Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Blaðsíða 37
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 37
„Þegar ég hugsaði þetta nánar sá
ég að þetta var einmitt eitthvað fyrir
mig og fór af stað að finna skóla.
Fann hann í Colarado í Bandaríkjun-
um og þangað fór ég um haustið í
stað þess að fara til Þýskalands," seg-
ir hún og bætir við að þeirri
kúvendingu hafi hún aldrei séð eftir.
í Colorado lærði hún heilsufræði og
róttafræði var ánægð með skólann.
sumrin kom hún heim með það
nýjasta í Kkamsræktinni, glóvolgt frá
Ameríku og hélt áfram með
vinkonunum úr Versló.
í samstarf með Jónínu Ben
Eftir námið var Ágústa ákveðin í
að skapa sér atvinnu með þeirri
þekkingu sem hún hafði aflað sér. „í
mér er viðskipta-eliment og ég gat vel
hugsað mér að leyfa því að njóta sín.
Ég var búin að fá starf í Heimilis-
tækjum um sumarið en áttaði mig á
að það væri ekki eftir neinu að bíða.
Jónína Benediktsdóttir var með lík-
amsrækt í Engihjallanum og það varð
úr að við sameinuðum krafta okkar
og stofnuðum Stúdíó Jóninu og
Ágústu. Við áttum engan pening,
enda var ég ekld nema rúmlega tví-
mg. Við fórum af stað og fundum
húsnæði en vantaði pening til að inn-
rétta og gera klárt fyrir líkamsrækt.
Bankarnir voru ekki eins opnir á
þessum tíma og nú er og ég held að
við höfum ekki einu sinni reynt að fá
lán hjá þeim. Þess í stað leituðum við
til Húsasmiðjunnar og þar treystu
menn okkur og lánuðu allt efni sem
við þurftum," segir Ágústa og rifjar
áffarn upp þessi fyrstu ár. „Þetta var í
kringum 1986 og áhugi manna á lík-
amsrækt var í fyrir alvöru farin af
stað,“ bendir hún á.
Kynntist Hrafni í dansi
Stúdíó Jónínu og Ágúsm gekk vel,
þær unnu báðar af krafti í fyrirtækinu
og ekki leið á löngu uns fyrirtækið fór
að bera arð. Skömmu síðar flutti
Jónína til Svíþjóðar og Ágústa keypti
hana út. Hún var þá farin að vera
meÖ Hrafni, fyrri manni sínum, og
hann kom inn í staðinn og nafhið
breyttist í Stúdíó Ágústu og Hrafns.
„Ég kynntist Hrafhi í dansi en ég
var á kafi i samkvæmisdönsum hjá
Auði Haralds. Hún var viðskiptavinur
mihn og hvatti mig til að koma og
lærá'áð dansa. Ég dreif mig og það
var ofsalega gaman að dansa. Hrafti
var þar líka að dansa og við fórum að
vera saman og giftum okkur síðar.
Fyrirtækið gekk vel hjá okkur og við
unnum bæði við það,“ rifjar Ágústa
upp.
Fóru í andstæðar áttir
Hrafn og Ágústa eignuðust tvö
börn og vom hamingjusamlega gift,
vom þekkt og fólk fylgdist með þeim
kann að vera sagt um það er ekki
satt,“ segir hún og leggur áherslu á
orð sín.
Hefur það gott í Hreyfingu
Þegar þau Ágústa og Hrafn fóm í
andstæðar áttir var fyrirtæki þeirra
orðið að Hreyfingu en á móti þeim
átti Grímur Sæmundsen helming.
Hrafn dró sig út úr fyrirtækinu við
skilnaðinn. „Nú rek ég Hreyfingu
eins og áður og Grímur á fyrirtækið á
móti mér. Hann kemur ekki að dag-
legum rekstri en ég sé um reksturinn.
