Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Side 6
6 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005
Fréttir DV
Slást um
Skandia
Burðarás hefur
eignast 3,5 prósenta
hlut í sænska trygg-
ingarisanum Skan-
dia fyrir meira en 10
milljarða íslenskra
króna. KB banki hefur náð
sér í 2,5 prósenta hlut. Svíar
óttast að íslendingar séu að
kaupa upp Svíþjóð, ef
marka má grein í Dagens
Industri í gær. Þar er fjallað
um kaup Burðaráss og slag
Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar og KB banka um fé-
lagið. Burðarás á stóran
hlut í Carnegie-sjóðnum
sænska þar sem Björgólfur
Thor er kominn í stjórn.
Flogakast
íflugvél
Flogakast far-
þega í flugvél Flug-
félags fslands á leið
til Hornafjarðar í
gærkvöld varð til
þess að snúa þurfti flugvél-
inni við. f stað þess að fara
alla leið austur millilenti
vélin í Vestmannaeyjum
þar sem flogaveiki farþeg-
inn fékk að fara úr.
Nýi rektorinn?
Andri Snær Magnason
rithöfundur.
„Mér finnst í rauninni ekkert
um hana, ég heflítiö fylgst
meö þessu og þekki því sama
og ekkert til þessara mála. Ég
hefreyndar heyrt mjög vel af
Kristfnu látið svo ég býst bara
viö góöu. Ég óska henni
velfarnaöari framtlöinni."
Hann segir / Hun segir
„Mér fínnst gaman og
ánægjulegt aö þaö sé kona,
án þess aö þaö eigi aö ein-
blína á þann þátt, hún var
kjörin sem hæfur einstakling-
ur, ekki vegna kyns. Ég kynnti
mér reyndar frambjóðend-
urna ekkert sérstaklega en ég
óska henni velfarnaðar í starfí.
Áfram Kristín."
Kamllla Inglbergsdóttir fram-
kvæmdastjóri Kópavogsdeildar
Rauöa krossins.
Ferö strætó númer 6 fékk snöggan enda í gær þegar lögreglan stöðvaði vagninn og
yfirheyrði strætóbílstjórann. Kom í ljós að hann var með löngu útrunnið ökuskír-
teini og því ekki með réttindi til að keyra. Vegfarendur fylgdust furðu lostnir með
því þegar strætóbílstjórinn var leystur af og keyrður af vettvangi. „Þetta kemur
engum við,“ segir Þórarinn Guðmundsson, próflausi bilstjórinn.
Strætó numer 6 stopp Farþegar
þurftu að finna sérannan vagn.
Tveir lögreglumenn
á mótorhjólum
stöðvuðu strætó
númer 6 fyrir utan
Þjóðarbókhlöðuna.
Vegfarendur fylgdust furðu lostnir með því þegar lögreglan
stöðvaði leið númer 6 við Þjóðarbókhlöðuna og yfirheyrði
bílstjórann. f ljós kom að strætóbílstjórinn var próflaus og hefur
ekið með útrunnið öskuskírteini í tæp tvö ár fyrir Strætó bs.
„Leiðindamál," sagði lögreglumaður á vettvangi.
Þetta var um þrjúleytið í gær. DV
náði tali af manninum sem tilkynnti
lögreglunni um próflausa strætóbfl-
stjórann. Hann sagðist hafa vitað af
málinu í nokkurn tíma og haft
áhyggjur af börnum og öðrum far-
þegum sem borguðu fyrir að stíga
upp í vagn þar sem bflstjórinn hefði
ekki ökuskírteini. Maðurinn sagðist
ítrekað hafa kvartað við Strætó bs.
en ekkert verið að gert. Því hefði
hann ekki séð sér annað fært en til-
kynna lögreglunni um málið.
