Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 Helgarblaö DV Tóti og Kormákur „Þegar við hittumst notum við tím- ann vel og förum ísund, gefum önd- unum, spilum fótbolta, horfum á teiknimvndir og spilum." Huga Þóris- soninn son sem ur er nú fluttur meö mömmu sinni til Svíþjóöar svo Þórir, sem kailaöur er Tóti, hefur ekki séð hann síðan um ára- mótin. „Mér finnst mjög erfitt aö hann skuli búa svona langt í burtu en mamma hans fór í skóla þama úti. Ég er allt ann- aö en sáttur en get ekkert gert í þessu þar sem hún er meö forræðið en ég bara með um- gengnisrétt. Eg vona bara aö þau komi heim sem fýrst," segir Tóti sem hefur lokið ööru ári í sagnftæði en starfar nú viö að reisa stálgrindarhús. „Áöur en þau fluttu út hitt- umst við aöra hvora helgi. Þegar við hittumst notum við tímann vel og förum í sund, gefum öndunum, spilum fót- bolta, horfum á teiknimyndir og spilum. Um jólin var hann mikið hjá mér og hann mun koma og vera hjá mér í sum- ar," segir hann og bætir við að þá muni þeir lfklega fara til Akureyrar til aö heimsækja afa hans og ömm,u en Tóti er frá Akureyri. Kærastan hans Tóta heitir Guðný og að sögn Tóta kemur henni og Kormáki afar vel saman. „Þeim þykir mjög vænt hvort um annaö og eru miklir vinir," segir Tóti og bætir við að þau myndu bæði vilja hitta hann miklu oftar. „Það þarf alvarlega að fara að skoða þessi lög miðað við hvemig samfélagið er í dag. Þetta er ekki eins og það var, þegar konan var alltaf heima. Konur hafa allan réttinn sínu megin en karlar engan og að mínu mati er þetta mjög ósanngjamt. Maður hefur bara ekkert um þetta að segja heldur hirðir bara það sem maður fær. Ég veit um marga aðra feður sem eiga í svipuð- vun erfiðleikum með að fá að hitta bömin sín og em ósáttir við þetta kerfi. Maöur hefur svo lítinn rétt þegar maður er bara með umgengnisrétt og f mínu tilfelli flutti hún bara með hann út. Það eina sem hún þurftí að gera var að segja mér það með 30 daga fyrirvara og svo var hún farin. Þetta er í annað skiptið sem hún fer út með hann. Núna flutti hún fyrst með hann norður og svo út en líf hann var nýkomið f fastar skorður og þetta er nátt- úrlega verst fyrir hann.“ Tómas Tómasson bassaleikari segir nú sína síðustu sögu af Stuðmönnum og öðrum í Helgarblaði DV. Hér segir frá því þegar tveir félagar Þursaflokksins fengu gistingu hjá hjónum í þorpi úti á landi. Þursaflokkurinn Eittsinn er Þursaflokkurinn lékilitlu sjávarþorpi úti á landi lentu þeir Tómas og félagi hans f flokknum í einum mestu hremmingum llfs sfns. Þursaflokkupinn flúDi kynlnsþorsta bahaia-nars Fóik á landsbyggðinni er yfirleitt mun villtara en höfuðborgarbúar þegar kemur að partíum eftir tón- leika. Eitt sinn er Þursaflokkurinn lék í litlu sjávarþorpi úti á landi lentu þeir Tómas og félagi hans í flokknum í einum mestu hremm- ingum lífs síns er þeir þurftu að flýja fáklæddir úr einbýlishúsi undan áköfum kynlífsþorsta hjóna er þar bjuggu. Hjón þessi voru mektarfólk á staðnum og framarlega í bahaia- söfnuði þorpsins. Tónleikar Þursaflokksins í þorp- inu voru að vetri til og liður í hring- ferð þeirra um land- ið í rút- íA' unni Laugu. Allt gekk eðlilega fyrir sig og lauk tónleik- ■j| unum um ■Éjj eittleytið um B| nóttina. Flestir í hópnum vildu halda áfram ferð- inni með t rútunni um nóttina Sögur Tómasar frænda þrátt fyrir ótryggt veð- urútlit. X. Tómas og fé- lagi hans vildu hins vegar ekki hætta á slíka ferð, vildu ffemur taka flugið suður með fyrstu vél morguninn eftir. Þar að auki höfðu hjón ein á staðnum boðið þeim heim til sín og lokkað með loforðum um nóg af bjór og búsi, en saga þessi gerist töluvert áður en bjórinn varð löglegur hérl- endis. Á gegnsæjum silkislopp Tómas og félagi hans gripu svefnpokana sína úr rútunni og héldu með hjónunum í risastórt einbýlishús þeirra. Þar var setið að sumbli fram eftir nóttu. Þeir félagar voru enn klæddir í hljómsveitarföt sín, sem voru jakkaföt með skák- borðsmynstri, rauðir og hvítir fletir. Ef rétt er munað voru þetta leikbún- ingar úr söngleiknum Oklahoma. Seint um nóttina tóku þeir Tómas eftir því að húsmóðirin var komin í gegnsæjan rauðan silkislopp sem lét lítið eftir handa ímyndunarafl- inu. Var hún öll hin tilkippilegasta í stofusófanum. Ákváðú þeir félagar að þegar hér var komið sögu væri réttast að fara að halla sér. Lögðust þeir ofan í svefnpokana í einu af herbergjunum í húsinu. Þreifingar í myrkri Tómas er rétt að festa svefninn er hann verður var við að húsbóndinn á heimilinu er kominn nakinn inn til þeirra og lagstur við hlið sér og farinn að þreifa á svefhpokanum. Tekur Tómas til þess ráðs að gefa mannin- um hörkulegt olbogaskot. Ekki tekur betra við því maðurinn stendur þá upp fer að félaganum og sest klofvega yfir andlit hans. Vaknar sá upp með andfælum en Tómas sér út undan sér að silkisloppurinn er kominn í dyra- gættina. Þeir félagar stökkva á fætur og tekst að komast við illan leik, hálfklæddir, út úr húsinu. Fá hvergi inni Þegar út á götu er komið snemma um morguninn tekur ekki betra við því fremur kalt er í veðri, frost og slydda, og allt lokað. Loks hitta þeir mann sem segir þeim að búið sé að opna Flugfélagsskrifstof- una. Þeir arka þangað en þegar starfsfólkið sér jakkafötin tvö með skákborðsmynstrinu koma hlaup- andi að útidyrunum er það snöggt að skella í lás. Kallar svo út um hurðina að þeir tveir geti ekki beðið innandyra fyrr en byrjað verður að bóka í flugið suður seinna um morguninn. Lopapeysa og kaffi Þeir félagar ganga um þorpið nær dauða en lífl af kulda og koma að lokum niður á höfnina. Þeim til happs vill svo til að eitt af fraktskip- um Eimskips er að leggja að bryggju og út á dekki stendur einn skipverja sem er málkunnur Tómasi. Hann býður þeim um borð og útvegar þeim bæði lopapeysum og kaffi- bolla. Dvelja þeir um borð þar til Flugleiðaskrifstofan byrjar að bóka í flugið suður seinna um morguninn. P.S. Þetta er síðasta sagan flá Tomma í bili þar sem bókaútgef- andi nokkur hér í bæ hefur sýnt því áhuga að setja saman bók með sög- unum til útrásar á næsta jólabóka- markað. Munu sögurnar liggja niðri meðan á þreifingum um málið stendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.