Þetta gengur mjög vel enda er Hreyf-
ing stöðugt fyrirtæki sem hefur
frábært starfsfólk og mjög marga
fasta viðskiptavini. En það er með
Hreyfingu eins og önnur fyrirtæki,
maður verður alltaf að vera vakandi
og má alls ekki slaka á. Ekkert
fyrirtæki rekur sig sjálft og maður
þarf að vera vakin og sofin yfir því. Ég
hef rekið mig á það einu sinni að það
getur verið dýrt spaug að slaka á. Ég
sofnaði á verðinum fyrir mörgum
árum og lærði af því. Sem betur fer
var það mér ekki dýrkeyptur lær-
dómur, ég áttaði mig í tt'ma. Þá voru
reikningarnir famir að berast ótt og
títt og stundum erfitt að ná endum
saman. Það kemur ekki fyrir lengur
og ég þarf ekki að kvarta," segir
Ágústa og neitar á að líkamsræktin
hafi gert hana forríka.
„Nei, ég er ekki forrík en ég er
lánsöm og hef það gott. Ég er hérna á
hverjum degi frá níu á morgnana til
fjögur á daginn. Á föstudögum reyni
ég að komast fyrr heim. En auðvitað
er það oft þannig að maður sest við
tölvuna á kvöldin eftir að börnin eru
komin í ró og tekur vinnurispu.
Nú er ég farin að kenna aðeins
aftur en ég tók mér hvfld um tíma og
það er virkilega gaman að vera aftur
komin í kennslu," segir hún glaðlega
og útskýrir að þær stundir komi að
þeir sem eru ár eftir ár í þessu verði
stundum að taka sér hvfld frá
kennslu til að endumýja sig. „Ég
hafði gott af því og nú finnst mér
ofsalega gaman að kenna," segir
Ágústa.
Varð ástfangin af Guðlaugi
Þór
Það vakti mikla athygli þegar
Ágústa fór að vera með Guðlaugi Þór
Þórðarsyni alþingismanni og borgar-
fulltrúa.
„Ég þekkti Guðlaug, en hann var
viðskiptavinur hjá mér þegar ég gaf
kost á mér á lista Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjómarkosningamar
1998. Þá vorum við nokkur úr hópi
ungra athafnarmanna sem tókum
sæti á listanum. Ég hafði komið nærri
starfi flokksins um nokkurt skeið en
ekki verið mjög aktív f því starfi. Mér
þótti spennandi að takast á við þetta
„Bíddu, ég held að það séu tvö þarna en ég sé
það ekkinákvæmlega,"og ég kipptist við. Var
alveg til í að eignast tvíbura en fékk samt smá
hjartslátt. Læknirinn sagðist ekki geta séð það
en sagði mér að koma eftir þrjár vikur."
eins og öðrum í þeirra sporum. Þeim
lánaðist hins vegar ekki að vera sam-
an áfram og skildu.
Ágústa segir að skilnaðir séu fólki
alltaf erfiðir, hvort sem fólk upplifi
höfnun eða ekki. Alltaf taki það á að
skilja, einkum og sér í lagi ef börn em
í spilinu. „Auðvitað var það Hrafni
erfitt að hafa ekki börnin sín áfram á
heimilinu. Þannig er það oft með
feður, þeir þurfa að gh'ma við
tvöfaldan söknuð. En skilnaður okkar
var ekkert öðmvísi en aðrir. Okkur
leið ekki vel saman lengur og það var
ekki um annað að ræða en fara sitt í
hvora áttina," segir hún og bendir á
að það hafi verið henni erfitt ekki síð-
ur en Hrafni að takast að við það sem
fylgir skilnaði. „En öll sár gróa um
síðir og ég veit ekki annað en Hrafhi
h'ði vel. Hann er í Bandaríkjunum í
námi í sálfræði og gengur vel. Hann
er mikill sómamaður og með honum
á ég tvö böm,“ segir hún og neitar að
þau séu óvinir eða að stirt sé á milli
þeirra.
„Alls ekki, við tölum saman, enda
eigum við börn. Samskipti okkar em
með ágætum og það er ekki neitt
meira um það að segja. Annað sem
og samþykkti að vera með. Guðlaug-
ur Þór var einn okkar og við kynnt-
umst ágætíega í aðdraganda
kosninga.
