Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005
MAGASÍN DV
Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona
mun ferma elstu dóttur sína
í mars. Mæðgurnar hlakka
báðartil stóra dagsins.
„Ég skil ekki öll þessi læti,“ segir
Elva Osk Ólafsdóttir leikkona þegar
hún er spurð hvort hún sé búin að
öllu fyrir fermingu dóttur sinnar en
hún fermist 19. mars næstkomandi.
„Ég æda að halda veisluna heima og
undirbúningurinn gerist smám
saman í rólegheitunum. Þetta vex
mér ekki í augum enda verður bara
gaman að fá gamlar og skemmtileg-
ar frænkur í heimsókn. Ég vil að
þetta verði dagurinn hennar og ég sé
ekki að þetta verði eitthvert mál."
Prinsessukjóll er draumurinn
Fermingarbarnið, Agnes Björt
Andradóttir, er hins vegar orðin
afar spennt. „Ég er búin að hugsa
um þetta síðan ég var lítil og nú er
loksins að verða af þessu,“ segir
Agnes Björt og bætir við að
draumafermingakjóllinn sé
prinsessukjóll skreyttur pallíettum
og púffi. „Við erum ekki búnar að
finna fötin en hún fær alveg að
ráða," segir Elva Ósk. „Ég man að
þegar ég fermdist þá var mikið lagt
upp úr því að kaupa eitthvað
praktískt enda notaði ég mín brúnu
flauelsjakkaföt mikið eftir fermingu
en ef hún vill eitthvað ópraktískt þá
fær hún það,“ segir hún og heldur
áfram að rifja upp fermingardag-
inn. „Ég skildi ekki allt þetta vesen.
Allt í einu var ég orðin voðalega
merkileg og ástæða þess að allt
þetta fólk kom í veislu. Nokkrum
vikum fyrir ferminguna höfðum við
vinkonurnar ákveðið að lita á okkur
hárið en kunnum ekki enskuna bet-
ur en svo að við settum festinn út í
sem átti ekki að gera svo ég stóð
uppi með kolsvart hár, en ég hafði
verið að safna ægilega fínu ljósu
hári sem átti að setja upp í greiðslu.
Á fermingardaginn var ég því með
svo stutt hár að það lá við að líma
yrði rósina svo hún myndi tolla."
Fermist vegna trúarinnar
Elva Ósk segir fermingargjafirnar
nú til dags ekki í sjálfu sér stærri en
þegar hún fermdist þar sem tímarn-
ir hafi einfaldlega breyst og tæknin
með. „Ég man að ég var alsæl með
mitt skatthol en ég veit að ég hefði
líka verið alsæl með nýjan síma ef
tímarnir hefðu verið aðrir." Agnesi
langar helst í digital-myndavél og
peninga en aðspurð segist hún
fermast af því hún trúi á guð. „Ég
held að flestir fermist út af trúnni en
ekki bara út af pökkunum og ég held
að flestir krakkar vonist til að halda
áfram að trúa á guð eftir ferming-
una. Ég trúi ekki að guð sé einhver
gamall karl á himninum heldur það
góða sem býr í mannfólkinu," segir
Agnes að lokum.
indiana&dv.is
Mæðgur
Elva Ósk segir Agnesi alveg
ráða í hvernig fötum hún
verður á fermingardaginn.
Fermingarbarn
Á fermingardaginn var ég
því með svo stutt hár að
það lá við að líma yrði rós-
ina svo hún myndi tolla,"
segir Elva er hún rifjar upp
stóra daginn.
Svefnpoki
Vandaður svefnpoki frá
Highpeak. Pokj'nn
L fæst í Útilífi á aðeins
5.990 krónur.
Snjóbrettagalli
Flottur galli frá
Billabong sem fæst í
Brim.
Digital myndavél
Góð myndavél frá Casio sem fæst í
Heimilistækjum á 42.900 krónur.
Vélin er 5 milljón pixla.
Fyrir
töffarana
Flott hjóla-
bretti sem fást í
Brimfrá 10.900 til
Vandað og gott
Kúl snjóbretti og bindin-
ar sem fást í Brim og
kosta 37.500 ^
krónur. Mjög M
vandað og gott
Option bretti.
17.900.
fH Fyrir alla
Jf krakka
| Flottur Mp3
f spilari sem
! fæst í Heimilis-
tækjum.Spilar-
inn kostaði
39.000 en er á
sérstöku tilboði á
25 þúsund krónur.
Skrifborð
Þetta borð
kostar 19.500
og fæst ÍTM
húsgögnum.
Rúm fyrir fermingabarnið
Rúm frá TM húsgögnum, 120 * 200
cm. Rúmið kostar 49.000 krónur.
Tjald Þriggja manna braggatjald sem þolir veður
og vind.Tjaldið fæst í Útilífi. Það kostaði 14.990
krónur en fæst núna á 11.990 krónur.
á 29.900 krónur
u • „hióstæða Heimabíóstæða frá Philips, MX2500, var
enfest 'úna í Heimilistækjum á 24.900 krónur.