Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Síða 21
F LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 21 DV Helgarblað Strauk af stúlknaheimili og tók þátt í vopnuðu ráni Þrautaganga þeirra mæðgna ogfjöl- skyldunnar hófst á þeirri stundu. Fjóla var í einhvem tíma á Tindum en var fljót að stijúka þaðan og á hana komst sannarlega engin ró, nema síður væri. Sveinbjörg segir að auðvitað hafi hún kynnst sínum líkum á Tindum en hún átti eigi að síður eftir að koma austur aftur. „Ég sagði henni að hún færi ekki lönd né strönd og skildi fara að vinna en eftir mikla erfiðleika strauk hún í burtu. Þegar ég fann hana sendi ég hana á heimili fyrir stúlkur í Skagafirði og þaðan strauk hún á stolnum bíl ásamt fleiri stúlkum af heimilinu og velti honum. Þar með vom þessir erfið- leikar hafiúr fyrir alvöru og ég réði ekki við eitt né neitt eftir það,“ segir hún. Sveinbjörg rifjar upp að skömmu síðar hafi Fjóla verið tekín við að brjót- ast inn í verslunina Kveldúlf en við rán- ið var notað vopn og var það litið afar alvarlegum augum. Hún segist þó ekki vita til þess að Fjóla hafi fengið dóm eða þurft að sitja af sér fangelsisvist. „Síðan hefur ganga hennar verið inn og út af stofnunum sem ekkert geta gert eða hafa ekki vilja til að gera neitt fyrir hana," segir hún uppgefin eftir margra ára baráttu við kerfið. Sveinbjörg segir nokkuð langt síðan hún talaði við ráðamenn, hún hafi ein- faldlega gefist upp á að fara þá leið. Talaði við þingmenn og ráðherrra „Ég talaði við heilbrigðisráherra og ég hef rætt við þingmenn, allt hef- ur það verið án árangurs. Það er ör- þrifaráð hjá mér að ræða við blöð í von um að eitthvað muni ganga í þeirri baráttu að fá viðeigandi hjálp fyrir dóttur mína,“ segir hún og það leynir sér ekki þegar rætt er við Svein- björgu hversu þreytt hún er orðin á því að horfa á dóttur sína murka úr sér lífið sér hægt og hægt. „Stundum dettur mér í hug hvort skilaboðin frá þessu kerfi til þeirra sem standa í mínum spomm séu þau að við getum bara farið með þessi börn okkar á dýraspítalann og látið lóga þeim. Þetta er kaldranalega sagt en það er bara ekki gert neitt fyrir þennan hóp sjúklinga sem getur ekki farið að þeim reglum sem eru inni á stofnun- um og eru svo sjúkir að það þarfa að loka þá inni til að hægt sé að hjálpa þeim,“ segir hún sorgmædd. Fyrir síðustu helgi var Fjóla hjá móður sinni og reyndi að halda sér í lagi þar til hún kæmist inn á Hlaðgerð- arkot. Þær vom erfiðar þessar þrjár vik- ur sem þær mæðgur biðu eftir plássi. „Þeir sögðust æda að taka hana ef hún væri þokkalega edrú og ég gat fengið hana til að bíða héma hjá mér. Ég var að manni gengin þegar hún loks fékk að fara inn og hjá mér vaknaði dálítil von þegar ég horfði á eftir henni. Sólar- hring síðar hringdu þeir og sögðust ekki geta haft hana því hún væri í ann- arlegu ástandi. Það var orðið sem þeir notuðu. Ég veit ekki við hverju þeir hafa búist að fá til sín sjúkling í afvötnun sem ekki væri í annarlegu ástandi," segir hún og hlær kait. Ekki viss um að hún lifi öllu lengur Fjóla var því send með lögreglubíl á geðdeild Landspítala og þar var hún í rúma viku. „Þegar hún var byrjuð að fara um frjáls, stakk hún auðvitað af. Það er það