Lögreglan í málið
Tveir lögreglumenn á mótorhjól-
um stöðvuðu strætó númer sex fyrir
utan Þjóðarbókhlöðuna. Þegar
blaðamaður kom á vettvang var
annar lögreglumannanna að yfir-
heyra bflstjórann inni í vagninum á
meðan hinn stjórnaði umferð fram-
hjá svæðinu. Skömmu síðar komu
Lögreglan yfirheyrir Þórarin Varstööv-
aöur meö útrunniö ökuskírteini.
fulltrúar Strætó bs. og fylgdu próf-
lausa bflstjóranum af vettvangi.
Mátti sjá furðusvip á andlitum
viðstaddra enda margir sem setja
traust sitt á almenningssamgöngur
borgarinnar.
Ekki fyrsta skipti
í júní í fyrra kom annað mál í
svipuðum dúr upp á yfirborðið. Þá
var maður að nafni Björn Baxter
Herbertsson ráðinn sem sumar-
afleysingamaður hjá Strætó þrátt
fyrir að vera ekki með gilt ökuskír-
teini. Björn átú síðar eftir að lenda í
árekstri eftir að hafa ekið yfir á rauðu
ljósi á Kringlumýrarbrautinni og
skömmu síðar klessti hann á kyrr-
stæðan bfl við apótekið á Gullteigi.
Kemurengum við
Við það tækifæri sagði Ásgeir
Eiríksson, framkvæmdastjóri
Próflausi strætóbflstjórinn
gengur niðurlútur á brott
„Kemur engum viö,“segir Þórarinn.
Strætó, að málið hlyti að kalla á
einhvers konar skoðun á starfsregl-
um Strætó bs.
Þórarinn F. Guðmundsson,
strætóbílstjórinn sem stöðvaður var
í gær, vildi ekkert tjá sig um málið.
„Þetta kemur bara engum við," var
svar hans við því hvort honum
fyndist það ábyrgðarlaust að keyra
almenningsvagn próflaus.
simon@dv.iss
i 1 T MIRAL ■ ■
Brúðargjafalistar
MIRALE
Grensásvegl 8
108 Reykjavfk
slmi: 517 1020
Opfð:
mán. - föstud. 1
laugard. 11-15
1-18
ALESSI
Fulltrúi H-listans formaður Stúdentaráðs
Kosinn með tveimur atkvæðum
Formaður Stúdentaráðs var kjör-
inn í gær, en hann er hvorki úr Vöku
né Röskvu líkt og tíðkast hefur und-
anfarinár.
í kosningum til Stúdentaráðs
þann 9. og 10. febrúar síðastlið-
inn fékk engin fylkinganna
þriggja sem buðu ffarn meiri-
hluta.
Háskólalistinn
hlaut 12,5%,
Röskva 37,8%
og Vaka 46,9%
Elías Jón Guðjónsson
H-listamaðurinn varí
gær kjörinn kosinn for-
maður Stúdentaráös
atkvæða. ' f ^tveimuratkvæönm
fimm vikur hefur rflct algjör pattstaða
í Stúdentaráði og ekki hefur náðst
eining um hver skuli vera for-
Imaður ráðsins. Niðurstaðan
kvarð sú að Elías Jón Guð-
if jónsson, oddviti minnstu
fylkingarinnar H-listans,
var kjörinn formaður með
I einungis tveimur atkvæðum
' en átján sátu hjá í kosningunni.
„Það hefði auðvitað verið
best ef ríkt hefði fullkomin
sátt um formanninn,
Lþað gekk ekki og því
fannst okkur mikilvægt að ekki væri
kosið á móti tillögunni," segir EKas
Jón spurður um málið. Anna Pála
Sverrisdóttir hjá Röskvu segir sinn
lista hafa viljað samstarf við H-listann
en það hafi ekki gengið og Röskvulið-
ar séu ósáttir við þessa slápun. „Ég er
samt sátt við þetta eins og staðan var
orðin," segir Anna Pála.
Vaka sendi út fréttatilkynningu í
gær þar sem fram kom að þetta væri
ekki sú niðurstaða sem menn hefðu
vonast eftir en þó skásti kosturinn í
stöðunni.