Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Side 32
32 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 Helgarblað DV hátíð matar. Páskahelgin veitir flestum kærkomið frí í nokkra daga. Mörgum veitir ekkert af því að slaka á enda var jólafríið alltof stutt. DV heyrði í nokkrum þjóð- þekktum einstaklingum og forvitnaðist um hvernig þeir ætluðu að eyða páska- fríinu sínu. Margir ætla á skíði, aðrir á hestbak en all- ir ætla að borða góðan mat. nsm Sjaldan tínir blindur maður blóm „Ég ætía að eyða páskunum á skíðum í Aust- urríki," segir Valdimar Örn Flygenring leikari. „Við höfum ekki lagt í vana okkar að fara út um páska en það er vonandi að þetta breytist í hefð enda löngu tímabært þar sem við erum mikið skíðafólk," segir Valdimar og bætir við að hann sé afar spenntur. Valdimar segist ekki ætía að taka með sér íslensk páskaegg enda sé nóg af góðu súkkulaði í Austurríki. Hann ætíar hins vegar að taka með sér nokkra góða málshætti eða jafnvel búa til nokkra fyrir ferðina. „Ég hef verið að leika mér í þessu og það getur vel verið að ég snúi mér að páska- eggjaframleiðslu ef ég hætti í leiklistinni. Eggin munu þá heita Fjöregg og þeim mun fylgja mikill vísdómur, segir Valdimar og bætir við að hann sé algjör súkkulaðifík ill. „Efnin í súkkulaðinu virka á heilann eins og maður sé ást- fanginn og ég vona að ég verði afar ástfanginn um páskana." Hér er smábrot af málsháttaframieiðslu Valdimars: „Oft er blóm í blautri lautu“ - „Sjaldan tínir blindur maður blóm“. Skilyrði að borða góðan mat „Ég ætía að gera mér einhvern dagamun yfir páskana," segir Margrét Eir Hjart ardóttir söngkona. Margrét mun þó ekki vera í fríi yfir alla páskana þar sem hún verður að leika í tveimur síðustu sýningunum af Óliver. Hún ætlar þó að fara suður á páskasunnudegi og eyða kvöldinu með fjölskyldunni. „Ég er búin að ræða um matínn við mömmu. Hjá okkur eru engar hefðir varðandi mat á svona hátíðum en það er skilyrði að hann sé góður og ég vona og trúi að það verði lambalæri. Mér finnast hefðir góðar og heimilislegar en maður þarf líka að geta breytt til," segir Margrét og bætir við að hún líti á pásk- ana sem trúarlega hátíð þótt hún sé ekki dugleg að mæta í messur yfir þetta tímabil. „Margir halda að þetta sé einhvers konar skíðahátíð en það væri náttúrulega ekki ffí nema þar sem þetta er trúarleg hátíð. Ég held þó alltaf í eina hefð í kringum páskana og það eru páskaeggin. Ég kaupi mér yfirleitt alltaf sjálf páskaegg og svo hefur mamma verið dugleg að lauma að mér eggi.“ Margrét segist munu klæða sig upp í tilefni dagsiiis þó að hún gangi ekki svo langt að kaupa sér sér- stök páskaföt. „Ætli ég fari ekki í fi'nu peysuna. Ég held ekki jafh mikið upp á þessa hátíð og jólin þó að þetta snúist allt meira og minna um sama mannmn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.