Freyr - 01.10.1945, Page 17
PREYR
151
Nýtt efni til eyðingar
skordýrum
í haust verða hrútasýningar haldnar á
betra meðal til að ráða niðurlögum skor-
dýra en áður hefir þekkzt. Efni þetta mun
fyrst hafa verið búið til í Sviss, og var
þar selt undir nafninu „Gáserol.“ Skortur
mun þó hafa verið á þeim tveim efnum
sem Gáserol var búið til úr, svo aldrei varð
að ræða um verulegan útflutning þaðan..
Framleiðsla efnisins var þá tekin upp
í öðrum löndum, t. d. Danmörku þar sem
þetta efni, sem á efnafræðimáli heitir
„pentachlordiphenylætan“ gekk undir
nafninu „pentised D.A.K..“ í Danmörku
hefir efnið verið notað allmikið seinustu
árin til að útrýma lús alls konar, bæði hjá
kúm, hestum, kindum, hundum o. s. frv.
og hefir það gefið ágæta raun. Einnig
hefir það verið notað gegn maurum hjá
hestum '(Chorioptes equi) með sæmilegum
árangri. Meðal þetta er sérstaklega ágætt
til að eyða flugum úr fjósum, kakkalökkum
Aðalkostir þessa meðals eru þeir, að það er
lyktarlaust og algerlega óskaðlegt fyrir húð
og ull. Meðal þetta hefir þegar náð mikilli
útbreiðslu í þeim löndum Evrópu sem það
hefir verið búið til í, og hvarvetna gefið
hina beztu raun. Á stríðsárunum hefir
þetta meðal líka verið búið til í stórum stíl
i Ameríku, og notað mikið í þágu hersins,
enda þrásinnis getið í blöðum og útvarpi.
í Ameríku mun meðalið hafa verið endur-
bætt og vera til muna áhrifameira en í
því formi sem það þekkist i Evrópu.
Enn hefir eigi fengist neitt af meðali
þessu hingað til lands, enda hafa Amerík-
anar vafalaust haft þess nóg not til þessa.
En nú, þegar styrjöldinni er lokið, mun efa-
laust verða hægt, að minnsta kosti mjög
fljótlega, að kaupa meðal þetta, og er þess
að vænta að lyfjaverzlun ríkisins sjái um
að svo verði gert. Væri þá hyggilegt að
reyna meða,lið undir d(ýralækniseftirliti,
áður en innflutningur þess og sala er haf-
in í stærri stíl. Má þá með vissu fá úr því
skorið, hvort hér sé ekki komið meðal við
kláða, alls konar lús o. fl. en eftir erlendri
reynslu virðist mega ætla að svo sé.
P.
Hrútasýningar
íhaust verða hrútasýningar haldnar á
Vesturlandi. Haustið 1944 voru engar hrúta-
sýningar haldnar sökum þess að sauðfjár-
ræktarráðunauturinn var þá erlendis, en
þá átti að halda sýningu á Vesturlandi.
Nú- í haust átti því að halda sýningu á
Norðaustur- og Austurlandi en þær færast
aftur um eitt ár.
Hjörtur Eldjárn landbúnaðarkandidat frá
Edinborgarháskóla í Skotlandi dæmir á
hrútasýningunni á Vestfjarðakjálkanum
frá Bjarnarfirði á Ströndum að Berufirði,
en Halldór Pálsson dæmir á sýningunum
í Dalasýslu og Snæfellsnessýslu, en þeir
munu báðir mæta á sýningunum í Stranda-
sýslu sunnan Árneshrepps. Sýningarsvæðið
er svo stórt og illt yfirferðar að einn mað-
ur getur ekki mætt á öllum sýningunum.
Útbreiðið FREY