Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Síða 3
DV Fyrst og fremst
LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 3
Hörður Harðarson faðir Davíðs
Smára ásamt eiginkonu sinni
og Tomma frændi Stóðu við lof-
orðið og mættu ídragi.
Undanúrslit í Idol-stjömuleit fór ffam í gærkvöldi. Spenn-
an fyrir keppnina var auðvitað mikil enda Idol-stjörnuleitin
eitt vinsælasta sjónvarpsefhið hér á landi. Þegar skammt var
liðið á keppnina vakti Hörður Harðarson, faðir Davíðs
Smára, mikla athygli fyrir að mæta með túberað hár til að
fylgjast með keppninni. Fylgdi sögunni að ef sonurinn kæm-
ist í undanúrslit myndi hann sjálfur mæta í kvenmannsföt-
um. Faðirinn stóð við
sín. Og fjölskyldan lét ekki
sitt eftir liggja.
„Þau komu þijú saman mjög áberandi upp rúllustigann,"
sagði gestur Smáralindar sem að hans sögn „missti andlitið"
þegar hann sá Idolfjölskylduna mæta til leiks. ‘Og kannski
ekki að furða. Á myndinni má sjá móður Davíðs Smára í
smóking og með pípuhatt. Hörð, pabba hans, í dýrindis kven-
mannsfötum og Tomma, frænda Davfðs, lengst til vinstri í
bleikum kjól.
Að sögn gesta Smáralindarinnar var fjölskyldunni vel fagn-
að þegar þau komu að inngangi salarins. Valli, ljósmyndari
DV sem tók þessa mynd, sagði fjölskylduna einna helst hafa
líkst kóngafólki. „Eða dragdrottningum," bætti hann við.
En þegar þetta er skrifað, klukkan kortér í átta á föstudags-
kvöld, er keppnin að fara að hefjast. Nú er að sjá hvort Davíð
Smári flýgur í gegn á stuðningi sinna nánustu.
Skyndimyndin
Spurning dagsins
Ætlarðu til sólarlanda í sumar?
Ferðast
innanlands
„Nei, ég ætla að ferðast
innartlands."
Bryngeir Guðmundsson,
hjá Vistor.
„Nei, ég stend í
húsbygging-
um."
Jóhann Rúnar
Guðbjarnar-
son sölumað-
ur.
„Nei, ég hef
ekkiefniá
því."
Þorsteinn Jó-
hannesson,
starfsmaður
Sementverk-
smiðjunnar.
„Nei afþví ég
hefengan
áhuga á því."
Atli Bene-
diktsson elli-
lífeyrisþegi.
„Ja, ég hefekki
ákveðið neitt
með það enn
þá."
Selma Sigur-
jónsdóttir
húsmóðir.
Ferðaskrifstofurnar eru komnar á fullt í tilboðum sínum á sóla-
landaferðum. Hver bæklingurinn á fætur öðrum kemur inn um lúg-
ur landsmanna þessa dagana en samkvæmt viðmælendum DV
virðast auglýsingarnar ekki skila sér,að minnsta kosti ekki ennþá.
Björk skýtur upp kollinum
sMMzSGs-Smsm
Litli arabadrengurinn PáimiGunn-
arsson ásamtsyni sfnum SigurðiHelga
við hlið Bjarkar.A bak við hana stend-
ur Björgvin Glslason og Sigurður Karls-
son er henni á vinstrihönd.
„Við stjórnuðum þessari
upptöku, en það verður
að segjast að hún hafði
alltaf eitthvað um það að
segja hvernig færi," segir
Pálmi Gunnarsson tónlist-
armaður um upptökur á
fyrstu plötu Bjarkar Guðmunds-
dóttur, Litla arabadrengnum. Platan
var tekin upp í Hljóðritanum i Hafn-
arfirði árið 1977.
Pálmi segir að upptökuteymið hafi
verið steinhissa á þessari 12 ára
stúlku sem síðar varð heimsfræg.
„Það var alveg hreint stórmerkilegt
að hitta
þessa
ungu
konu sem var svona músíkölsk og
með svona skemmtilegar hugmyndir
um tónlist. Hún hlustaði á tónlist
sem aðrir krakkar gerðu almennt
ekki. Það var mjög skemmtilegt að
vinna þessa plötu með henni," segir
Pálmi.
Pálmi og Björk áttu eftir
að hittast aftur, en það
var eftir að Björk hafði
sungið með Purrkur
Pillnikk.„Hún var í milli-
bilsástandi og gerðist fjósa-
kona hjá Ólafi Þórarinssyni git-
arleikara í Mánum austur afSelfossi.
Hann rak þar bú og var með stúdíó.
Við tókum eitt sumar saman þar
sem Björk spilaði á hljómborð og
söng," segir Pálmi Gunnarsson, sem
nú býr á Akureyri.
Gamla myndin
„Nei, ég fór ekki að gráta og
þurfti því ekki að
brosafgegnum
tárin." Hólmfriður i'v
Karlsdóttir I viðtali i ','
nýjasta hefti tímarits-
ins Nýs lifs um þá stund
þegarhún varkosin
Ungfrú heimur árið
1985. i /,
. m
ÞEIR ERU EKKI SKYLDIR
Sjónvarpsmaðurinn og rithöfundurinn
Árni Bergmann, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, og Logi Bergmann
Eiðsson sjónvarpsmaður eru ekki skyldir þrátt fyrir nafnið.
Logi Bergmann er sonur Eiðs Bergmann sem lengi var
framkvæmdastjóri Þjóðviljans á meðan Árni Berg-
mann var þar ritstjóri. Að sögn Árna eru Bergmann-
sættirnar tvær eða þrjár og renna saman einhvers
®*y staðar i Húnavatnssýslu. Árni er hins vegarskyidur
Guölaugi heitnum Bergmann sem kenndur var við
j . Karnabæ.TelurÁrniaðlangömmurþeirrahafiverið
Æ, systur. Er þó ekki alveg viss.
, .
10 TÍMAR í EINN MÁNUÐ ^ 3500,- 10 TIMAR í ÞRJÁ MÁNUÐI 3990,- AUKATÍMI FYLGIR ÖLLUM 10 TÍMA KORTUM!
• 2 FYRIR 1 AF STÖKUM TÍMUM ALLAR HELGAR.
• EINNIG BJÓÐUM VIÐ NAGLAÁSETNINGAR MEÐ 20% AFSLÆTTI.
• GUFUBAÐ Á STAÐNUM. ^
MIKIÐ ÚRVAL AF HÁGÆÐA SÓLAR- OG SNYRTIVÖRUM
EMERALD
caLjfornaIAN,
AÐALSTRÆTI 9 - SÍMI 551 0256