Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005
MAGASÍN DV
Ég var alltaf mjög bráðþroska
sem bam. Ég var ekki nema 7 ára
þegar ég var farin að skipa eldri syst-
kinum mínum fyrir, vildi hafa röð og
regiu á öllu og þoldi ekki óslápulag
og rusl. Ég var lflca með mikið jafiiað-
argeð og tók aldrei nokkum tímann
frekjuköst eins og flestir krakkar gera
einhvem tímann. Mamma sagði
alltaf að ég hefði fæðst fullorðin.
Þegar ég var um 11 ára fór ég að
finna kenndir sem færast vanalega
ekki yfir fyrr en á táningsárum. Eg
fann að þessi smáskot sem stelpu-
skottur finna fyrir á þessum aldri
vom farin að breytast.
Þroskaðist líkamlega á undan
hinum
Ég áttaði mig ekki á því fyrr en
seinna hvaða tilfinningar þetta vom.
Núna veit ég að ég var þama, 11 ára,
farin að hugsa eins og mun eldri
stúlka. Ég bældi þessar hugsanir
innra með mér því ég vissi að eitt-
hvað var ekki eins og það átti að vera.
Ég vissi að ég átti ekki að hugsa
svona. Ég var lflca bráðþroska
lflcamlega, ég byrjaði 9 ára á blæð-
ingum og var komin með brjóst og
skapahár löngu á undan öllum jafn-
öldrum mínum. Það gerði mér held-
ur ekki auðvelt fyrir.
Eignaðist eldri kærasta
Þegar ég var 12 ára fluttum við
fjölskyldan í meðalstóran bæ úti á
landi og ég hóf nýtt líf. Ég vingaðist
strax við eldri krakka og leið í fýrsta
sinn í langan tíma vel með sjálfa mig.
Þessi vinahópur tók mér eins og ég
var, óháð því hversu gömul ég var.
Eftir hálft ár á nýja staðnum var ég
komin með kærasta sem var 5 árum
eldri en ég. Þetta var mjög fallegt
samband og varð strax eins og sam-
band milli tveggja fúllþroskaðra ein-
staklinga því hann var Iflca mjög
bráðþroska miðað við aldur. For-
eldrar hans vissu ekki hvað ég var
gömul, héldu að ég væri jafiigömul
honum svo að þau tóku mér ótrú-
lega vel. Ég gat ekki sofið heima hjá
honum en var hjá honum öllum
stundum annars, sagði foreldrum
mínum að ég væri hjá vinkonum
mínum að læra. Það bimaði samt
ekki á náminu hjá mér því ég var það
öguð að ég leysti öll heimaverkefni
vel af hendi og stóð mig með prýði.
Lagðist í ástarsorg
Við fórum fljótlega að sofa sam-
an. Ég fann aldrei fyrir því að hann
væri að nota mig eða þvf að ég væri
of ung. Við sóttumst bæði jafhmikið
í kynlíf þó að sambandið byggðist að
sjálfsögðu ekki bara á því. Við vorum
saman í þónokkum tíma, alveg þar
til mamma hans komst að því fyrir
tilviljun hvað ég var gömul. Hún
hafði verið í lflcamsrækt og heyrt út-
undan sér að tvær konur voru að tala
um þetta ókristilega samband og
hneyksluðust á því að nokkur móðir
leyfði syni sínum að vera með 13 ára
gamalli stúlku. Mamma hans lagöi
saman tvo og tvo, kom heim eins og
þrumuský og það varð endirinn á
okkar sambandi. Ég lagðist í ástar-
sorg, hætti að fara út úr húsi en
mömmu grunaði ekki hvað gerst
hafði, hún hélt að þetta væri bara
saklaus vinkonuágreiningur sem
myndi fljótlega leysast.
Ferming á næsta leiti
Nokkrum vikum eftir að við hætt-
um saman fór ég að finna fyrir mik-
illi lflcamlegri vanlíðan. Ég komst
ekki fram úr á morgnana, varð óglatt
og var alltaf þreytt. Þetta ár átti ég að
fermast og allir krakkamir í bekkn-
um mínum voru yfir sig spenntir yfir
því, voru famir að tala um veisluna
og fötin sem þau ætluðu að vera í
snemma um veturinn. Ég fann ekki
til nokkurrar gleði yfir þessu, ástar-
sorgin og slappleikinn yfirgnæfði
alla gleði.
Orðin ófrísk
Hjúkrunarfræðingurinn f skól-
anum tók mig á eintal einn daginn,
sagðist sjá á mér einkenni sem
henni fannst ekki eiga við stúlku á
fermingaraldri. Hún spurði mig
beint út hvort ég væri ólétt. Ég fór
undan í flæmingi og varð reið og
pirruð við hana fyrir að dirfast að
spyrja mig að þessu. Hún tók þá
utan um mig og sagði mér að ég
væri ekki ein, það væri fólk í kring-
um mig sem myndi aðstoða mig og
ég fengi allan þann stuðning sem ég
þyrfti á að halda. Ég grét sáran í
fanginu á henni í dágóðan klukku-
tíma þangað til ég samþykkti að fara
í óléttupróf. Ekki er að því að spyrja
að niðurstaðan varð jákvæð. Ég fékk
hálfgert taugaáfall en innst inni
vissi ég þetta og hafði vitað lengi.
Mamma og pabbi voru kölluð upp í
skóla til að taka við tíðindunum.
Pabbi brotnaði algerlega saman en
mamma brást reið og sár við, kall-
aði mig lygara og hóru í hita leiks-
ins. Hjúlmmarfræðingurinn sendi
mig út og náði að ræða við þau og
róa þau niður þó að þetta hafi verið
stór biti fyrir þau að kyngja.
