Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Qupperneq 17
1 DV Helgarblað LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 17 rausnarlegur og færir þeim stundum óvæntar dýrar gjaflr. Hann hefur gaman af tækjum og tólum og hefur frá því að hann fékk bflpróf ekið um á flottum bflum sem hafa borið þess glöggt merki hversu mikill fagurkeri hann er. Vinir hans segja að það gusti af honum og að hann sé afar óútreiknanlegur og erfitt að vita hvar hann verður nema mesta lagi klukkutíma fram í tímann. Hann er gríðarlega metnaðarfuilur og hættir ekki fyrr en hann hefur náð mark- miðum sínum. Hann hefur sterka nærveru og er mikill húmoristi sem einkennist aðallega af hnyttnum til- svörum og kaldhæðnum húmor. Jó- hannes faðir hans fifllyrðir að hann sé heiðarlegur, harðduglegur, já- kvæður og framsýnn. Hann er fljótur að sjá tækifæri sem hann grípur gjarnan án þess að hugsa sig um. Lítt gefinn fyrir þá sem honum líkar ekki við Jón Ásgeir hefur haft orð á sér fyrir að véra mannafæla og blandast iila í hópi. Jóhannes faðir hans segir það kannski ekki alveg sannleikan- um samkvæmt. Frekar mætti orða það svo að hann sé lítt gefinn fyrir þá sem honum lflcar ekki við en er því kátari og skemmtilegri í samvist- um við vini og fjölskyldu. „Hann á fáa en góða vini og þannig hefur það alltaf verið. Vinir frá barnæsku eru enn í hópi hans bestu vina. Ég viður- kenni þó að við þá sem eru honum ekki að skapi blandar hann síð- ú SSSIsí ur geði ef hann , ekki þarf þess,“ segir hann. Jóhannes bendir einnig á í því sam- bandi að Jón Ásgeir hafi alltaf verið feiminn og einhverjir kunni að mistúlka feimn- ina sem einhvers konar hroka. Hann hafi eigi að síður mjög unnið á henni og feimnin rjátlast af honum með tímanum. Börnin og fyrrverandi kona búa líka í London Jón Ásgeir er mjög bamgóður og hann er afar tryggur í eðli sínu. Til marks um það má nefna að börn hans og Iinda, konan hans fyrrver- andi, búa úti í London. Jóhannes segir Jón Ásgeir vera með börnum sínum eins og hann geti og reynist hann þeim góður faðir. „Hann er að mestu fluttur utan og á þar sitt ann- að heimili. Þar er hann lfldega meira en hér heima núorðið." Jón Ásgeir var ekki gamail þegar hann tók stefnuna á það sem síðar varð. Faðir hans segir það aldrei hafa leynt sér að hann hafi peninga- vit og hann gerði sér snemma grein fyrir hvað þyrfti til að afla peninga. „Jón Ásgeir var aldrei til vandræða sem krakki eða unglingur. Við for- eldramir þurftum aldrei að hafa áhyggjur af honum og vissum alltaf að hann myndi spjara sig,“ segir Jóhannes. //■ Jón Ásgéir var aldrei til vandræða sem krakki eða unglingur. Við foreldrarnir þurft- um atdrei að hafa ■ áhyggjur afhonum ogvissum alltafað hann myndi spjara sig" Lætur verkin tala Ása, móðir Jóns Ásgeirs, tekur undir orð föður hans og bætir við að hann hafi verið henni yndislegur sonur. „Jón Ásgeir hefur góða nær- vem, er hlýr en fámáll og rólegur, lætur verkin frekar tala. Hann hefur gott skap, lætur fátt hagga sér og hefur mikið jafnaðargeð. Það er svo langt síðan ég hef séð hann reið- ast að ég man hreint ekki hvernig hann er reiður en ég veit að þegar honum er misboðið tekur hann því ekki þegj- andi,“ segir Ása. Ása tekur undir þau orð annarra að JónÁsgeirhafi snemma byrj- að að spá og spekúlera. „Hann var líka sí- spyrjandi, vildi