Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005
MAGASÍN DV
Dfana
dreglllinn
tndíana Ása Hreinsdóttir
fylgist með kóngafólkinu á
fímmtudögum og lætur blátt
blóðið streyma með stll.
indiana@dv.ls
Síðasta
drottning
Egyptalands
dáin
Fyrrum drottning Egypta-
lands, Nariman Sadeq, lést í
vikunni sjötug að aldri. Narim-
an var fyrrverandi eiginkona
Farouk konungs sem var steypt af
stóli árið 1951. Hún var aðeins 16
ára þegar hún giftist kónginum og
hafði nýlega fætt soninn Ahmed Fouad
er þau urðu að flýja til Ítalíu. Konungs-
hjónin skildu og Nariman bjó í h'tilli
íbúð í Kaíró síðustu árin. Hún hafði lif-
að báða syni sína en lést vegna heila-
æxlis.
Díana hefði getað
lifað slysið af
Læknir sem barðist fyrir lífi
Díönu prinsessu segir að prinsess-
an hefði getað lifað slysið af.
Læknirinn Leonardo Esteves Lima
talaði nýlega f fyrsta skipti um
slysið hörmulega. Hann segir
björgunarmennina hafa reynt
margt til að bjarga prinsessunni
en hún hafi á endanúm dáið á
leiðinni á sjúkrahúsið. „Díana
hefði líklega lifað af ef við hefðum
einbeitt okkur að því að bjarga
henni f staðinn
fyrir að keyra
með hana í
tvo tíma
ásjúkra-
húsið,"
sagði hann
og bættivið
að björgun-
/ arliðiðhefði
[■ verið of varkárt
þar sem um
4 f prinsessuna hefði ver-
, ið að ræða.
1
Heimsóttu hörm-
ungasvæðin
Karl Gústaf konungur og Silvia
heimsóttu Phuket á Taílandi á
föstudaginn. Sænsku konungs-
hjónin dvöldu í fjóra daga í land-
inu til að votta landsmönnum
virðingu sína og þakka þeim fyrir
alla þá hjálp sem sænskum ferða-
mönnum, sem lentu í hörmung-
unum, var veitt. Konungshjónin
heimsóttu Bhumibol Adulyadej,
konung landsins, og Sirikit drottn-
ingu og þökkuðu þeim fyrir alla þá
hjálp sem Svíar hefðu fengið. Karl
Gústaf og Silvia héldu svo heim
um helgina en þau eru hæst settu
persónumar sem heimsótt hafa
hörmungasvæðin síðan risaaldan
reið yfir.
Friðrik og Mary
rómantískust
f könnun sem gerð var af tfmaritinu
Hello f tilefní Valentfnusardagsins
voru Friðrik krónprins og Mary
prinsessa valin rómantfskasta parið.
Parið er greinilega afar vinsælt en
þau sigruðu hvert stjörnuparið á
fætur öðru (könnunlnn! og fengu
meira en 50% atkvæða. Lelkaraparið
Jude Law og Sienna Miller lentu I
öðru sæti með aðeins 8,5 % at-
kvæða. Aðrir
konungborn-
ir sem
komust á list-
ann voru
Zara Phillips
og kærastinn
hennar Mike
enþaufengu
6,5%.
Skelltu sér á skíði
Hollenski krónprinsinn Willem Alex-
ander bauð eiginkonunni Maximu
prinsessu og Amaliu, lltlu dóttur
v þeirra, í skíðaferð til Austurríkis um
helgina. Parið skemmti sér vel i skíða-
paradísinni Lech sem er talið eitt fal-
legasta þorp í Evrópu en þar var Díana
prinsessa vön að skella sér á skíði með
Harry og Vilhjálmi sonum sinum.
Einnig var kvikmyndin um Brigdet
Jones, The Edge of Reason, tekin þar
upp. Felipe Spánarprins og Letizia
prinsessa notuðu elnnig helgina til að
skella sér á sklði á Spáni.
<
Konungshjón í raun-
veruleikaþætti
Elísabet drottning ætlar sér að leika I
nýjum raunveruleikaþætti. Konungs-
höllln hefur gert samning við breska
sjónvarpsstöð um að fá að fylgja
drottningunni eftir I höllinni. Philip
prins ætlar einnig að koma fram I
þáttunum en hann mun veita (tarlegt
viðtal. „Þættirnir munu snúast um lífið
I Windsor-kastala," sagði framleiðandi
og bætti við að
ekki væri vitað
hvenær upptök-
ur hæfust.
„Kannski verðum
við að taka upp
á sama tlma og
Karl giftist
Camillu."
