Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005
Helgarblað DV
Ragnheiður Guðfinna Guðna-
dóttir kom fyrst fram á sjón-
arsviðið þegar hún vann Elite-
módelkeppnina fyrir nokkrum
árum. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar og hún
hefur komið víða við, meðal
annars borið hinn eftirsótta
titil Ungfrú ísland. Hún hefur
ekki alltaf átt sjö dagana sæla,
hún missti ung föður sinn og
gekk nýlega í gegnum erfið
sambandsslit. í dag er hún
hamingjusöm einstæð
móðir, lifir athafnasömu t
lifi og er sátt við lífið og
tilveruna. f 'WWi
;
*e,V'
Ragnheiður Guðfinna
Ekki bara falleg. Hún er
einnig meö sterkan
persónuleika og góða
nærveru.
Eg er búin að vera ráðgjafi
á femin.is í næstum því
fimm ár og fæ þar
gríðarlega margar fyrir-
spumir varðandi stelpur
og konur. Margar þeirra em með
brotna sjálfsmynd og mér fannst
ég þurfa að gera eitthvað til að að
hjálpa þessum konum,“ segir
Ragnheiður en hún og mágkona
hennar em að fara af stað með
sjálfstyrkingarnámskeið fyrir allar
konur. „Það hafa oft verið í gangi
módel- og sjálfstyrkingarnámskeið
en okkur fannst vanta almenn
námskeið fyrir konur sem vilja
einbeita sér meira að sínu innra
sjálfi. Kröfur samfélagsins til
kvenna em orðnar miklar og það
em allir að reyna að líkjast ein-
hverjum staðalímyndum sem em í
rauninni ekki til.“ Þær stöllur æda
líka að einbeita sér að samskiptum
mæðgna á þessum námskeiðum.
„Ég hef fengið margar fyrir-
spurnir á femin.is frá mæðmm og
dætmm sem eiga í samskipta-
örðugleikum, auk annarra vanda-
mála. Málið er einfaldlega það að
þróunin er orðin svo hröð að
það er allt annað að alast
upp í dag en þegar mæður
okkar vom að alast upp. Oft
vantar kannski gagn-
kvæman skilning,“ segir
Ragnheiður og hvetur
mæðgur til að kynna sér
námskeiðið.
Ragnheiður og
Tristan Gylfi
Sonurmifin erþað
besta sem komið
hefur fyrir mig,
hann er maðurinn f
lífim/nu."
„Pabbi dó úr krabba-
meini þegar ég var 79
ára. Það bar mjög
snögglega að en þeg-
ar ég hugsa til baka
hefði ég ekki viljað
muna eftir honum
sem veikum manni."
Elskaðu sjálfa þig
„Einstaklingsnámskeiðin em
samt aðalmálið hjá sjálfstyrk-
ingu.is. Þar erum við að vinna að
mismunandi þáttum sem gegna
stóm hlutverld hvað sjálfsmynd
kvenna varðar. Það er svo margt í
kringum okkar sem hefur gífurleg
áhrif á líðan okkar að í raun gemm
við okkur ekki grein fyrir því. Það
jaftiast ekkert á við það að vera
sjálfum sér samkvæmur, vera
meðvitaður um sálfan sig, vita
hvað maður vill, hafa skýr mark-
mið og standa uppréttur í gengum
allt lífið og elska sjálfan sig, þá
verður lífið svo helmingi skemmti-
legra og auðveldara," segir Ragn-
heiður og heldur áfram: „Þessi
kona býr innra með okkur öllum
og við getum fundið hana með
sjálfsrækt og jákvæðni. Meðal þess
sem farið er í á námskeiðinu er
förðun, innra mat, umhverfið, kyn-
l£f, framkoma og tjáning og margt
annað skemmtilegt og fjölbreytt.
Einnig fáum við gestafyrirlesara til
að sjá um sterkustu þættina," segir
Ragnheiður og imprar á að nám-
skeiðið sé opið öllum konum sem
vilja styrkja sig á einhvem hátt.
Litla prinsessan á heimilinu
Ragnheiður er yngst í sínum
syskinahópi en hún á þrjá eldri
bræður. „Maður var nú oft svolítíð
tuskudýr en mér fannst yndislegt
að alast upp með bræðmm mínum
sem em töluvert eldri en ég, sá
yngsti er 8 ámm eldri en ég þannig
að það er ansi breitt bil á milli
okkar. Það má eiginlega segja að ég
hafi átt nokkra pabba. Ég er oft
spurð að því hvort ég hafi ekki
viljað eiga systur en ég get ekki
ímyndað mér hlutina öðmvísi en
þeir vom og em, það er yndislegt
að vera hluti af þessari fjölskyldu
og ég hefði ekki viljað hafa þetta á
neinn annan hátt.“
Ekkert er sjálfgefið
Sorgin er Kka búin að banka
upp á hjá Ragnheiði. „Pabbi dó úr
krabbameini þegar ég var 19 ára.
Það bar mjög snögglega að en
þegar ég hugsa til baka hefði ég
ekki viljað muna eftir honum sem
veikum manni. Minningin um síð-
ustu stund okkar saman er frábær
og tel ég mig frekar heppna að hafa
átt hana með honum föður mínum
sem var og er mín sterkasta fyrir-
mynd.“ Hún rifjar upp mirming-
una um föður sinn.
„Ein síðasta minningin sem ég á
af pabba var þegar við erum uppi í
bústað í heita pottinum að drekka
rauðvín og hlæja og hafa gaman,
ég hefði alis ekki viljað hafa það
öðmvísi, ég man hann eins og
hann var alla tíð,“ segir hún og
brosir. Greinilegt er að hlýtt var
milli þeirra feðgina. Hún segir föð-
urmissinn hafa haft mikil áhrif á
sýn sína á lífið. „Þegar maður fær
svona veruleikasjokk fer maður að
átt sig á því að það er ekkert sjálf-
gefið f lífinu. Ég er enn að vinna í
sorginni en ég veit að hann er með
mér og veitír mér styrk. Við
mamma erum líka orðnar alveg
ótrúlega nánar, emm bestu vin-
konur í dag, búnar að standa eins
og klettar hvor með annarri," segir
Ragnheiður ogheldur áfram: „Hún
hefur reynst mér ómetanlegur
stuðningur og hefur hjálpað mér
að áorka því sem ég hef áorkað. Ég
veit í raun ekki hvar ég væri án
hennar, hún er perla perlanna."
Sátt eftir sambandsslitin
Baldur Rafn Gylfason hár-
greiðslumaður er bamsfaðir Ragn-
heiðar en þau vom saman í fjögur
ár. „Ég byijaði með Baldri árið