Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Qupperneq 31
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 31 þaggaðun niður „Ég skildi aldrei hvers vegna svona h'tið var fjallað um þetta alvarlega mál,“ segir Bjarnheiður Ragnarsddttir, sem nú er öryrki. Bjarmar Smári Elíasson, sonur hennar, var sjö ára þeg- ar hann drukknaði í Glerá. Fjórum árum áður hafði faðir hans látist úr krabbameini. Bjamheiður segir sorgina hafa bugað sig og fjölskyldu sína. Eldri sonur hennar náði aldrei að fóta sig eftir þennan atburð, hvarf í hyldýpi fíkniefna og hefur h'tið til hans spurst síðan hann öuttist til Danmerkur fyrir nokkrum árum. Hún er nú reiðubúin að ræða þennan sorglega atburð sem hún segir hafa verið þaggaðan niður á sínum tíma. ,Ætli það hafi ekki aðallega verið til þess að hlífa fjölskyldu drengsins sem gerði þetta og for- eldrum hans. Mér hefur fundist það vera á þann veginn frekar en hinn," segir Bjarnheiður, sem aldrei hefur náð að losa sig við reiðina í garð drengsins sem ber ábyrgð á dauða sonar hans. Hún minnist þess að hafa verið að koma úr kvikmyndahúsi í apríl árið 1990 þegar hún frétti að annar strákur hefði fallið í Glerána og drukknað, tæpu ári eftir að sonur hennar drukknaði í ánni. Hún segist fljótlega hafa áttað sig á því að sonur hennar hefði verið myrt- ur þegar hún heyrði fréttir af því að seinni drengurinn hefði verið í fé- lagsskap sama stráks og var með Bjarmari að leik við Glerá sumarið áður. „Þegar ég heyrði af þessu kastaði ég upp. Mér brá svo mikið og áttaði mig strax á því að hann Bjarmar hafði verið drepinn," segir Bjarnheiður. I Bræðurnir | Eldri bróðir Bjarmars tók dauða I hans nærri sér og hefur móðir hans I enga hugmynd um hvar hann er 1 niðurkominn í dag. Sparkaði drengnum niður af röri Hún segir að sá dagur hafi varla liðið þar sem hún hafi ekki hugsað til dagsins þegar Bjarmar kom inn og bað um að fá að hjóla niður að Glerá með eldri félögum sínum. Bjarnheiður samþykkti það þar sem hún hélt hann vera í góðum félagsskap eldri drengja sem myndu hafa auga með honum. „Þeir voru þrír saman að hjóla. Eftir því sem mér er sagt mun hann hafa fengið Bjarmar til þess að klifra upp á rör sem lá yfir ána og svo sparkaði hann honum af rörinu og út í ána. Bjarmar var með lítið hjarta og einfaldlega of huglaus til þess að þora að klifra á svona stað. Manni fannst þetta allt saman voðalega skrítið þegar þetta gerðist. Þetta var svo ólíkt honum, eins rólegur og hann var,“ segir Bjarnheiður þegar hún hugsar til baka. Hún segir að sér hafi runnið kalt vatn milli skinns og hörunds þegar lögreglan bankaði upp á hjá henni og tilkynnti að Bjarmar hefði horfið í ána sem er talsvert djúp á þessum stað. Þegar hann fannst svo seinna um kvöldið kom prestur á heimilið og tilkynnti henni að drengurinn hefði fundist látinn. Presturinn fór með hana í líkhúsið á Akureyri þar sem hún fékk að sjá litla son sinn. Þetta fór mjög illa með okkar iíf, það breytti í rauninni öllu fyrir mig og mína fjöl- skyldu að upplifa þennan hrikalega at- burð. Ég gat ekki átt fleiri börn eftir þetta. Viðurkenndi að bera ábyrgð á dauða drengjanna Margt þótti undarlegt við drukknun Bjarmars, ekki síst hegðun eldri félaga hans sem þótti strax einkennileg þó að engan hafi grunað annað en að þetta hefði verið hræðilegt slys. Tæpu ári eftir að Bjarmar