Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR26. FEBRÚAR 2005
Helgarblað DV
I Karítas Bergsdóttir Bar
ekki kennsl á landsþekktan
söngvara sem vildi æla.
'
Geirólafs Vildiekki
tala I tlkallasíma.
Frétt DV Magaveikur
söngvari látinn blása I
blöðru.
Geir Ólafsson tónlistarmaður segir áreiti í hans garð óþolandi. Of langt sé gengið þegar lög-
reglan sé farin að ónáða hann út af engu. Geir heldur bráðlega upp á fimm ára edrú-afmælið
sitt en segir afbrýðisemi íslendinga gríðalega og að hann sé búinn að fá nóg.
Nn er nón knmið
„Það er bara óþolandi að frægt
fólk geti ekki átt sitt einkalíf í friði,"
segir söngvarinn Geir Ólafsson
sem hér ætlar að gera hreint fyrir
sínum dyrum. Eins og kom fram í
DV í vikunni var Geir grunaður um
að hafa verið ölvaður undir stýri.
Hann hafði verið að keyra frá
stúdíóinu þegar hann fékk mikinn
verk í magann og því lagt bílnum
hjá Select-bensínstöð og beðið um
að fá að nota salemið þar sem
hann var að því kominn að kasta
upp. Stúlkan sem þar var við vinnu
vildi hins vegar ekki hleypa honum
á klósettið en hringdi á lögregluna
eftir að Geir var farinn og tilkynnti
að hann væri drukkinn undir stýri.
Frægt fólk hefur tilfinningar
„Svona endalausar kjaftasögur
eru fullþreytandi til lengdar og sér-
staklega þegar þær ganga svo
nærri manni að maður er ónáðað-
ur af lögreglu út af engu. Það er
algjörlega verið að trafla einkalíf
manns og engin heilbrigð mann-
eskja myndi láta máhð ganga
svona langt. Þarna var ég, svo flök-
urt að ég vissi hvorki í þennan
heim né annan, en fékk ekki að
fara á klósettið og þegar ég kem
heim bíður lögreglan mín eins og
um stórglæpamann væri um að
ræða. Ég er alveg viss um að ef
þetta hefði ekki verið ég hefði þetta
aldrei gengið svona langt. Það þarf
að koma fólki í skilning um að við
fræga fólkið erum með tilfinningar
og þarfir eins og allir aðrir þó að
við séum opinberir einstaklingar,"
segir Geir og bætir við að stúlkunni
í Seleq^ hafi líklega fundist þetta
sniðugt. ‘,Ég held að eðlileg mann-
eskja myndi gera sér grein fyrir því
hvort hún væri að tala við fullan
mann eða manneskju sem væri illt
í maganum. Ég hef aldrei nokkum
tíma séð þessa konu áður og veit
ekki einu sinni hvemig hún h'tur
út. Ef henni er svona annt um ör-
yggil almennra borgara þá hefði
hún frekar átt að hringja á lögregl-
una á meðan ég hefði verið á kló-
settinu í stað þess að senda mig
„fuilan‘‘ á bílnum til baka. Þetta er
ekkert annað en athyglissýki ama-
törsins. Ef ég ynni hjá bensínstöð
og til mín kæmi maður sem væri
illt þá myndi það ekki skipta mig
máíi þótt einhver yfirmaður hefði
bannað aðgang viðskiptavina að
salerninu."
Fimm ára edrú-afmæli
Geir segir lögregluna hafa unn-
„Ég er alveg viss
um að efþetta
hefði ekki veríð ég
hefðiþetta aldrei
gengið svona
langt. Það þarfað
koma fólki í skiln-
ing um að við
fræga fólkið erum
með tilfinningar
og þarfir eins og
allir aðrirþó að
við séum opinber-
ir einstaklingar."
Geir Ólafsson „Efégynni á bens-
Instöð og til mín kæmi maður sem
vær'r illt þá myndi það ekki skipta
mig máli þótt einhver yfirmaður
hefðibannað aðgang viðskiptavina
að salerninu."
ið sína vinnu en hann hafi þurft
að bíða legni eftir öðrum lög-
reglubíl svo hann gæti blásið í
marktækari blöðra. „Ég blés í full-
komnustu blöðra lögreglunnar og
því nokkuð ljóst að ég var edrú
enda mun ég bráðlega halda upp
á fimm ára edrú-afmælið mitt.