Hún segir að hún hafi verið dálítið
hikandi í fyrstu, en eftir því sem hún
kynntist Guðlaugi Þór betur hafi hún
áttað sig á hvaða mann hann hafði að
geyma. „Gulli er ofsalega skemmti-
legur strákur og það er gaman að vera
með honum. Hann er alltaf kátur og
hress, með einstakt skap og okkur
hður vel saman. Ég hélt í byrjun að
það væri satt sem menn sögðu að
hann væri djammari en það kom
fljótíega í ljós að hann var það alls
ekki. Auðvitað var hann mikið út á
við einhleypur maðurinn, enda hafði
hann ekki annað að gera, en þegar
hann var komin í samband breyttist
það fljótt," segir Ágústa og mýkist öll
í framan þegar hún talar um Gulla.
Þau hófu samband sitt um sumar
en um haustið fóru þau að búa sam-
an. Ágústa varð svo ófrísk af
tvíburunum tveimur árum síðar.
„Ég var ofsalega spennt að eignast
barn aftur og fljótlega varð ég þess
vör að mér leið ekki eins og í hin tvö
skiptin. Ég fór þá í sónar og læknirinn
Heima (Grafarvogi með Guðlaugi og börnunum
Lengst til vinstri er Rafn semerlO ára, þá Guðlaugur
með Þórö, annan tiburann, Ágústa með Sonju, hinn
tviburann og Anna Ýr sem á að fermast f vor
Æðislegt að eiga tvíbura Ágústa meö
tvfburana sem hún var afar sæl með og hafa alla
tfð verið mjög rálegir og þægilegir við að eiga.
sagði: „Bíddu, ég held að það séu tvö
þama en ég sé það ekki nákvæm-
lega,“ og ég kipptist við. Var alveg til í
að eignast tvíbura en fékk samt smá
hjartslátt. Læknirinn sagðist ekki geta
séð það en sagði mér að koma eftir
tvær vikur, og það tók á taugarnar að
bíða í þessar tvær vikur. Okkur lang-
aði að eignast tvíbura en vorum samt
smeyk.
Skemmtilegt að eiga tvíbura
Þegar það varð síðan ljóst að
Ágústa bæri tvö böm undir belti urðu
þau bæði mjög ánægð. „Ég varð ofsa-
lega spennt og hlakkaði til. Meðgang-
an gekk vel, fyrir utan fyrstu vikumar,
en þá var mér mjög flökurt. Það leið
fljótt hjá og eftir það var þetta yndis-
legt. Ég fékk hríðir mánuði fyrir tím-
an og það var ákveðið að taka þau
með keisara. Allt gekk vel og þau vom
tiltölulega stór, tæpar m'tján merkur
til samans," segir hún. Það breyttist
heilmikið við að fá tvö ungböm inn á
heimilið en Ágústa segir að Gulli hafi
tekið fullan þátt í uppeldinu og um-
mönnun þeirra ffá fyrsta degi. „Ég
hefði heldur ekki vahð mér mann
nema ég væri viss um að hann myndi
vera með mér í þessu," segir hún og
hlær.
Guðlaugur hefur sannarlega verið
góður eiginmaður og faðir þessi ár
sem hðin em síðan. Ágústa segir
hann taka þátt í heimilislífinu af full-
um krafti. Þau vinni bæði úti og
vissulega hafi hann mikið að gera en
hann leggi sig fram um að skipulegg-
ja tímann þannig að þau eigi saman
kvöldin og helgamar. Stundum sé
það ekki alveg á hans valdi, en aha
jafna njóti þau þess að
sinna börnunum
saman.
Ágústa segir
hennar börn taka
Guðlaugi vel, það
séu ekki neinir
árekstrar sem
heitið geti á milh
þeirra og allt
renni þetta ,
ljúflega. „Ég
er mjög
ánægð og
það hefur
aldrei
verið
neitt
mál að
vera
með tví-
bura sem
em af sitt
hvom kyni.
Þau vom strax
mjög vær og
góð, sváfu
meira eða minna allar nætur. Eftir að
þau stækkuðu hefur þeim komið
mjög vel saman, leika sér mikið
þannig að segja má að ég hafi fengið
allt það skemmtilega við að eiga tví-
bura,“ segirÁgústa glaðlega.
Heilsubitinn góður
Heilsubitinn hennarÁgústu John-
son hefur fengið góðar viðtökur.