Var hvött til fóstureyðingar
Þama var ég, örfáum mánuðum
fyrir ferminguna mína, ófrísk. Ég
tók þá ákvörðun strax að eiga barn-
ið, ég myndi ekki láta einn né neinn
þvinga mig til fóstureyðingar. Þótt
það hljómi undarlega þá fannst mér
ég algerlega reiðubúin að takast á
við móðurhlutverkið en það var
svosem í stíl við karakterinn.
Mamma vildi að ég léti eyða fóstr-
inu en pabbi hætti að tala við mig.
Ég var alltaf svo mikil pabbastelpa
og honum fannst ég hafa brugðist
trausti hans. Með tímanum lærðu
þau samt að sætta sig við orðinn
hlut og pabbi varð aftur eins og
hann átti að sér að verða. Mamma
hætti lflca að þrýsta á mig með fóst-
ureyðinguna, hún sá alveg að mér
varð ekki haggað. Þessar fféttir
komu samt óneitanlega illa við fjöl-
skyldu mína og umtalið sem ég og
mfnir nánustu urðum fyrir var ekki
fallegt. Enn í dag er ég sár út af því
sem sumir létu út úr sér á þessum
tíma.
Átti að kæra barnsföðurinn
Bamsfaðir minn talaði aldrei við
mig aftur og grunar mig að foreldrar
hans hafi átt einhvem þátt í því. Ég
reyndi lflca aldrei að ýta neitt á hann,
ég hugsaði með mér að fyrst hann
reyndi ekki að hafa samband við mig
væri hann ekki þess virði. Það átti að
gera mál úr þessu öllu, kæra hann
fyrir nauðgun og misnotkun því ég
var auðvitað undir aldri en ég og for-
eldrar mfliir náðum að kveða það f
kútinn. Ég vildi alls ekki að hann
lenti í vandræðum því þetta var allan
tímann með okkar beggja samþyldd
og ekki sanngjamt að hann þyrfti að
súpa seyðið af því.
Presturinn yndislegur
Fermingarundirbúningurinn fór á
fullt og ég þtflftí að mæta einu sinni í
viku í fermingarfræðslu. Margir hafa
spurt mig hvers vegna ég hafi teldð þá
ákvörðun að fermast þrátt fyrir þung-
unina en ég svara því alltaf tfl að ég var
stolt af sjálfri mér og ákvað að bera
höfuðið hátt og láta ekki hleypidóma
á mig fá. Presturinn, sem var yndis-
legur eldri maður, tók mér ótrúlega
vel. Hann tók mig margoft á eintal eft-
ir fræðsluna og lagði mér lífsreglum-
ar. Það hjálpaði mér mikið enda var
ég mjög trúuð og er það enn.
Þegar ég var komin um 8 mánuði
á leið rann fermingardagurinn upp.
Hann er í rauninni eins og í móðu
hjá mér. Mamma og pabbi héldu
smá veislu heima hjá okkur fyrir
nánustu ættingja en andrúmsloftíð
var dálítíð þvingað allan tímann.
Sérstaklega þegar frænka mín færði
mér heklaðan gafla á bamið í ferm-
ingargjöf, þá fussuðu sumir og svei-
uðu og systir pabba og maðurinn
hennar gengu svo langt að fara úr
veislunni því þeim fannst það ekki
við hæfi að færa fermingarbami
bamaföt. Mér þótti samt sem áður
rosalega vænt um það.
Tók próf með barn á brjósti
Bamið kom loksins í heiminn á
vordögum. Það var gleðidagur í lífi
mínu sem ég gleymi aldrei. Mamma
og amma vom hjá mér og ég man
ekki eftir sársaukanum því að ham-
ingjan sem ég fann fyrir þegar ég
fékk litlu stelpuna mína í fangið yfir-
gnæfði allt. Ég fór heim með litla
ljósið mitt og sinnti henni af kost-
gæfni undir handleiðslu mömmu og
pabba sem dýrkuðu hana frá byrjun.
Ég tók síðan prófin í skólanum og
gekk bara vel, enda fékk ég svo mikla
hjálp heima að ég gat púslað því
saman að vera móðir, enn f grunn-
skóla.
Engin eftirsjá
Eg segi ekki að árin á eftir hafi
ekki verið erfið, þetta var oftar en
ekki hið mesta basl og það féllu mörg
tár fyrstu ár dóttur minnar. Ég hef
samt aldrei séð eftir að hafa átt hana
því gleðin sem hún veitir mér nær
yfir allt annað. í dag er hún orðin
unglingur sjálf og er sem betur fer
ekkert lík móður sinni hvað þrosk-
ann varðar. Þó að ég sjái ekki eftir
neinu þá myndi ég ekki óska neinum
þess að ganga í gegnum það sem ég
þurftí að gera. Ég var alla tíð mann-
eskja tfl þess að standa undir for-
dómum og illu umtali en verst þykir
mér hvernig þetta fór með mfna
nánustu sem urðu oftar en ég fyrir
barðinu á Gróu á Leití þrátt fyrir að
þeir gætu ekkert að því gert hvemig
manneskja ég er.
FERMINGARDAGURlNN MINN
5fcrming.\rv)Aðunnn minn
Iwk - 0)ý»Wf
'jkiyti
5ermi<i£.urí>Aguritm n
MULALUNDUR
VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c • Pósthólf 5137 • 125 Reykjavík
Gestabók • Myndir • Skeyti
FÆST í ÖLLUM HELSTU
BÓKAVERSLUNUM LANDSINS