Þetta var ágæt áminning um það
en ég hefði viljað gera það á minn
hátt. Þetta skiptir mig miklu máli
og það eina sem hefur fleygt mér
áfram er að hætta að drekka
brennivín og byrja nýtt líf eins og
sést á mínum verkum,“ segir Geir
en ætlar ekki að eyða meiri orku í
málið en vill þó að fólk geri sér
grein fyrir að ef það verði komið
svona fram við hann í framtíðinni
þá muni hann fara með málið
lengra.
Ég á mitt einkalíf sjálfur
Geir segir áreiú í garð þekktra
einstaklinga hér á landi löngu orð-
ið eins og gengur og gerist erlend-
is. Fólk sé rosalega afbrýðisamt og
margir njótí þess að fá athygli út
það á að segja frá einkamálum
annarra. „Það verður enginn hvít-
ari af því að sverta annan í þessu
h'fi og þetta er bara eitt af mörgu
sem maður lendir í. Það er alltaf
verið að ónáða mann, senda
manni gjafir, sem er fallegt, en nú
er komið nóg. ísland er svo h'tíð
land og hér þarf maður ekki að
gorta sig af því að vera frægur en
þótt maður sé þekktur á maður að
fá að vera í friði. Ég hef aldrei litíð
stórt á mig, kem eins fram við alla
og ber virðingu fyrir fólki og vil að
það verði komið eins ffarn við mig.
Þegar fólk er farið að koma sér á
framfæri á minn kostnað þá er það
alveg á hreinu að ég segi stopp og
vil koma málunum á hreint. Ég vil
láta gott af mér leiða í þjóðfélag-
inu. Mér er annt um lög og reglu,
þykir vænt um fólkið í landinu og
þykir gaman að geta sagst lifa á því
sem mér þykir skemmtilegast að
gera. En ég á mitt einkalíf og vil
hafa það út af fyrir mig. Þótt ég sé
skemmtikraftur, einhvers konar
eign þjóðarinnar, þá á ég sjálfur
mitt einkah'f."
Select - fólkið 1 Öskjuhlíð segir sannleikann
Þekkti ekki Geir Ólafs
„Honum varð bara flökurt vegna þess að við
þekktum hann ekki,“ segir Karítas Bergsdóttir,
næturvaktstjóri á Select f Öskjuhhð, sem fékk
Geir Ólafsson söngvara í heimsókn í fyrrinótt.
Eins og greint var frá á baksíðu DV í gær óð
Geir inn í Select og heimtaði að fá að æla vegna
ógleði. Starfsfólk brást hins vegar svo við að
það hringdi á lögregluna og tilkynntí að það
grunaði að söngvarinn væri ölvaður. Lögreglan
beið Geirs þegar hann kom heim á bil sínum
frávita af ógleði eftir heimsóknina á Select.
„Sannleikurinn er sá að þessi maður kom
hingað og bað um að fá að hringja. Við bentum
honum á tíkallasíma sem greinilega var ekki
nógu fínn fyrir hann,“ segir Karítas sem vissi
ekkert við hvem hún var að ræða þama um
nóttina. „Þegar hann fékk ekki síma hjá
okkur heímtaði hann að fá að æla í kló-
settíð hjá okkur. Við neituðum honum
um að fara inn á starfsmamiasalernin,
enda er það vinnuregla hjá okkur lfkt
og hitt að hringja á lögreglu granum
við einhvem viðskiptavin okkar um
að vera ölvaður og á bíl.“
Karítas Bergsdóttir, vaktstjóri á
Select, segir Geir Ólafs
ekki eiga að fá
einhverja sérs-
taka með-
höndlun á
bensínstöðvum
þó að honum
sjálfum finnist
það. Réttast sé að
lækka rostann í
svona mönnum
sem telji sig
merkilegri en
aðra.