sem hún alltaf gerir og ég Ég var að manni gengin þegar hún loks fékk að fara inn og hjá mér vaknaði dálítil von þeg- ar ég horfði á eftir henni þangað inn. Sólarhring síðar hringdu þeir og sögðust ekki geta haft hana því hún væri í ann- arlegu ástandi. Það var orðið sem þeir notuð. hef margsagt þeim það. Hún var þar ekki í fyrsta sinn. Nú er hún í ein- hverju dópbælinu í Reykjavík, þau em hennar heimili og guð einn veit hvað hún lætur ofan í sig. Ég veit bara það að ekki er það hollt því hún er svo hor- uð og illa haldin að ég er ekki viss um að hún lifi mikið lengur," segir Svein- björg harðmælt og lætur þess getið að hún sé orðin alldofin fyrir ástandinu á Fjólu, litlu stúlkunni sem eitt sinn brosti á móti veröldinni og gerði öll- um glatt í geði sem umgengust hana, þó hún hafi reynt á þokif þeirra. „Já, ég get ekki til þess hugsað og læt helst ekki hugann reika til baka. Það er enn erfiðara," segir hún og horfir lengi í gaupnir sér. Eftir nokkra þögn segist hún vera löngu hætt að gera nokkuð fyrir sjálfa sig. Lífið snúist um Fjólu. Hún stendur meira eða minna ein í baráttu sinni en segir að synirnir veiti henni stuðning. Faðir Fjólu veltir þessum málum ekki mikið fyrir sér og tekur alls eklá neina ábyrgð. „Ég velkist bara einhvem veg- inn áfram og er ails ekki nógu dugleg að leita mér hjálpar. Ég á vinkonur sem styðja við mig en ég veit að ef ég geri eklá eitthvað fyrir sjálfa mig er ég ekki fær um hjálpa henni. Fjóla er fullorðin manneskja en það er bara ekki hægt að snúa baki við dóttur sinni, hvað mikið sem maður vildi. Hún er fársjúk," segir Sveinbjörg. Hætt að gera nokkuð fyrir sjálfa sig Llf Sveinbjargar snýst fyrst og fremst um dóttur- ina sem hún segir aö lifi ekki mikiö lengur meö þessu áframhaldi. Veit ekki hvort hún er geðveik Hún er ekki í minnsta vafa um að hægt væri að hjálpa Fjólu, bara ef henni væri haldið inni nógu lengi. Aldrei sé farið að rofa almennilega til í höfðinu á henni en það taki einfald- lega tíma. „Mín skoðun er sú að það þurfi að vera til deild sem lokar fólk inni á meðan því er hjálpað. Það er eina vonin. Þetta fólk gæti sjálft gengist undir einhvers konar skuld- bindingu um að vera í ákveðinn tíma í meðferð," bendir Sveinbjörg á. Hún segir að Fjóla hafi einu sinni farið í greiningu en þá hafi hún verið svo kolrugluð að hún er aiis ekki viss um að sú greining sé marktæk. „Ég veit satt að segja ekki hvort hún sé búin að skemma sig svona á fyijum, hvort ofvirknin og athyglisbresturinn hefur þessi áhrif ef ekkert er að gert eða hvort hún er geðveik. Hún var hins vegar greind með geðsjúkdóm. Fór í drifskaft á strætó Sveinbjörg er ekki úrkula vonar um að Fjóla eigi eftir að ná sér en eft- ir því sem tíminn líði þá minnki sú von. „Fjóla er ekki annað en hrak, tennur hennar eru meira eða minna ónýtar, hægt er að telja í henni rifin og eins og rétt er hægt að ímynda sér þá hirðir hún sig ekki. Það er skelfi- legt að sjá hana og það er mjög erfitt að vita af henni svona," segir hún og það má heyra hvað henni þykir erfitt að lýsa dóttur sinni á þennan hátt. Sveinbjörg er sjálf mikill sjúkling- ur en þegar hún gekk með Kalla Bjarna og skammt var liðið á meðgönguna, féll hún þar sem hún var að