Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2005, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005
Helgarblað DV
| Aöalgellurnar EllýÁrmanns spciðiistjö
urnar, Helga Ben skemmti sér vel, Helena
Hólm hárgreiðsiumeistari og skipuleggja
kvöldsins ásamt Siggu Klingenberg sem
spáði fyrir þeim konum sem eru á lausu.
Anægðar Konurnar voru ekkert
feimnar við hjálpartdeki ástarhfsins
eftir aö þxr höfðu dreypt á kampa-
vininu og sáust margar fara klifjaðar
heim enda margt spennandi i boði.
Karlarnir skildir eftir heima Eltir
skemmtilegt kvöld án karlanna var
þeim loksins hleypt inn um miðnætti.
Hljómsveitin Islands eina von hélt svc
uppistuðinu fram eftir nóttu.
Flottastar Kvennakvöldið gekk vonum betur
en um 200 konur á öllum aldri mættu til leiks.
Spennandi Konurnar fengu leið
sögn urn hjálpartæki ástartifsins frá
versluninni Amor. Þegar karlarnir
fengu að koma inn sýndu þeir dót-
inu ekki minni áhuga og sáust
margir laumast með poka fullan af
skemmtilegum leikfúngum heim
enda konudagurinn doginn eflir.
hær skemmtu sér vel Þessar konur voru í
miklu stuði allt kvöldið enda mórallinn allt
annar þegat karlarnireru viðsfjarri.
Afram stelpur Helena hlólm
ásamt friðum flokki stelpna.
Stuð / boði vat tlskusýnlitg fiá tiskuvöru
vershminni Premler I Grafarvoginum ng
hdigrelðslusýnlnrj frd Hárgreiösluftofu
Helenu og ktubbaltihbum Snýrtlstofan
Mist sýntil brdði I ftillum skrúöa og ferm-
ingarföröun. / llý Arirtanns og Slgrföui
Kllngenberg náöu einnlg upp góöu stuöi.
Til sýnis Karlmennlrnir fengu að matta /
eiiuirn tilgarigi. Þcii sýndu lirir sitl en þeir
bofðu allir fenglð meOhöndlun d / Idi -
greiöslustofu fleleiw og Stubbalubbum.
Mæðgurnar Þórunn Sigurð-
ardóttir og Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir eru afkastamiklar
og hæfileikaríkar listakonur
með mörg járn í eldinum.
Þær gáfu sér tíma í spjall
við Helgarblað DV um
samband þeirra mæðgna.
Skemmtilegar
listamæúgur
„Ég sá snemma margt sem stefndi í þessa átt, að hún myndi
verða leikkona, en hélt alveg eins að hún yrði rithöfundur þar
sem hún orti mikið þegar hún var barn og fékk mörg verðlaun
fyrir kveðskap sinn," segir Þórunn Sigurðardóttir um dóttur sína
Unni Ösp Stefánsdóttur. Hún segir hana hafa erft þessa skálda-
gáfu frá ömmu sinni, Unni Kolbeinsdóttur, sem er að sögn ágæt-
is hagyrðingur og eru þær nöfnur um margt líkar. Þórunn segir
Unni hafa marga góða kosti til að bera.
Mamma sterkur leiðtogi og
heilsteypt fyrirmynd
„Þegar ég var að útskrifast úr
mínu námi gerðu konur lítið annað
en að leika eftir leiklistarnám. Ég fór
hins vegar að skrifa, leikstýra og í
búningahönnun þannig að mín
reynsla er mjög fjölbreytt. Ég vona að
Unnur geri það sama og nýti sér sína
fjölbreyttu hæfileika því að reynslan
hefur sýnt að það að leika bara gefur
hvorki nógu mikið í aðra hönd né
nægilega mikla lífsfyllingu, sérstak-
lega ekki fyrir konur sem oft eiga
erfitt uppdráttar innan leiklistarinn-
ar,“ segir Þórunn og bætir því við að
hún viljí sjá fleiri ungar konur leik-
stýra hér á landi. Þórnnn stendur í
ströngu þessa dagana við að undir-
búa Listahátíð sem verður í Reykja-
vík 14. maí-5. júm' og þar fá leiðtoga-
hæfileikarnir sem dóttir hennar talar
um án efa að njóta sín.
„Mamma gekk í gegnum leiklist-
amám og er búin að bardúsa í öllu
mögulegu og ég ólst voðalega mikið
upp í leikhúsinu, svo þetta blundaði
sterkt í mér,“ segir Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir leikkona. „Mamma sá auð-
vitað snemma hvert stefndi og hefur
alltaf verið mín stoð og stytta. Vegna
þess að ég ólst svo mikið upp í leik-
húsinu lærði ég líka að meta alla
vankanta, þetta var alveg úthugsað
þegar ég ákvað að feta þessa braut."
Aðspurð um skáldagáfuna sem
mamma hennar minntist á fer Unn-
ur að hlæja, „Hún sagði auðvitað frá
því,“ segir hún og heldur áfram, „Ég
byrjaði rosalega snemma að yrkja
mjög magnþrungin og dramatísk
ljóð, svoh'tið fyndið að lesa þau
núna,“ segir Unnur.
Semur dægurlagatexta
„Ég samdi mitt fyrsta leikrit 4 ára
gömul, þá sat ég og romsaði upp úr
mér og pabbi skrifaði það niður,
mjög gaman að eiga svoleiðis minn-
ingar," segir Unnur ösp en hún hef-
ur ennþá mjög gaman af því að
semja og hefur til dæmis samið dæg-
urlagatexta fyrir vini sína sem eru
söngvarar.
„Ég hef annars lært alveg ótrúlega
mikið af henni mömmu, hún hefur
einstaka leiðtogahæfileika og hefur
verið mér holl og heilsteypt fyrir-
mynd alla tíð og ekki sakar að hún er
yndisleg mamma og mikill húmor-
isti." Unnur er sammála mömmu
sinni um það að ungar konur ættu í
meira mæli að sækjast eftir því að
leikstýra. Það sé staðreynd að þær
bera sig minna eftir því þrátt fyrir að
hafa jafn mikla burði í það og hver
annar.
Unnur er þessa dagana að æfa
leikritið Klaufar og kóngsdætur í
leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem
verður frumsýnt eftir rúmlega
tvær vikur í Þjóðleikhúsinu. Leik-
ritið er sýnt í tilefni af 200 ára af-
mæli H.C. Andersen svo það má
búast við skemmtilegu ævintýri
fyrir alla.