Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 5
DV MAGASÍN
FIMMTUDAGUR24. FEBRÚAR 2005 5
MAGASIN
mælír meo..
Litríkum og skemmtilegum
hippa-pilsum
Nú er hægt að fá ótrúlega falleg
hippa-pils í verslunum borgarinnar. f
versluninni Spútnik í Kringlunni er úr-
valið af þessum litrfku og skemmtilegu
pilsum mikið. Flægt er að fá pils (mis-
munandi stærðum en pilsin kosta (
kringum 4.500 krónurnar.Verslunar-
stjórinn var að taka upp helling af nýj-
um vörum svo nú er um að gera að
skjótast og gera góð kaup. í Spútnik á
Klapparstígnum er aftur á móti kílóa-
markaður svo þar er hægt að gera frá-
bær kaup á fáránlega lágu verði.
ðnnu Kristínar
„Það er sagt að steingeitur fæðist
gamlar en eldist ekki upp frá því. Sam-
kvæmt því þarf ég Ktið fyrir því að hafa
að vera ungleg," segir Anna Kristín
Gunnarsdóttir alþingismaður og bætir
við að þetta hljómi eins og hún sé eld-
gömul.„En annars held ég að sæmilega
heilbrigt líferni, það að hafa gaman af
lífinu og líta á hlutina með bjartsýni og
jákvæðni hjálpi til við að halda hrukk-
unum f burtu því það er alltaf betra að
vera með broshrukkur en fýlusvip,"
segir Anna Kristfn.
// Hvað á að gera
um helgina
Eitthvað skemmtilegt
„Það er góð spurning, ég er ekki
búin að ákveða það.Ætli ég reyni
ekki að gera eitthvað skemmtilegt,
skelli mér kannski (
leikhús eða bíó eða
fari jafnvel upp (
Fteiðmörk og fái
mér góðan
göngutúr. Svo
ætla ég að
skoða handrit-
ið af Fioudini-
sýningunni
sem sýnd verð-
ur í Borgarleik-
húsinu um pásk-
ana og ég mun
taka þátt í."
Brynja Val-
dls Gisladóttir
leikkona
// fyrsta kærastan mín
Sæt og vel
11
staðsett
„Ætli það hafi ekki verið Gunnhildur í
næsta húsi þótt hún hafi aldrei vitað af
því," segir GunnlaugurTorfi Stefánsson
kontrabassaleikari þegar hann er spurður
um fyrstu kærustuna.J fyrsta lagi var hún
ákaflega vel staðsett og svo fannst mér
hún sæt auk þess sem hún var eldri en ég.
Mig minnir að ég hafi verið skotinn (
henni í næstum ár sem þá var stór hluti af
ævinni þar sem ég var aðeins 7 ára. Ég
held að ég hafi séð henni bregða fyrir um
daginn og hún hefur ekkert breyst."
// fyrsta íbúðin
Fólk af öllum stærðum og gerðum
„Fyrsta íbúðin mín var við Bræðra-
borgarstíginn en þangað flutti ég
haustið 1992. fbúðin var svona U-laga,
nokkuð sérstök í laginu enda hafði þar
ábyggilega verið rekin verslun í árdaga.
Staðsetningin var mjög góð, stutt í
miðbæinn en samt nógu langt frá
skarkalanum. í þessu húsi ægði saman
allskyns lýð, fólki af öllum stærðum og
gerðum sem setti svip sinn á umhverf-
ið. Þarna var yfirhöfuð gott að búa og starfa, og hefur mér alltaf þótt svoldið
vænt um þennan hiuta borgarinnar. Ég flutti enda ekki langt þegar ég yfirgaf
Bræraborgarstíginn heldur færði mig yfir á Ránargötuna og flutti inn til
kærustunnar. Þar bjuggum við þar til við gerðumst úthverf og sögðum skilið
við miðbæinn."
Pálml Sigurhjartarson tónlistarmaður.
HyELLUR.com
J einum grænum
# Simi: 577 6400
J|jMBfc ' Reiðhjól ^
íi Hlaupahjól -
HHK' Hjólahjálmar
P Körfuboltaspjöld
JH
Jafnvægishjó!
TsTandi!
Hvellur.com býður mikið úrval fermingargjafa
Allt sem nútíma fermingarbörn óska sér.
HVELLUR.COM - G. TOMASSON ehf.
Smiðjuvegi 8 græn gata • 200 Kópavogur • Sími 577 6400
Hvellur@hvellur. com