendir í
svona löguðu er ótvíræður. Þetta er
bannað með lögum. Kauptilboð er
bindandi. En ástæðan fyrir því að
menn komast upp með þetta er að
einstaklingurinn - kaupandinn í þessu
tilfelli - verður sjálfur að leita réttar
síns fyrir dómstólum. Slíkt er fokdýrL
Lögfræðingar taka mikið fyrir hvem
klukkutíma sem þeir eyða í mál og það
þarf að skipa matsnefndir og ég veit
ekki hvað og hvað. Þar að auki þarf
fórnarlambið að búa einhvers staðar.
Margir fasteignakaupendur em
fjölskyldufölk sem getur varla farið
með fjölskylduna á vergang vegna
málarekstrar sem gæti tekið nokkur
ár.
Því fara fáir í mál. Flestir andvarpa
bara og blóta eilítið og finna aðra íbúð.
Gera bindandi kauptílboð, krossleggja
fingur og vona það besta. Vegna þess
að þeir fá enga aðstoð. Fasteignasalar
yppa öxlum og lögreglan hefur enga
heimild til að bera seljandann út
nema að dómstólar hafi kveðið á um
slíkt.
Hér er komið brýnt verkefni fyrir
þingmennina okkar að vaða í og
breyta lögum og veita lögreglu heimild
til að bregðast við þegar fjölskyldumar
í landinu em sviknar. Það gengur ekki
að fólk standi sjálft í að berjast árum
saman fyrir dómstólum til þess eins að
fá íbúð sem það á nú þegar. Fólkið er
með kauptilboð í höndunum og það á
að vera nóg. Restin er formsatriði. Það
á gera allt til þess að ekki sé hægt að
leika sér að híbýlum fólksins í landinu.
Menn hafa lengi talað um að handbolti sé þjóðaríþrótt íslendinga. Það var
þá! Stórmót eftir stórmót mæta þessi strákagrey og láta valta yfir sig í
beinni útsendingu þjóðinni til háðungar. Það virðist engu máli skipta hvort
þjálfarinn heitir Viggó eða Guðmundur, við töpum alltaf - fyrir allan pen-
inginn. Því er löngu kominn tími til að við finnum okkur nýja þjóðaríþrótt,
helst ættum við að finna upp á glænýju sporti sem aðrar þjóðir þekkja ekki.
Þannig gætum
við verið best í
einhverju. Hér
eru 6 hugmyndir.
Að éta
viðbjóð
Finnar
hafa náð
iangt með
þvi að
tolla leng-
ur en flestra
þjóða kvikindi ifunheitum
sánaböðum. Hér getum við
lært affrændum okkar og
gert þjóðlegan sið að
heimsgrein. Okkur þykir
flott og fint að éta
pungapaté, skötu angandi
af hlandfýlu og hákarl sem
lyktar eins og rotnandi lik.
Við gætum slegið upp
heimsmeistarakeppni i að
éta þennan viðbjóð,
kannski i Smáralind, og
fyllst afstolti þegar út-
lenskir keppendur kúgast
yfir kræsingunum, en okkar
menn bursta leikinn.
Fyrirgefn-
JH ing
Hp HnÍI við
^ gleymum
I A-.' |(f'fogfyrir-
\ f gefum
... fyrren
aðrar þjóðir.
Frakkar verða t.d. alltaf
brjálaðir ef gutrætur hækka
um hálfa evru og hópast út
á götur og henda gulrótum
i ráðamenn. Svona gerist
aldrei hér. Olíusamráð hef-
ur milljarða af landsmönn-
um en áfram sækjum við á
bensinstöðvarnar eins og
ekkert hafi í skorist. Því ætti
auðvitað að taka upp
keppni i fyrirgefningu á
ólympiuleikunum. Kepp-
endum yrði misboðið á
ýmsan hátt og það er alveg
pottþétt að islenski kepp-
andinn myndi alltafsigra -
auðveldlega!
Krútttjútt
. - Útlend-
•*’ ingarsjá
' ekki sól-
ina fyrir
¥ m ‘slensku
kruttkyn-
slóðinni sem
dælir út framúrstefnulegri
músik og myndlist. Þessir
krakkar sem plægja akur-
inn og veita milljónum inn i
þjóðarbúið i formi ferða-
mannatekha eru upp til
hópa óíþróttamannlega
vaxnir, flestir fölir og hokn-
ir og fara með veggjum á
kafi i húfum og treflum. i
Ijósi fyrri afreka ætti að
neyða þetta fólk til að búa
til iþróttagrein - krútttjútt
- sem þeir einir skildu og
gætu eitthvað i. Útlending-
arnir myndu gapa afað-
dáun og þjóðarstoltið vaxa
i jöfnu hlutfalli.
