Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005
Helgarblað DV
Sigga Beinteins á hund sem talar heil ósköp
Frosti sækir blööin á mor
„Ég á hann Frosta, yndislegan
fimm ára golden retriver sem ég
fékk ársgamlan,” segir Sigríður
Beinteinsdóttir söngkona.
Sigga segist hafa fengið Frosta
hjá fólki sem ekki gat haft hann og
þar var Frosti heppinn. „Já, líklega
hefur hann verið heppinn því það
er svo mikið dekrað við hann hjá
mér. Hann kann líka vel að meta
það," segir Sigga og hlær. Frosti
hefur sinn einkagarð, en Sigga
segir að hann láti vita ef honum
finnst hann hafa verið of lengi í
garðinum. „Hann talar við mig og
þarf alltaf mikið að kjafta. Hann
lætur mig heyra það ef ljósin eru
„Efég get ekki
tekið hann með fer
hann i fýlu við mig
ag vill ekki eini sinni
kveðja mig"
kveikt of snemma, en það líkar
honum ekki. Hann er ógurlegur
kúrari og finnst gott að lúra fram-
eftir. En um leið og ég fer fram
kemur hann líka og það fyrsta sem
hann gerir er að fara út. Hann
hefur lfka ofsalega gaman af því að
vera í bíl og er æstur að fá að koma
með mér í bílnum. Ef ég get ekki
tekið hann með fer hann í fýlu við
mig og vill ekki eini sinni kveðja
mig,“ segir Sigga sem stundum
dekrar við hann og gefur honum
harðfisk og rækjur sem eru það
besta sem hann fær.
„Já og skata. Hann elskar skötu
og borðar hana með mér einu
sinni á ári,“ segir hún og bætir við
að göngutúrar séu hans líf og yndi.
Þegar veðrið sé orðið eins gott og
nú gangi þau allt upp í klukku-
stund á dag en hann er ekki mjög
hrifinn af öðrum hundum. „Hann
nennir ekki að tala við hvern sem
að skila skattframtali ein-
staklinga rennur út mánudaginn
21. mars
Fresturinn er hinn sami fyrir launþega ng
menn með sjálfstæðan atvinnurekstur
lietframtalið hefur verið opnað
Framtöl, veflyklar ug leiðbeiningar
hafa verið bnrin út
Leiðbeiningar er einnig að finna á rsk.is
RIKiSSKATTSTJORI
er en einstaka rakka þolir
hann. Tíkurnar eru vin-
sælli þrátt fyrir að hann
sé geltur," segir Sigga
alsæl með Frosta sem
hún bætir við að sé mikill
karakter sem sæki blöðin
fyrir hana á hverjum
morgni.
Frosti sækir blöðin fyrir
Siggu á morgnana Hún er
mikill dýravinur og Frosti má
teljast heppinn aO hafa komið
til Siggu þegar fyrri eigendur
gáfust upp á honum.
Slgrúrt Eðvaldsdóttir á yndislegan
cavalier
a hverri nottu
„Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari eignaðist hund í fyrsta sinn fyrir
tveimur árum. Þá opnaðist henni
nýr heimur sem hana grunaði ekki
að væri til.
„Hann er yndislegur og mér datt
ekki í hug þegar ég fór að rannsaka
hunda að þeir gætu verið svona
blíðir, mannelskir, kátir og
skemmtilegir eins hann," segir hún
og rifjar upp hvemig það atvikaðist
að hún valdi Lúlla en ekki einhvem
annan hund. „Þegar við fórum að
leita að hundi var okkur fljótlega
bent á hvað cavalierinn væri góður
á heimili. Við hringdum í Félag
cavalier-eigenda og okkur var sagt
að enga hvolpa væri hægt að fá en
okkur bauðst að fara á biðlista.
Þegar Lúlli fæddist vorum við látin
vita og fengum að skoða hann hjá
Hrefnu Hrólfsdóttur ræktanda og
við steinféllum fyrir honum. Við
þurftum að bíða eftir að hann yrði
nógu stór og vorum ógurlega
spennt," segir Sigrún sem ekki
hefúr gleymt fyrsta deginum og
nóttinni.
Þeim var sagt að hafa hann í búri
um nóttina en hann grét bara. „Ég
gat alls ekki hlustað á það og tók
hann upp í til mín og þar stein-
þagn-
aði
hann
sofnaði auðvitað. Síðan hefur hann
verið á milli okkar hjóna," segir hún
oghlær.
Sigrún segist ekki hlusta á þá
sem gagnrýna hana fyrir að hafa
hundinn í rúminu hjá sér. Hún vilji
hafa hann uppí hjá sér á nætumar,
hlýjan og notalegan, og segir að það
sé æðislegt að knúsahann. „Því ætti
ég ekki að gera það, okkur finnst
það báðum notalegt," segir hún og
hlær enn meira. „Hann er algjört
dekurdýr, er aldrei nema fjóra til
fimm tíma í einu einn heima, svo
förum við nokkrum sinnum á dag
meö hann út og mér finnst fint að
hann skuli drífa okkur út að labba.
Lúlli er hluti af lífi okkar, rétt eins og
bam. Þegar við þurfúm að fara eitt-
hvað í burtu er hann hjá foreldrum
mínum og þar er hann dekraöur
enn meira. Við höfum einu sinni
farið með hann á sýningu og þar
fékk hann fína dóma,“ segir hún og
bætir við að hún sé mamman en
Halldór maður hennar sé húsbónd-
inn.
„Hann er ógurlega háður okkur,
vill alltaf vera þar sem við erum og
hann fær það. Eg hefði ekki trúað að
það gæti verið svona æðislegt að
eiga hund, hann hefúr sannarlega
komið á óvart.”
Sigrún með Lúlla sinn Hún sá
hund af cavaiier-tegund hjá Kristín
Helgu Gunnarsdóttur rithöfundi oc
var ekki i vafa um að þannig hund
vildi hún eða engan. Hún hefur ekk
orðið fyrir vonbrigðum og Lúlli er
þeim Halldóri Þorsteinssyni manni
hennar mikill gleðigiafi
“ -------------------