„Minna mál Ágústu Johnson" heita
bitamir sem em afar ljúffengir og
hægt er að fá í nokkmm bragðteg-
undum. Myllan flytur þá inn en til-
koma Ágústu að þeim var fyrir tilstilli
þeirra. „Þeir töluðu við mig og báðu
mig að smakka og ég gerði það. Mér
lfkaði vel þessar htíu heilsukökur sem
framleiddar em úr hoUum og góðum
hráefnum. Fannst tími til komin að
framleitt væri eitthvað til mótvægis
við aUt snakkið sem unglingar úða í
sig og er fuUt af salti og aukaefnum.
Ég samþykkti því að leggja mitt nafii
við heilsubitana og get sannarlega
mælt með þeim,“ segir hún og bætir
við að hún hafi aUtaf lagt sig fr am við
að borða hoUan og góðan mat. Það
fylgi því að rækta hkamann en það
hefur Ágústa gert alveg síðan hún var
krakki. Var í fimleikum, djassbaUet og
áður en líkamsræktaræðið gekk yfir
hér á landi var hún farin að byggja
upp lflcama sinn. Svo kom Jane
Fonda og síðan hefur Ágústa verið í
góðu formi. Hún er ekki í vafa um að
orka hennar sé næg, fyrst og fremst
vegna þessa.
„Ég hef eini sinni dottið dáh'tið
niður í þjálfun og mæh aUs ekki með
því. Mér h'ður best þegar ég
er að æfa og heima bórð-
um við hoUan mat. Ég er
óspör á að halda honum
að börnunum mínum
^ og þau kaUa „Minna
mál", mömmukex. Gulh
var h'tið fyrir grænmeti
þegar við kynntust og
bað vanalega um
samloku með
öUu nema
þessu
græna," segir
hún og
^ skeUihlær.
Nú hef-
ur hann
lært að
borða
græn-
meti og
þykir það
gott en Ágústa
segir að aUt sé
Það vakti mikla
athygli þegar Ágústa
fór að vera með Guð-
laugi Þór Þórðarsyni
alþingismanni og
borgarfulltrúa.
Mikið var talað og
allir höfðu skoðanir
á sambandi þeirra.
þetta háð vana og vera opin fyrir því
að smakka. „Manni líður svo miklu
betur þegar maður veltir fyrir sér
hvað fer ofan í rnann," segir hún og
bætir við að það þýði heldur ekki að
vera með ofstæki eða öfgar. AUt er
gott í hófi!
Stutt stopp í pólitík
Póhtískt líf Ágústu var ekki langt.
Hún var kjörin varaborgarfuUtrúi
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjómar-
kosningum 1998 og sat í nefndum á
kjörtímabiUnu. „Nei, ég fór aldrei inn
í borgarstjóm en mér bauðst það
oftar en einu sinni. Gat bara aUs ekki
setið svona langa fundi. Borgar-
stjórnarfundir em langt ffarn á nótt
og fyrir konu með böm er það ofsa-
lega erfitt," segir hún og útskýrir að
hún hafi aðeins verið með eitt kjör-
tímabU.
Nú fylgist Ágústa með manni sín-
um í póhtfldnni og er ánægð með
hans störf. Hún játar að Guðlaugur
hafi mUdð að gera en aUt gangi þetta
upp. „Við tökum okkur þann tíma
saman sem við getum. Oft reyni ég að
fara með GuUa í ferðir sem hann þarf
að fara í vegna vinnunnar og hann
kemur með mér. Þess utan reynum
við að taka okkur daga í kringum
helgar og skreppa út tU að slappa af.
Bæði erum við mUdð fyrir að vera
heima með fjölskyldunni og hvergi
h'ður okkur betur en þar. Ég held að
lífið sé eins gott og það getur verið og
hvemig er líka hægt að biðja um
meira. Vera í starfi sem mér lflcar og
menntaði mig tfl að sinna, eiga góð-
an mann, böm sem em að vaxa úr
grasi og litla tvíbura sem em eins og
hugur minn," segir Ágústa sátt og
ánægð.
bergljot@dv.is
Hrafn og Ágústa fyrir nokkrum árum
“Hrafn er í námi i Bandaríkjunum og gengur vel. Hann er hinn mætasti maður
og á milli okkar er gott samband enda eigum við yndisleg börn saman.