S'JEssLá i látinna
-‘-’-j-M | Fegurða-
f rsam-
eru eins kon-
iþróttagrein og við höf-
n verið úti að aka á þeim
ttvangi siðan Hófi og
ri da Pé voru upp á sitt
•sta. l'slenskar konur virð-
t bara hafa verið forljótar
ian. I minningargreina-
imleiðslu eigum við þó al-
ört heimsmet, miðað við
•fðatoSu, og ættum að
•ta okkur það; efna til
is konar andlegrar feg-
ðarsamkeppni látinna.
iðað við látlausan fagur-
tlann um horfna sam-
rðamenn okkar i blöðun-
n ættum við ekki í neinum
indræðum með að rúlla
, ' _ Fegurðar-
fpL Æ afbrigðið í
^ skák
Fyrst Fisch
getur búið
sinar eigin
reglur i skák
gæti Friðrik Ólafsson alveg
gert það lika. Það segir sig st
sjálft að Friðrik Ólafsson yrð,
alltaf heimsmeistari i Friðrik:
Ólafssonarafbrigðinu enda
myndi hann einn skilja leik-
inn. Áfram Friðrik!
Séð og
heyrt
spilið
Nú er
hægt að
fá Séð og
heyrt-spil-
ið á hund-
raðkall inæstu Hagkaups-
verslun enda gekk það vist
ekkert of vel þegar það kom
út fyrir nokkrum árum. Fólk
getur yfirleitt ekkert i spil-
inu enda vita fáir utan rit-
stjórnarskrifstofu S&H hver
Marin Manda er eða hvað
hún var að gera 13. ágúst
2001. En við gætum þó ef-
iaust aðeins meira en hvaða
útlendingur sem er.
Fólkið í Éfnýjunarnefnd samkeppnlsmála er fíll
Einar Benediktsson Kristinn Björnsson Geir Magnússon
Samráðssvikari sem enn situr Eiginmaöur fyrrverandi dóms- Samráðssvikarinn i Essó.
sem forstjóri Olis. málaráðherra og samráðssvik-
arinn I Skeljungi.
VIÐ ÍSLENDINGAR ERUM ekki fífl.
Jafhvel þótt einhver mannanna í
olíusamráðinu hafi kallað okkur það
í tölvupósti á milli æðstu samráðs-
manna. En okkur á DV sýnist stund-
um að þetta með að við, fólkið í
landinu, séum fífl sé bara eitthvað
sem jafnvel æðstu menn ganga um
og trúa statt og stöðugt. Við vitum
hið gagnstæða. Fólk á íslandi er al-
mennt séð mjög vel gefið. Allavega
flestir sem við þekkjum.
Fyrst og fremst
AUÐVITAÐ ER FYRIRSÖGNIN hér að
ofan eingöngu smá skopstæling á
þessum tölvupósti. Það pirrar okkur
líka óstjómlega að áfrýjunamefnd
samkeppnismála hafi lækkað sektir
olíufélaganna svo mikið að þau
hagnast á samráðinu. Jafnvel um
milljarða. Heilar 4.000.000.000
krónur segir Jón Magnússon hæsta-
réttarlögmaður í Fréttablaðinu í gær.
Það er engin hemja.
EF EINHVER 0KKAR á DV myndi
svíkja yfirvöld um skattpeninga
þyrfti viðkomandi að greiða ríkinu
þá til baka, ásamt sektum og vöxt-
um. Ef greiðslan yrði hins vegar ekki
innt af hendi biði skattsvikarans
svokallaða löng fangelsisvist. Þetta
kallast rétdæti. íslendingar eiga ekki
að fá komast upp með svik og pretti.
Menn eiga að borga sitt ellegar fara í
fangelsi.
ÞAÐ ER ÞV( ALGERT hneyksli að
olíufélögin og forstjórar þeirra skuli
sleppa svona létt. Auðvitað eiga þeir
að greiða hverja einustu krónu sem
þeir sviku út úr okkur með samráði.
Þessum peningum var stolið frá
okkur og við eigum að fá þá til baka
með vöxtum. Bara venjulegum
bankavöxtum og svo dráttarvöxtum
ofan á þá. Síðan á að sækja forstjór-
ana til saka og sekta þá eða stinga í
fangelsi eftir því hversu glæpur
þeirra telst stór samkvæmt íslensk-
umlögum.