féll í ána drukknaði annar sjö ára drengur á svipuðum slóðum í Glerá. Engin vitni voru að atburðinum en fljótlega spurðist út að litli drengurinn hefði skömmu áður sést með sama strák og hafði verið með Bjarmari þegar hann drukknaði sumarið áður. Þetta þótti undarleg tilviljun og var því drengurinn, sem var fjór- um árum eldri en fórnarlömb hans, kallaður til yfirheyrslu. Tilhugsunin um að þessi 11 ára drengur hefði orðið valdur að dauða tveggja 7 ára drengja á inn- an við einu ári var flestum sem að málinu komu erfið. Þegar þessi grunur spurðist út, rifjuðust upp sögur um að drengurinn hefði gortað af því að hafa hrint strák í ána án þess að mikið mark hefði verið tekið á því. Við yfirheyrslur hjá Lögreglunni á Akureyri viður- kenndi drengurinn að lokum að hafa vísvitandi verið valdur að dauða drengjanna. Ég held að ég sé ekki persónulega hrædd við hann þó svo að ég trui honum til alls. Ég veit ekki hvað ég myndigera efég mætti honum. Hörmulegt að missa barnið sitt með þessum hætti „Hann var nú eitthvað yfir- heyrður þegar Bjarmar dó en barnaverndarnefnd lét stöðva það þar sem hann átti mjög erfitt, þessi strákur. Þeir höfðu verið þrír, ann- ar níu ára gutti með þeim, en hann þorði ekki að segja neitt," segir Bjarnheiður, sem er ósátt við hvernig að málum var staðið á sín- um tíma. Fram undan voru myrkir tímar hjá Bjarnheiði. Hún hafði fjórum árum áður misst eiginmann sinn, föður Bjarmars, úr krabbameini. Bjarnheiður var nú ein eftir ásamt eldri bróður Bjarmars, sem tók dauða hans mjög nærri sér. „Ætli það hafi ekki aðallega ver- ið til þess að hlífa fjölskyldu drengsins sem gerði þetta og for- eldrum hans. Mér hefur fundist það vera á þann veginn frekar en hinn,“ segir Bjarnheiður sem aldrei hefur náð að losa sig við reiðina í garð drengsins sem ber ábyrgð á dauða sonar hans. Hún minnist þess að hafa verið að koma úr kvikmyndahúsi í aprfl árið 1990 þegar hún frétti að annar strákur hefði fallið í Glerána og drukknað, tæpu ári eftir að sonur hennar drukknaði í ánni. Bjarnheiður segist fljótlega hafa áttað sig á því að sonur hennar hefði verið myrtur þegar hún heyrði fréttir af því að seinni drengurinn hefði verið í félagsskap sama stráks og var með Bjarmari að leik við Glerá sumarið áður. „Þegar ég heyrði af þessu kastaði ég upp. Mér brá svo mikið og áttaði mig strax á því að hann Bjarmar hafði verið drepinn," segir Bjarnheiður. Hugsar daglega um drenginn sinn [ Bjarmar hefði orðið 23 ára nú fmars. Hefur náð andlegum bata Strákurinn sem varð valdur að drukknun drengjanna var aðeins ellefu ára gamall þegar hann framdi ódæðið. Hann átti erfiða og rótlausa æsku þar sem hann ólst upp hjá móður sinni og ömmu til skiptis. Flest börn sem fremja svona hræðilegán glæp eiga að baki hræðilega fortíð. Ymist hafa þau verið vanrækt, jafnvel verið misþyrmt eða þau hafa verið misnotuð. -Drengurinn var allt of ungur til þess að hljóta fangelsisrefsingu fyrir glæp sinn. Málið fór aldrei fýrir dóm heldur var það í höndum heilbrigðis- og félagsmálayfirvalda að finna úrlausnir á þessum ömur- lega vanda. Drengurinn dvaldi lengi á með- ferðarheimili í nágrenni Húsavíkur þar sem hann gekkst undir sál- fræðimeðferð. Hann þótti ná góð- um árangri þrátt fyrir að hafa framið þetta voðaverk aðeins 11 ára gamall. Hann er nú 26 ára og hefur ekki brotið af sér svo vitað sé síðan hann hélt út í lífið að nýju. Hótaði honum öllu illu Bjarn- heiður seg- ist alltaf óttast manninn og hafa orðið mjög reið þegar hún sá greinar um sveitarstjórnarmál í Morgun- blaðinu fyrir nokkrum árum síðan sem hann hafði skrifað. „Þetta voru erfiðir tímar hjá mér og ég missti alveg stjórn á mér þegar ég sá mynd af honum í blað- inu.