hlaupa á eftir strætisvagni. Sveinbjörg lenti undir vagninum, fór í drifskaftið og dróst áfram þar til hann loks stöðvaðist. „Ég slasaðist mjög illa og hef þurft að fara í margar aðgerðir vegna þessa síðan. Þegar Kalli Bjami var í Idolinu £ fyrra, sat ég alltaf í hjólastól úti í sal og bað um að engar myndir yrðu birtar af mér. Ég er nýkomin úr aðgerð og það sér ekki fyrir endann á þessu enn. Ég á aldrei eftir að verða söm og hef verið öryrki síðan slysið átti sér stað,“ segir Svein- björg og það er ekki á hana bætandi að vera með stöðugar áhyggjur af dóttur sinni. Flutttil Reykjavíkur Hún er nú að leita sér að húsnæði í bænum. Hefúr hug á að fá sér íbúð hjá Búseta og bíður þeirrar réttu. „Það get- ur teláð einhvem tíma og á meðan er ég hjá góðri vinkonu minni, með allt mitt dót í kössum," segir hún afsakandi en lífið hefúr verið þessari konu sem svo margt hefur reynt afar erfitt. Sveinbjörg endurtekur að það sé ekki hennar stfll að hlaupa í fjölmiðla en nú geti hún ekki meira og freisti þess að eitthvað gerist í málefnum dóttur hennar í framhaldi þessa við- tals. „Hún er við dauðans dyr, hún er sjúklingur sem kann ekki fótum sfn- um forráð. Það er blettur á þessu samfélagi að eiga ekki úrræði fyrir fársjúkt fólk. Hvað gefur okkur rétt til að forgangsraða sjúkdómum, segja þessi á að lifa en ekki hinn? Það er verið að gera með því að útiloka hóp geðsjúkra frá því að fá lfkn," segir Sveinbjörg sem veit að einn daginn mun síminn hringja með fréttir sem hún veit að eru óumflýjanlegar - ef ekkert verður að gert. Þangað til er ekki annað en að bíða. bergljot@dv.is soLon r“it_s Y R J I 8 T O F A Vertu glæsileg yfir páskana 20% afsláttur til 23. mars Fake Bake airbmsh brOnkumeðferöir. Fallegri, dýpri, dekkri og endingabetri litur.Uturinn sem Madonna, Britney Spears og FLo nota. sciLon rit_æ laugavegi es 15522460 ■pake B<4 Korthafar VISA athugið! Þið eigið kost á bílaleigubíl frá AVIS á frábæru verði! fejfc- Það borgar sig að panta bilinn áður en iagt er af stað! Sérkjör á dag erlendis* Elglr þú von á vlnum eða öðrum gestum að utan, skaltu benda þeim á að hafa samband vlð Avls Bretiand 2.700 Kr..m.v. B tiokk á (slandl og kynna sér þau tilboð sem í boði eru Danmörk 3.100 kr.a«m> á bdalelgubflum. AVlS-speclal eða AVlS-sérverð er allt sem nefna þarf við sölumann okkar og þú Florida 2.300 kr. m.v.xtiokk eða gestir þínlr fálð okkar hagstæðustu kjör. Frakkland 2.500 kr. mv.Afiokk fsland kr. 3.500,' m.v.Aflokk,lágm.7dagaleiga. ftalfa 2.300 kr.mv.Bflokk Hlmabll: 1/03-14/06 & 26/08 - 31/12.2005) Kanarý 1.800 kr. m.v.ABokk S?ÍSte'vA“'tósm7da9a^ Spánn 2.100 kr. m.v.Atiokk Elnnig tllboð ástærrl bílum. Innifalið í verði erlendis: Ótakmarkaður akstur, skattur, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald á flugvelli. Ekkert bókunargjald. 7% afsláttur veittur af öðrum flokkum I öllum löndum. *M.v. 7 daga lágmarksleigu. Verð háð breytlngum á gengi. Glldir til 31/03 2006. www.avls.ls V/SA AVIS Við gerum betur AVIS Knarrarvogi 2 • 104 Reykjavík • Sími: 591 4000 Fax: 591 4040 • Netfang: avis@avis.is m Express þýskunámskeið »Ja, lch komme! komme schnell Já ég kem! Ég kem í snarhasti!!!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.