Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005
MAGASÍN DV
Sigríður Arnardóttir sjónvarpskona var sjálfstæður unglingur sem neitaði að láta ferma sig. Um tvítugt ákvað Sirrý þó að láta skíra sig og gifti sig nokkrum árum
síðar. Sirrý stendur nú í ströngu þar sem elsti sonur hennar mun fermast í byrjun apríl en Sirrý fylgist áhugasöm með fermingarfræðslunni.
„Ég var bara þannig gerð og
fannst þetta svo mikið veraldlegt
stress sem ég fann mig ekki í,“ segir
sjónvarpskonan Sigríður Arnardótt-
ir, betur þekkt sem Sirrý, þegar hún
er spurð af hverju hún hafi ekki látið
ferma sig. Sirrý stendur nú í ferm-
ingarundirbúningi þar sem eldri
sonur hennar mun fermast í byrjun
apríl. „Ég veit ekki hvort ég ætti að
vera eitthvað stressuð. Aðalatriðið er
að ákveða hverjum maður ætíar að
bjóða og hvar veislan á að vera. í
fyrstu hafði ég hugsað mér að halda
þetta heima en ákvað svo að leigja
sal svo þetta verði sem ánægjulegast
fyrir barnið."
Enginn þrýstingur frá foreldr-
um
Sirrý segist sjálf hafa verið afar
sjálfstæður unglingur og jafnvel
svolítill hippi í sér. „Foreldrar mínir
beittu mig engum þrýstingi en ég
fann alveg fyrir þrýstingi frá prest-
inum, kennurum og félögunum.
Mörgum fannst svolítið skrítið að
ég ætlaði ekki að fermast en nú veit
ég að maður lifir alveg af þótt mað-
ur sé dálítið öðruvísi, jafnvel á ung-
lingsárunum,“ segir Sirrý og bætir
við að hún hafi breyst mikið með
árunum. „Ég var ekki heldur skírð
en lét skíra mig um tvítugsaldurinn.
Þá ætlaði yngri bróðir minn að láta
ferma sig en varð að láta skíra sig
fyrst og ég ákvað að fara með hon-
um. Ég hafði aldrei verið trúuð en
hafði lengi langað að finna trúna og
það var ekki fyrr en ég var orðin
fullorðin, byrjuð með þáttinn og
hafði reynt ýmislegt í lífinu sem
þetta small allt saman hjá mér og ég
fann hana loksins. Þegar ég ætlaði
svo að gifta mig í Dómkirkjunni átti
ég von á því að þurfa að ferma mig
fyrst. Þess þurfti hins vegar ekki þar
sem fermingin er staðfesting á
skírninni og ég hafði látið skíra mig
nokkrum árum áður. Prestinum
fannst það óþarfi þar sem ég hafði
valið að láta skíra mig svona stuttu
áður.“
Ánægð með soninn
í dag segist Sirrý ekki sjá eftir
neinu. Henni þykir frábært að
hafa haft þroska til að skipta um
skoðun og tækifæri til að
læra meira um lífið. „Ég
missti að vísu af ferm-
ingarfræðslunni sem ég
hef gaman af að fylgjast
með í dag en ég er ánægð
með að hafa fylgt sann-
færingu minni. Við leyf-
ðum syninum að ráða
sjálfur hvort hann
fermdist en hann finnur samt að
við erum voðalega hlynnt því. í
dag stendur líka svo miklu meira
til boða, það er ekki bara ann-
aðhvort eða. Ég held að ferm-
ingarfræðslan sé mjög góð fyrir
krakkana og finnst í rauninni
yndislegt að hann ætli að láta
verða af þessu. Þarna fá þau upp-
byggilega og jákvæða fræðslu og
læra út á hvað lífið gengur. Að
mínu mati er virkilega vel að
þessu staðið og ég veit að þau hafa
gaman afþessu." indiana@dv.is
Margar glæsilegustu konur landsins skelltu sér á lokahóf Food&Fun-hátíðarinnar, sem haldið
vará Nordicahóteli, og skörtuðu þarsínu fegursta. Magasín forvitnaðist um fallegu fötin.
Samgönguráðherra og fru
Sturla Böðvarsson og Hallgerð-
ur Gunnarsdóttir mættu íslnu
finasta pússi en Hallgerður fékk
sinn klæðnað í Max Mara.
Flottur hópur Sjónvarpskon-
an Inga Lind fékk sín föt í Sand
en Helga Ólafsdóttir og Hildur
Þorsteinsdóttir voru fallegar í
heimatilbúnum dressum. Hér
eru stöllurnar ásamt Jóni
Hauki.
Eiga von á barni Oddny
^ Sturludóttir og Hallgrimur
1 Helgason voru flott á loka-
hófi Food&Fun sem haldið
vará Nordica Hotel. Oddný
fékk sín föt í versluninni
Glamúr.
Skrautleg Katrín Júl/usdóttir
alþingiskona var ótrúlega flott í
þessum kjól frá Sisley en skórnir
og veskið eru úr Karen Millen.
Avallt glæsileg Þórunn Lárus
dóttir leikkona var stórglæsileg
að vanda / þessum rauða kjól
sem hún fékk I versluninni ONI.
Flott saman Gulli Helga sjón-
varpsmaður og eiginkona hans
Ágústa Valsdóttir mættu floka-
hófið. Ágústa var glæsileg i
þessum fötum frá Karen Millen.
Tvær flottar Þær Helga Lúð-
viksdóttir og Elva Ósk Ólafs-
dóttir voru stórglæsilegar að
vanda á Food&Fun. Helga
saumaði sjálf fötin sin en Elva
Ósk keypti sln i TopShop.
DV-mynd Páll Bergmann