fá að vita skil á öllu. Oft átti „Honum þykir óend- anlega vænt um börn- in sin og vildi gjarnan vera meira með þeim. En Jón Ásgeir er fyrst og fremst„one to one"-maður en það ferhonum bestað vinna þannig." ég í mesta vanda með að útskýra og svara spurningum hans," segir Ása og tekur fram að hún sé mjög ánægð með gengi sonarins. Hann sé trygg- ur sonur og í góðu sambandi við móður sína. Átti alltaf fulla sparibauka Arna Schram blaðamaður og Jón Ásgeir em systrabörn og léku sér mikið saman sem böm. Arna segir það snemma hafa orðið Ijóst að áherslur þeirra og leiðir út í h'fið yrðu ólíkar. „Ég held að hann hafi ekki verið eldri en fjögurra eða fimm ára þegar hann lýsti því yfir að hann ætl- aði að verða ríkasti maður á íslandi þegar hann yrði stór. Enda átti hann alltaf fulla sparibauka en mínir vom ævinlega tómir," segir Arna og er sammála föður hans um að Jón Ás- geir hafi verið að eðlisfari feiminn og hlédrægur krakki. Hún segir þau ekki húttast oft nú orðið nema í fjöl- skylduboðum og þá reyni ekki á hvort þeir eðlisþættir hafi horfið með auknum þroska. Ber ekki tilfinningar sínar á torg Ingibjörg Pálmadóttir, sambýhs- kona Jóns, ber honum vel söguna. Hún segir gott að búa með honum og hann sé bæði hlýr og bh'ður. „Jón Ásgeir er afar fylginn sér og hefur ótrúlega orku til að komast þangað sem hann ætlar sér. Markmið hans em skýr og hann hefur þann kost að geta séð lengra en aðeins til morg- undagsins. Hann gín ekki yfir öllu eða veður yfir menn, held- ur stefnir hann ahtaf að því Ingíbjörg Pálmadóttir Sambýliskona Jóns segir hann hlýjan og bllöan Johannes Jónsson Segir Jón Ásgeir alltafhafa verið til fyrirmyndar. mann að vinna þannig að ahir verði sáttir og fái einnig sinn skerf af kökunni. Annars hefði hann aldrei komist aUa þessa leið," segir Ingibjörg. Eins og fram hefur komið ber Jón ekki tilfinningar sínar á torg og er dulur. Ingibjörg telur því að margir kunni að misskilja hann og telji framkomu hans hrokafulla. Það sé hins vegar fjarri honum. Hún er líka sammála Jóhannesi og Ásu um að Jón Ásgeir sé tryggur sínum og góður við sitt fólk. „Ég held að hann beri keim af fólkinu sínu sem er heilsteypt fólk og heið- arlegt. Honum þykir óendanlega vænt um börnin sín og vildi gjarn- an vera meira með þeim. En Jón Ásgeir er fyrst og fremst „one to one“-maður en það fer honum best að vinna þannig. Hann er jafnan glaður og kátur í sínum litla vina- hópi en er alls ekki fyrir fjölmenn- ið. Þeir sem hann hefur átt í við- skiptum við treysta honum full- komlega og hann á virðingu þeirra," segir Ingibjörg. Hefur fyrir hlutunum Jón Asgeir Jóhannesson er ekki einn þeirra sem fæddust með silfur- skeið í munninum. Hann, ásamt föður sínum, hefur þurft að hafa fýr- ir því veldi sem orðið er til frá því að fyrsta Bónusverslunin opnaði. Hann er forstjóri fýrirtækis sem veltir upp- hæðum sem flestum meðaljónum þykir óraunverulegt að ímynda sér. Ef Jón Ásgeir heldur áffam að söðla um eins og hann hefur gert undan- farin ár er erfitt að sjá fyrir hvernig veldið mun þróast. Laugavegi 53 Sími 552 3737 Opið mán - fös 10-18 opið lau 10 - 16 Strákur bolur kr 1695 vesti frá kr 1450 buxur frá kr 2195 bolur kr 1490 buxur kr 2995 0-14 ára Allir geta bókaö sig í Bændaferöir - sími 570 2790 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.