Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Side 33
LAUGARDAGUR 19. MARS2005 33 Herdfs Egilsdóttir Veröur ekki I gulum fötum á páskunum. DV Helgarblað Páskar eru tími fyrir föndur „Páskadeginum ætla ég að eyða með manninum mínum á Hótel Örk,“ segir Herdís Egilsdóttir fyrrverandi kennari. Herdís fékk sólar- hrings dekurpakka í sjötugsafmælisgjöf á síðasta ári frá nokkrum systkinum mannsins hennar og hlakkar að sögn mikið til helgarinn- ar. „Við ætlum áð fara á tónleika í kirkjunni í Hveragerði og svo munum við hafa það notalegt fram eftir kvöldi," segir Herdís og bætir við að páskunum hafi yfirleitt fylgt heilmiklar heimatilbúnar hefðir á heimili hennar. „Hefðirnar hafa minnkað með árunum en ég hef alltaf föndrað mikið um páskana og þá sérstaklega þegar ég var kennari. Þá voru páskarnir önnur föndurbylgjan, fyrst voru jól- in og svo páskarnir og þá var föndrað villt og galið svo húsið varð gult.“ Herdís segist nota hvert tækifæri til að lífga upp á hversdags- leikann sem sé þó skemmtilegur og lifandi.1' Hún segist þó aldrei hafa gengið svo langt að klæðast sjálf gulum fötum á páskum. „Ég hef látið nægja að búa til unga með börnunum, barnabörnunum og nemendum mínum en hef látið vera að breyta sjálffi mér í • fiðurfé." Alltaf lambá páskum „Ég hugsa að ég eyði páskunum í að ríða út ef veðrið verður hagstætt," segir Flosi Ólafsson leikari og rithöfundur. Flosi segist ekki hafa haft hestana inni í vetur en nú verði þeir fjótlega settir inn og gerðir klárir fyrir alvöru reið. „Ég vona að hún Lilja mín gefi mér svo almennilega að éta yfir þessa heilögu hátíð. Hún er hneigð að grasi og káli sem fellur í grýttan jarðveg hjá mér enda þykir mér þetta skepnufóður. Eg held samt að henni þyki það vænt um mig að hún passi upp á að ég fái eitthvað almennilegt og pakki niður ein- hverju góðu í hnakktöskuna. Við höfum alltaf lambakjöt á páskadag og ég vona að það verði hryggur. Ég sé að Lilja brosir núna út að eyrum svo ég hef trú á að af því geti orðið," segir Flosi að lokum. Fæ páskaegg frá mömmu og pabba „Ég ætla að eyða páskunum á ísafirði með vinum mínum," segir Lára Rúnarsdóttir tónlistarmaður. Lára ætlar bæði að skella sér á skíði og vera viðstödd tónlist- arhátíðina Aldrei fór ég suður. „Ég var að spila á þessari hátíð í fyrra og það var alveg geggjað. Nú ætla ég ekkert að spila heldur bara skemmta mér með vinum mínum. Ég get ekki sagt að ég sé mikil skíða- manneskja en ég fór samt alltaf reglulega þegar ég var yngri. Ef snjór leyfir þá eru páskarnir samt góður tími til að fara á skíði, svona þegar maður hefur tíma vegna lærdóms," segir Lára, sem er á . fyrsta ári í Kennaraháskóla íslands. , Hún segist hafa nóg að læra í þessu páskafríi en ætlar að gefa sér tíma til að kíkja vestur. „Það er nauð- synlegt að taka sér frí frá lær- dómnum. Ég hefði alveg viljað hafa fjölskylduna mína með en ætla að vera með vinunum þessa fjóra daga," segir Lára og viðurkennir að hún fá páskaegg á hverju ári. „Mamma og pabbi gefa mér alltaf páskaegg. Ég ætla að biðja þau um lítið í ár, bara svona til að fá að smakka." largrét Eir ~er páskaegg frá mömmu sinni og rupirsér llka eitt sjálf. Lára Rúnarsdóttír ^rffrtfráixráómnum °g skelhr sér á skíði Alvöru steikur og mörg páskaegg „Páskarnir munu snúast alfarið um hesta eins og allir aðrir dagar," segir Fjöln- ir Þorgeirsson hestamaður. Fjölnir ætíar að skella sér á hlýðninámskeið þar sem heimsmeistarinn í hlýðni hesta er staddur hér á larídi auk þess sem hann ætíar að mæta á hestasýningar og vinna eitthvað. „Ég held að það verði eitthvað lítíð annað sem ég geri. Nema náttúrulega að borða einhvem góðan mat. Ef veðrið verður gott þá grillar maður. Mig langar mest í ein- hverja rosalega góða alvöru steik eins og til dæmis lambakjöt í bernaise með einhverju geggjuðu hráeftii. Allavega ekki eitthvað 10 -II kjöt. Auk þess ætía ég að borða páska- egg og þá helst eins mörg og ég get,“ segir Fjölnir að lokum og bætir við að hann sé hættur að nota páskaveðrið til skíðaiðkun- ar, nú eigi hestarnir allan hans hug. Páskamessa og matar- veislur „Það er nóg að gera hjá mér um páskana enda fer ég í þrjár fermingar og eins árs afmæli," segir Kristín Rós Há- konardóttir sunddrottning. Kristín æltar að eyða páskun- um með fjölskyldu sinni. Dagskráin byrjar á sunnudags- morgun klukkan átta þegar þau mæta öll saman í kirkju. „Við höfum farið í þessa morgunmessu síð- an ég man eftir mér og ég gæti ekki hugsað mér að sleppa henni. Þegar messan er búin fáum við okkur kakó og einhvern góðan morgunmat," segir Kristín Rós og bætir við að hún líti á páskana sem trúarlega hátíð. „Ég er trúuð og mæti því í kirkju. Ég stend ekki í að mála egg og skreyta heimilið með þeim en set upp eitthvað lítið af skrautí og klæði mig upp á í tilefrii dagsins. Allavega geng ég ekki í íþróttaföt- um þennan daginn." Hún segist ætía að láta páskaeggið sitt nægja sér út vikuna enda verður hún að halda sér í góðu formi. „Ég kaupi mér alltaf eitt páskaegg og það verður að vera frá Nóa Sfríusi, það má alls ekki klikka." Fjölnir Þorgeirsson Á leiðinni á hlýðninámskeið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.