Snobbaða prinsesss
neyl
Michael prinsessa af Kent er einn umdeildasti meðlimur
bresku konungsfjölskyldunnar. Prinsessan þykir afar snobbuð
og er af mörgum talin kynþáttahatari. Prinsessan hefur viður-
kennt að hún noti botox að staðaldri og segir að allir sem
komnir eru yfir 25 ára aldurinn ættu að prófa.
Michael prinsessa af Kent lyfti
oft augabrúnum er hún mætti í við-
tal á dögunum. í viðtalinu viður-
kenndi prinsessan að hafa notað
fegurðarefnið botox að staðaldri
síðastliðin fimm ár en efnið er búið
til úr rottueitri og er sprautað í and-
litið til að eyða hrukkum. „Auðvitað
nota ég botox og að mínu mati ættu
allir sem komnir eru yfir 25 ára ald-
urinn að prófa það."
Prinsessan sagðist enn ífemur
vorkenna Harry frænda sínum.
„Enginn hefði sagt neitt ef hann
hefði klæðst búningi með hamar og
sigð þótt það sé merki um illsku
Stalíns en þar sem hann minnti á
helförina varð allt brjálað. Þetta
snýst allt um eignarhald á fjölmiðl-
unum." Ummæli prinsessunar hafa
vakið upp mikla reiði í Þýskalandi
og eitt dagblaðið sagði hana gyð-
ingahatara. „Hvað er prinsessan
eiginlega að meina. Eru gyðingar
alls staðar fyrir henni?" stóð í blað-
inu. Talsmaður prinsessunnar,
Simon Astaire, svaraði fyrir hana og
sagði hana alls ekki gyðingahatara.
„Ég er gyðingur og hef aldrei fundið
kynþá
I vi
fyrir neinu frá henni. Hún er enginn
Dáttahatari."
í viðtalinu talaði Michael einnig
um Elísabetu drottningu. „Ég veit
alveg hvernig drottningin er. Hún er
köld og leiðinleg við ókunnuga en
við íjölskyldu og vini er hún allt
önnur manneskja, bæði skemmti-
leg og fyndin."
Enn fremur talaði prinsessan um
að Bretar tækju ræktun hunda og
hesta af meiri alvöru en börnin sín.
„Guð forði þeim frá að blanda röng-
um blóðdropa saman við hreinan er
þeir rækta hunda. En á sama tíma
leyfa þeir börnunum sínum að gift-
ast hverjum sem er," sagði hún en
bætti við að hún hefði ekk-
ert á móti því að konung-
borið fólk giftist fólki af al-
múgaættum. „Tímarnir
eru breyttir en ég gæti al-
veg ímyndað mér að gam-
aldags fyrirfram ákveðin
hjónbönd myndu virka
betur," sagði prinsessan sem á ættir
sínar að rekja til Austurríkis þar sem
faðir hennar starfaði innan Nasista-
flokksins.
Michael prinsessa af Kent
„Ég veit alveg hvernig drottning
in er. Hún er köld viö ókunnuga
en við fjölskyldu og vini er hún
allt önnur manneskja, skemmti-
leg og fyndin."
Karl Bretaprins og Camilla Parker gætu þurft að leyfa ókunnugum að mæta í brúðkaupið.
Öryggi krónprinsins í hættu
Karl Bretaprins og Camilla Parker
Bowles gætu þurft að leyfa almenn-
ingi að mæta í brúðkaupið sem
haldið verður 8. apríl. Brúðkaupið
verður haldið í sal í bænum en ekki í
Windsor-kastala þar sem kastalinn
yrði að vera opinn fyrir brúðkaup al-
mennings þrjú ár á eftir. „Við eigum
eftir að fara yfir mörg öryggisatriði,"
sagði í tilkynningu frá Clarence
House. „En ef almenningur má lög-
um samkvæmt mæta verður að leyfa
það."
Lögfræðingar krónprinsins leita
nú að leiðum til að banna aðgang
ókunnugra að athöfninni enda
hræddir um að öfgahópar, eins og
Fathers4Justice, myndu nota tæki-
færið til að trufla athöfnina.
George Bush, Bandarfkjaforseti,
hefur bannað Camillu Parker
Bowles að mæta í Hvíta húsið þar
sem hún er fráskilin. Snobbið í for-
setanum hefur því eyðilagt ferða-
áætlun krónprinsins síðar á árinu
þegar hann ætlaði að bjóða Camillu
með sér í þeirra fyrstu opinbera
heimsókn sem hjón.
Karl og Camilla George Bui
Bandarlkjaforseti, hefur bann,
Camillu Parker Bowles að mæt,
Hv,ta húsið þar sem hún er fráskili