“ Bjarnheiður klippti myndina út og geymir hana enn. „Ég var að drekka og hafði sam- band við hann og hótaði honum öllu illu. Hann kærði mig í kjölfar- ið til lögreglunnar. Svo bringdi hann í mig viku seinna og öskraði á mig í símann að ég skyldi láta hann í friði. Ég held að ég sé ekki persónulega hrædd við hann þó svo að ég trúi honum til alls. Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég mætti honum," segir Bjarnheiður, sem óttast enn að hann eigi eftir að gera eitthvað skelfilegt þrátt fyrir að sálfræðingar hafi metið það svo að hann hefði komist yfir andlega erfiðleika æsku sinnar. Drengurinn mætti í Djúpu laugina „Alltaf þegar eitthvað kemur upp þar sem börn eiga í hlut hugsa ég til hans. Þegar ég heyrði fréttir af því að níu ára stelpa hefði verið brottnumin í Kópavogi nú skömmu fyrir jól, þá var ég alveg viss um að það hefði verið hann,“ segir Bjarnheiður. „Síðast þegar ég sá hann var ég að horfa á Djúpu laugina á Skjá einum. Hann var þar einn af þáttakendum. Það fer alltaf hrylli- lega fyrir brjóstið á mér þegar hann birtist svona í fjölmiölum og vekur upp reiði mína," segir hún bitur. Þó að Bjarnheiður hafi lítið orð- ið vör við manninn síðustu ár er hún enn á varðbergi enda hefur hann komist í óþægilega nálægð við eldri son hennar án þess að þau væru meðvituð um það. „Sonur minn fór á námskeið í fallhlífar- stökki hér á Akureyri fyrir nokkrum árum. Við komumst svo seinna að því að þessi maður væri á kafi í þessu sporti og hefði unnið á námskeiðinu við að undirbúa fallhlífarnar fyrir þá sem voru á námskeiðinu. Fyrir mér er þessi drengur tímasprengja." Ég var að drekka og hafði samband við hann og hótaði hon- um ölluillu. Fluttur til Flórída Sólveig Bragadóttir, móðir hins drengsins sem drukknaði, vildi lítið tjá sig um þetta mál. Hún hefur komist yfir reiði sína og gleðst yfir því að drengurinn hafi náð andleg- um bata. Hún þekkti mál hans vel og sagði hann hafa búið við erfiðar aðstæður sem hefðu valdið honum andlegum erfiðleikum sem barn. Sólveig segir það fyrir öllu að hann hafi náð andlegum bata og náð að fóta sig í lífuna að nýju eftir hræði- lega æsku sína. Hún segir fleiri dauðsföll í fjölskyldu hennar á þessum tíma hafa meðal annars orðið til þess að þau óskuðu eftir því að máhð yrði ekki blásið upp í fjölmiðlum. Ekki náðist í manninn sem bar ábyrgð á dauða drengj- anna tveggja fyrir 15 árum síðan. Móður hans sem enn býráAkureyri hefur ekkert heyrt í honum í lang- ann tíma en hún segir hann hafa flutt til Bandaríkjanna fyrir um þremur árum síðan þar sem hún heldur hann búa í Flórída. Hún segist ekki hafa verið í neinu sambandi við hann en hann er enn með lögheimili á heimili hennar á Akureyri. freyr@dv.is wsr*r Vf ' tr ■ ■ Glerá Bjarmar skreið útá rörið þaðan sem honum var sparkað út f ána, sem getur verið djúp og straumhörð á þessum stað. Á rörinu eru nú hindranir tilþess að koma I veg fyrir að hægt sé aðfarayfirþað.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.